Hagskýrslur um landbúnað

Eksemplar

Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1928, Side 11

Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1928, Side 11
Búnaðarskýrslur 1926 9 II. Ræktað land. Terrain cultivé. Samkvæmt lögum nr. 58, 3. nóv. 1915 átti að mæla upp öll tún og matjurtagarða á landinu utan kaupstaða og átti því að vera Iokið 1920. Ummálsuppdrættir af hinum mældu túnum áttu að sendast stjórnarráðinu og hefur Hagstofan fengið þá til afnota, sem komnir eru. En þegar skýrsl- ur þessar voru samdar vantaði enn mælingar úr 6 hreppum að öllu leyti og úr 17 hreppum að nokkru leyti. í töflunum hjer á eftir er túna- og kálgarðastærðin allsstaðar tekin eftir túnmælingunum, þar sem þær liggja fyrir, en þar sem þær þrýtur er stærðin tekin eftir upplýsingum þeim um stærðina, sem eru í búnaðarskýrslunum. I þeim hreppum, sem túnmæl- ingar eru ókomnar úr, vísast í neðanmálsgrein til þess árs búnaðarskýrsln- anna, sem stærðin er tekin eftir. Þar sem mælingar þær, sem komnar eru, ná aðeins yfir nokkurn hluta af hreppnum, er merkið - sett við túnstærðina og er þá það sem á vantar tekið eftir búnaðarskýrslunum. Samkvæmt skýrslunum, eins og þær birtast hjer, er túnstærðin 22 966 hektarar, en kálgarðar 493 hektarar. III. Jarðargróði. Produits des récoltes. Samkvæmt búnaðarskýrslunum hefur heyskapur að undanförnu verið: Taða Úthey 1901 - 05 meðaltal. . . . 609 þús. hestar 1 253 þús. hestar 1906-10 — .... 623 — — 1 324 — — 1911-15 — .... 667 — — 1 423 — — 1916—20 — .... 597 — — 1 472 — — 1921—25 — .... 751 — — 1 327 — — 1925 .............. 853 — — 1 596 — — 1926 .............. 897 — — 1 299 — — Árið 1926 hefur túnaheyskapur orðið mjög góður. Samanborið við meðaltal 5 næstu áranna á undan varð töðufengurinn 19 °/o meiri. Aftur á móti varð útheyskapur tæplega í meðallagi og miklu lakari en næsta ár á undan (1925). 2. yfirlit (bls. 10*) sýnir heyskapinn í hverjum landshluta fyrir sig. I öllum landshlutum hefur töðufengur orðið meiri árið 1926 heldur

x

Hagskýrslur um landbúnað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um landbúnað
https://timarit.is/publication/1125

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.