Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1917, Blaðsíða 22
20
Fiskiskýrslur 1915
E. Dúntekja og fuglatekja.
L’oisellerie.
Samkvæmt hlunnindaskýrslunum hefur dúntekjan árið 1915
verið 4290 kg og er það töluvert meir en i meðallagi samanborið
við næstu árin á undan.
Á eftirfarandi yfirliti sjest hve mikil dúntekjan hefur verið sið-
an fyrir aldamót samkvæmt skýrslum hreppstjóranna, en lil saman-
burðar er sett þyngd útflutts dúns samkvæmt verslunarskýrslunum
ásamt verðinu, sem fyrir hann hefur fengist:
Framtalinn Útfluttur dúnn Meðal-
dúnn þytigd verö vcrö
1897—1900 meðaltal 3 345 kg 3 585 kg 75 077 kr. kr. 20.04
1901—1905 — 3 299 — 3 032 — 63 618 - — 20.08
1906—1910 — 3 472 — 3 500 — 74 821 — — 21.38
1910-1914 — 3 911 — 4 067 — 119 348 — — 29.35
1914 3 922 - 3 299 — 125 438 - — 38.02
Verslunarskýrslurnar telja venjulega útflutt meira af dún heldur
en dúnlekjan ætti alls að vera samkvæmt framtalinu. Að vísu gæti það
komið fyrir ár og ár i bili, að útflutt væri meira af dún heldur en fram-
leitt væri það sama ár, en að útflutningurinn mörg ár samfleytt sje sífelt
meiri en framleiðslan, nær auðvitað ekki nokkurri átt, og er því auð-
sætt, að töluvert af dúntekjunni hefur ekki komið fram í skýrslunum.
Árið 1914 hefur verið útflutt miklu minna af dún heldur en undan-
farin ár og stafar það sjálfsagt af ófriðnum, því að dúnninn, sem altaf
var að hækka í verði þangað til ófriðurinn hófst, tók þá aftur að
lækka mikið í verði, og mun það hafa dregið úr útflutningnum.
Hve mikil fuglatekjan hefur verið samkvæmt skýrslunum síðan
fyrir aldamót sjest á eftirfarandi yfirliti:
Lundi Svartfugl Fýlungur Súla Rita Alls
þús. þús. þús. þús. þús. þús.
1897—1900 meðaltal.... 195.o 66.o 58.o 0.7 18.o 337.7
1901—1905 — 239.o 70.o 52.o 0.6 17.o 378.6
1906—1910 212.6 104.1 40.7 0.8 19.5 377.7
1910-1914 — 204.2 98.0 44.5 0.5 14.3 362.4
1914 183.4 90.s 45,i 0.4 13.1 332.8
1915 227.2 30.6 41.5 0.4 13.o 312.7
Yfirleitt hefur fuglatekjan árið 1915 orðið minni heldur en árið
á undan, og miklu minni en í meðallagi samanborið við undan-
farandi ár. Þó hefur lundaveiði orðið heldur meiri en í meðallagi,
en aftur á móti hefur svartfuglaveiðin ekki náð þriðjungi i móts við
venjulega veiði, sem mest stafar af því, að svartfuglaveiðin i Drang-
ey brást alveg, því að hún varð ekki stunduð vegna hafíss.