Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1950, Blaðsíða 19
Búnaðarskýrslur 1946
17*
Lömb ................................ 307 735
Mylkar œr............................. 53 111
Geldar œr ............................. 6 913
Sauðir og hrútar ...................... 3 561
Veturgamlar kindur................ ■. ■ B 200
Samtals 377 520
Samkvæmt skýrslum Búnaðarráðs hefur verið slátrað alls í slátur-
húsum 353 023 sauðkindum árið 1946, en auk þess hefur verið slátrað
heima og kindur farizt á annan hátt. Samkvæmt skýrslum frá Sambandi
íslenzkra samvinnufélaga, Sláturfélagi Suðurlands og kaupmönnunum
Garðari Gíslasyni og Þóroddi Jónssyni, hafa þeir til samans fengið í
hendur rúml. 469 þús. gærur frá árinu 1946, en hjá þeim lenda svo að
segja allar gærur og skinn, sem til falla á öllu landinu, því að það mun
vera sáralítið sem unnið er lieima af þeim nú orðið, nema þá folalda-
skinn og' kálfsskinn. Enda þótt gert sé ráð fyrir, að gærurnar af van-
haldakindum hafi nýzt að mestu leyti, og lölu vanhaldakindanna því
bætt við tölu hins fargaða sauðfjár, og þótt enn fremur sé tekið til
greina, að í skattskýrslunum eru ekki talin bú skattfrjálsra aðila (svo
sem bú ríkisins o. fl.), þá vantar samt töluvert á, að fjölgunin svari til
gærutölunnar.
Förgun nautgripa hefur verið samkvæmt skýrslunum
árið 1946:
Kýr....................................... 2 496
Geldneyti 2 vetra og eldri ........... 247
Geldneyti vngri en 2 ára ................ 1 784
Kálfar .................................. 15 966
Samtals 20 493
Af kálfsskinnum frá þessu ári hafa áður greindir ttðiljar aðeins
fengið um 10 þús., en af nautgripahúðum hafa þeir fengið rúml. 7300,
svo að ekki verður betra samræmið milli förgunar nautgripanna og
húðatölunnar.
Förgun hrossa hefur verið samkvæmt skýrslunum árið 1946:
15 vetra og eldri........................... 1 739
4— 15 vetra................................. 2 928
2 — 3 vetra................................. 1 129
Folöld ..................................... 1 339
Samtals 7135
Af folaldaskinnum frá þessu ári hala áður greindir aðiljar ekki
fengið neitt sem teljandi sé, en af hrossa- og tryppahúðum hafa þeir
fengið nærri 7200 og hlýtur því töluvert að vanta i hrossaförgunar-
töluna, einkum þegar þess er gætt, að þar í mun vera nokkur sala
til lífs.