Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1928, Qupperneq 11
Búnaðarskýrslur 1926
9
II. Ræktað land.
Terrain cultivé.
Samkvæmt lögum nr. 58, 3. nóv. 1915 átti að mæla upp öll tún og
matjurtagarða á landinu utan kaupstaða og átti því að vera Iokið 1920.
Ummálsuppdrættir af hinum mældu túnum áttu að sendast stjórnarráðinu
og hefur Hagstofan fengið þá til afnota, sem komnir eru. En þegar skýrsl-
ur þessar voru samdar vantaði enn mælingar úr 6 hreppum að öllu leyti
og úr 17 hreppum að nokkru leyti. í töflunum hjer á eftir er túna- og
kálgarðastærðin allsstaðar tekin eftir túnmælingunum, þar sem þær liggja
fyrir, en þar sem þær þrýtur er stærðin tekin eftir upplýsingum þeim um
stærðina, sem eru í búnaðarskýrslunum. I þeim hreppum, sem túnmæl-
ingar eru ókomnar úr, vísast í neðanmálsgrein til þess árs búnaðarskýrsln-
anna, sem stærðin er tekin eftir. Þar sem mælingar þær, sem komnar
eru, ná aðeins yfir nokkurn hluta af hreppnum, er merkið - sett við
túnstærðina og er þá það sem á vantar tekið eftir búnaðarskýrslunum.
Samkvæmt skýrslunum, eins og þær birtast hjer, er túnstærðin 22 966
hektarar, en kálgarðar 493 hektarar.
III. Jarðargróði.
Produits des récoltes.
Samkvæmt búnaðarskýrslunum hefur heyskapur að undanförnu verið:
Taða Úthey
1901 - 05 meðaltal. . . . 609 þús. hestar 1 253 þús. hestar
1906-10 — .... 623 — — 1 324 — —
1911-15 — .... 667 — — 1 423 — —
1916—20 — .... 597 — — 1 472 — —
1921—25 — .... 751 — — 1 327 — —
1925 .............. 853 — — 1 596 — —
1926 .............. 897 — — 1 299 — —
Árið 1926 hefur túnaheyskapur orðið mjög góður. Samanborið við
meðaltal 5 næstu áranna á undan varð töðufengurinn 19 °/o meiri. Aftur
á móti varð útheyskapur tæplega í meðallagi og miklu lakari en næsta
ár á undan (1925).
2. yfirlit (bls. 10*) sýnir heyskapinn í hverjum landshluta fyrir sig.
I öllum landshlutum hefur töðufengur orðið meiri árið 1926 heldur