Fréttablaðið - 13.01.2015, Síða 18
FÓLK|HEILSA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Einn efnilegasti körfuknattleiksmaður lands-ins, Kristinn Pálsson, leikur með unglingaliði ítalska félagsins Stella Azzurra Roma í Róm
auk þess sem hann stundar nám í alþjóðlegum
skóla í sömu borg. Kristinn hefur verið lykilmaður í
nokkrum yngri landsliðum Íslands undanfarin ár og
þykir afar efnilegur og fjölhæfur leikmaður; sterkur
varnarmaður, góður skotmaður auk þess að vera
mjög góður liðsmaður.
Lífið í Róm er ævintýralegt fyrir þennan 17 ára
pilt; veðurfarið er milt, borgin einstaklega falleg þar
sem sagan lifnar við á hverju götuhorni auk þess
sem ítalski maturinn skemmir ekki fyrir hjá lystar-
miklum ungum íþróttamanni.
Hann segir daglegt líf í Róm vera nokkuð
þægilegt. „Ég bý í stórri íbúð fyrir utan íþrótta-
húsið með hinum strákunum. Við höfum nánast
allt til alls auk þess sem stutt er í bæði skólann og
íþróttahúsið. Dæmigerður dagur hefst í skólanum
kl. 8.30 en ég er kominn heim um kl. 15.30. Þá fer ég
beint að lyfta og við tekur æfing um sexleytið sem
stendur yfir í þrjá tíma. Þegar heim er komið fer ég
yfirleitt fljótlega að sofa enda tekur yfirleitt sama
stífa dagskráin við daginn eftir.“
Lið Kristins leikur í öflugustu unglingadeild Evr-
ópu en lið hans komst nýlega
í úrslitakeppni átta bestu
unglingaliða Evrópu.
„Sjálfur hef ég staðið
mig nokkuð vel, bæði
í leikjum og á æfing-
um og er fyrirliði bæði
hjá 18 og 19 ára liðinu.
Þar sem klúbburinn er
áhugamannafélag leikur
hann ekki í efstu deildinni
á Ítalíu en hefur hins vegar
gott orð á sér fyrir öflugt
unglingastarf.“
Ítalía er ein sterkasta
körfuboltaþjóð Evrópu og
á í dag fjóra leikmenn í NBA-
deildinni. Einn þeirra, Andrea Bargnani, spilaði
með klúbbnum í upphafi ferilsins.
HEILLANDI BORG
Kristinn segist kunna vel við sig í Róm enda sé hún
afskaplega falleg og margt hægt að skoða. „Það
fylgir svo mikil saga þessari fallegu borg og það er
einmitt það sem heillar mig svo mikið við hana og
raunar alla Ítalíu; hér lifa landsmenn sig enn þá inn
í söguna og þann tíma þegar Rómverjar réðu hér
ríkjum fyrir mörgum öldum.“
Ítalía er paradís fyrir mataráhugamenn og Krist-
inn er þar engin undantekning. „Mér líkar mjög vel
við matinn hér á Ítalíu. Dæmigerð máltíð saman-
stendur af forrétti sem er alltaf pasta, hrísgrjón eða
súpa. Aðalrétturinn er yfirleitt kjöt með salati eða
kartöflum. Auðvitað pöntum við stundum pitsu
en hún er svakalega góð hérna. Þegar við fáum
svo frí, sem gerist ekki oft, kíkjum við stundum á
McDonalds enda verður maður stundum að leyfa
sér smá.“
Hann segir það stórt stökk að fara frá Njarðvík
til Rómar. „Það er alltaf best að
vera heima í Njarðvík þar
sem búa nokkur þúsund
manns en hér í Róm
búa nokkrar milljónir.
Því hefur tekið smá
tíma að venjast þessu
en það kemur bara
með tímanum. En
þrátt fyrir að vel hafi
gengið sakna ég auð-
vitað fjölskyldunnar
auk vina minna. Það
er stundum erfitt að
vera svona langt í
burtu og missa af
öllu því sem þau eru
að gera heima á
Íslandi.“
■ starri@365.is
NÁM OG BOLTI Í BORGINNI EILÍFU
EFNILEGUR LEIKMAÐUR Eitt mesta efni í íslenskum körfubolta spilar körfubolta í Róm á Ítalíu í vetur ásamt því að stunda nám.
Hann segir borgina heillandi, matinn frábæran og liðið hans komst nýlega í úrslitakeppni bestu unglingaliða Evrópu.
SJALDAN FRÍ „Þegar við fáum svo frí, sem gerist ekki oft, kíkjum við stundum á
McDonalds enda verður maður stundum að leyfa sér smá,“ segir Kristinn Pálsson,
körfuboltamaðurinn efnilegi. MYND/ERNIR
Heilsufyrirtækið Core ehf. hóf nýlega innflutning á þessum ljúffengu heilsudrykkjum frá breska fram-leiðandanum Cawston Press. Fyrirtækið hefur
framleitt holla og bragðgóða drykki í rúmlega aldar-
fjórðung. Undirstaða flestra drykkjanna eru handtínd
fersk epli sem eru pressuð innan við 48 tímum eftir að
þau koma af trjánum. Ekki er notað eplaþykkni eins og
algengt er. Drykkirnir eru svo bragðbættir með engifer,
rabarbara og rauðrófusafa svo dæmi séu nefnd.
RAUÐRÓFUSAFI
„Rauðrófusafinn frá Cawston
Press er einstaklega ljúffengur.
Hann er bragðbættur með einu
fersku epli til þess að draga
úr jarðarbragðinu sem fylgir
rauðrófunni. Safinn er hrein og
klár næringarsprengja en margir
flokka rauðrófur og rauðrófusafa
sem ofurfæðu,“ segir Kamilla
Sveinsdóttir, markaðsstjóri Core
ehf.
Safinn er að sögn Kamillu stút-
fullur af vítamínum, steinefnum
og öðrum hollustuefnum. Má
þar nefna C-vítamín, fólínsýru,
járn, magnesíum, kopar, kalíum,
mangan, fosfór, trefjar, andoxun-
arefni og nítrat. „Dagleg neysla á
rauðrófusafa hefur meðal annars
jákvæð áhrif á blóðþrýsting og
blóðflæði,“ segir Kamilla. Hún
segir niðurstöður allmargra
rannsókna benda til þess að
neysla á rauðrófusafa geti haft
veruleg áhrif til lækkunar á blóð-
þrýstingi og koma áhrifin nánast
strax í ljós. „Þú bókstaflega finnur breytinguna og vel-
líðunina.“
Kamilla segir rauðrófusafa jafnframt hafa gagnast
mörgu íþróttafólki, ekki síst fólki sem stundar úthalds-
íþróttir. „Margir íþróttamenn hafa talað um að árangur
aukist umtalsvert. Rauðrófan hefur æðavíkkandi áhrif
sem veldur því að líkaminn getur flutt meira af súrefnis-
ríku blóði til vöðva. Þetta eykur úthald og frammistaðan
verður betri, jafnvel við langvarandi álag,“ útskýrir
Kamilla.
RAUÐRÓFUSAFINN FRÁ CAW-
STON PRESS:
● Er vítamínsprengja
● Eykur úthald og bætir
frammistöðu
● Lækkar háþrýsting
● Örvar meltinguna
● Er talinn mjög góður fyrir húð
og
ýmsa húðsjúkdóma vegna
hreins-
andi eiginleika
EPLA- OG ENGIFERSAFI
Eplin hjá Cawston Press eru sér-
valin og pressuð innan 48 tíma
frá því þau eru tínd. Cawston
notar nokkrar mismunandi epla-
tegundir. Má þar nefna Bramley
og Jonagold. Ekki er um að ræða
eplaþykkni eins og algengt er.
Epla- og engiferdrykkurinn er
bragðbættur með engifer og
hefur blandan unnið til fjölda
verðlauna. Meðal annars gull-
verðlauna á Great Taste Awards
2010, 2011, 2012 og 2013, en hátíðin er nokkurs konar
Óskarsverðlauna hátíð matarheimsins.
„Lykillinn að ferskleikanum er að eplin eru handtínd
og pressuð um leið og þau koma af trjánum. Þau eru
ekki geymd í vöruhúsi eins og hjá mörgum framleið-
undum. Þetta er frábær drykkur. Við fjölskyldan tökum
þennan alltaf með lýsinu á morgnana,“ segir Kamilla.
Í EPLA- OG ENGIFERSAFANUM FRÁ CAWSTON PRESS ER:
● Enginn viðbættur sykur
● Engin rotvarnarefni
● 99% pressuð epli og 1% engifer
● Cawston-drykkirnir fást í öllum helstu matvöruversl-
unum.
FERSKLEIKINN Í FYRIRRÚMI
CORE EHF. KYNNIR Safarnir frá Cawston Press eru þeir ferskustu sem völ er á. Þeir hafa hlotið fjölda gullverðlauna. Meðal annars
á Great Taste Awards 2010, 2011, 2012 og 2013, en hátíðin er ein sú virtasta í heimi.
FERSKIR OG BRAGÐGÓÐIR Cawston Press hefur framleitt holla og
bragðgóða drykki í rúmlega aldarfjórðung. MYND/VILHELM
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
E
9
-E
9
6
8
1
7
E
9
-E
8
2
C
1
7
E
9
-E
6
F
0
1
7
E
9
-E
5
B
4
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
4
0
s
_
1
2
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K