Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1927, Blaðsíða 11
Búnaðarskýrslur 1925
9
kálgarðastærðin allsstaðar tekin eftir túnmælingunum, þar sem þær liggja
fyrir, en þar sem þær þrýtur er stærðin tekin eftir upplýsingum þeim um
stærðina, sem eru í búnaðarskýrslunum. í þeim hreppum, sem túnmæl-
ingar eru ókomnar úr, vísast í neðanmálsgrein til þess árs búnaðarskýrsln-
anna, sem stærðin er tekin eftir. Þar sem mælingar þær, sem komnar
eru, ná aðeins yfir nokkurn hluta af hreppnum, er merkið - sett við
túnstærðina og er þá það sem á vantar tekið eftir búnaðarskýrslunum.
Samkvæmt skýrslunum, eins og þær birtast hjer, er túnstærðin 22 923
hektarar, en kálgarðar 492 hektarar.
III. Jarðargróði.
Produits des récoltes.
Samkvæmt búnaðarskýrslunum hefur heyskapur að undanförnu verið:
Taöa Úthey
1901—05 meðaltal .... 609 þús. hestar 1 253 þús. hestar
1906 — 10 — .... 623 — — 1 324 — —
1911—15 — .... 667 — — 1 423 — —
1916—20 — .... 597 — — 1 472 — —
1920—24 — .... 698 — — 1 290 — —
1924 ............... 693 — — 1 262 — —
1925 ............... 853 — — 1 596 — —
Árið 1925 hefur heyskapur orðið mjög góður. Samanborið við
meðaltal 5 næstu áranna á undan varð töðufengurinn 22 % meiri og
útheyið 24 °/o meira. Og í samanburði við næsta ár á undan (1924) var
munurinn heldur meiri.
2. yfirlit (bls. 10*) sýnir heyskapinn í hverjum landshluta fyrir sig.
í öllum landshlutum hefur bæði töðufengur og úthey orðið meira
árið 1925 heldur en meðaltal áranna 1920—24 og víðasthvar miklu meira.
En mestur er munurinn á Suðvesturlandi.
Uppskera af jarðeplum varð óvenjulega mikil 1925, 34 þús-
tunnur. Árið næst á undan var hún 25 þús. tunnur og meðaluppskera 5
næstu áranna á undan (1920—24), aðeins 24 þús. tunnur. — Uppskera
af rófum og næpum var líka með mesta móti árið 1925, 12 þús.
tunnur, en aðeins 9 þús. tunnur árið 1924 og að meðaltali árin 1920—24.
Mótekja 300 þús. hestar haustið 1925. Er það miklu minna en
meðaltal 5 áranna á undan, sem var 389 þús. hestar og líka töluvert
minna heldur en árið 1924, er mótekja var 353 þús. hestar. — Hrísrif