Fréttablaðið - 13.01.2015, Síða 32
13. janúar 2015 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 24
BAKÞANKAR
Erlu Bjargar
Gunnarsdóttur
Draumar
geta stund-
um verið
fyrir ein-
hverju en ég
held að
oftast séu
draumar um
eitthvað,
það er að
segja um
það sem er í
gangi í lífi
okkar.
„Draumar eru flókið fyrirbæri og
enginn veit nákvæmlega hvað þeir
eru, hvaðan þeir koma og hver til-
gangur þeirra er. En það eru til
ótal kenningar,“ segir Valgerður
H. Bjarnadóttir, félagsráðgjafi með
BA-gráðu í heildrænum fræðum
með áherslu á draumavinnu.
Hún hefur í gegnum tíðina hald-
ið fjölda námskeiða og veitt ráð-
gjöf um drauma. „Ég hef alltaf
haft mikinn áhuga á draumum. Mig
dreymdi mikið og mundi draumana
mína vel sem barn.“
Valgerður segir ríkjandi til-
hneigingu til þess að líta á drauma
sem forspárfyrirbæri eða ómark-
tæka, en hún vill hins vegar meina
að draumar búi yfir dýpri merk-
ingu. „Draumar geta stundum
verið fyrir einhverju en ég held
að oftast séu draumar um eitt-
hvað, það er að segja um það sem
er í gangi í lífi okkar og þeir gefa
okkur þá einhvers konar nýja sýn á
það. Oft eru þeir að segja okkur um
fortíðina, eitthvað sem er óunnið í
okkur. Ótta eða sorg, kvíða eða eitt-
hvað sem við erum einhvern veg-
inn að burðast með og höfum ekki
verið tilbúin að vinna úr.“ Valgerð-
ur segir að þegar að draumarnir
koma upp í meðvitund einstaklinga
sé það vísbending um að þeir séu
tilbúnir til þess að vinna með og úr
viðfangsefni draumsins.
Hún segir drauma þó ekki ein-
Alltaf haft mikinn
áhuga á draumum
Valgerður H. Bjarnadóttir hefur í gegnum tíðina haldið fj ölda draumanámskeiða.
VALGERÐUR Valgerður H. Bjarnadóttir segir drauma vera
flókið fyrirbæri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Það er algjörlega mitt hugðarefni
að öll börn fái tækifæri til þess að
læra í gegnum hreyfingu á faglegan
og skemmtilegan hátt,“ segir Krist-
ín Einarsdóttir, höfundur kennslu-
aðferðarinnar Leikur að læra.
„Ég er búin að vera að þróa þetta
í sjö ár og á síðasta ári hætti ég að
kenna og er nánast bara í þessu,“
segir Kristín, sem hefur mikla trú
á verkefninu. „Rannsóknir á heila-
starfsemi barna styðja við náms-
efnið. Öll börn elska hreyfingu og
þetta hentar sérstaklega vel fyrir
börn með greiningar á ofvirkni og
athyglisbresti.“
Leikur að læra er kennsluaðferð
þar sem börnum á aldrinum tveggja
til tíu ára eru kennd öll bókleg fög
í gegnum leiki og hreyfingu. Krist-
ín er menntaður íþrótta- og grunn-
skólakennari en hugmyndin að
verkefninu kviknaði þegar hún
kenndi á yngsta stigi.
Hún segir námsefninu hafa
verið vel tekið. „Síðastliðin tvö ár
hafa yfir þúsund kennarar komið
á námskeið og foreldrar eru mjög
áægðir með þetta. Núna er ég líka
komin með foreldranámskeið,
sýni foreldrum hvernig er hægt
að kenna börnunum heima án þess
að vera sitjandi við borð,“ segir
Kristín en næst á dagskránni er
að halda til Noregs og kynna Leik
að læra þar.
Nánari upplýsingar um kennslu-
aðferðina er hægt að nálgast á leik-
uradlaera.is. - gló
Hefur helgað sig hugðarefni sínu
Kristín Einarsdóttir hefur undanfarin sjö ár þróað kennsluaðferðina Leikur að læra.
KRISTÍN Er menntaður íþrótta- og
grunnskólakennari. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ungis gefa vísbendingu um óunna
erfiðleika. „Draumar geta bæði
hjálpað okkur að sjá það sem er erf-
itt og það sem við þurfum að vinna
úr. En hjálpa okkur ekki síður að sjá
auðinn sem við búum yfir og mögu-
leikana sem við höfum.“ Með því að
vinna með og taka mark á draum-
unum geti fólk nýtt draumana sér
til góðs.
Valgerður hefur í gegnum árin
haldið námskeið þar sem hún
meðal annars hjálpar fólki við að
vinna með og nýta drauma sína.
„Það sem ég er að reyna að gera
er í rauninni að miðla þekkingu til
fólks um það hvernig hægt er að
nýta svefn draumana sína, til þess
að skilja sjálft sig betur, til þess að
taka markvissari ákvarðanir í lífinu
og svo framvegis.“
Næsta draumanámskeið Valgerð-
ar fer fram þann 22. janúar í Lygnu
og hefst klukkan sjö. Frekari upp-
lýsingar um Valgerði og námskeið
hennar má nálgast á vefsíðunni
vanadis.is.
gydaloa@frettabladid.is
Adele er sögð ætla að kaupa
glæsivillu við sjávarsíðuna í Mal-
ibu. Þar ætlar hún sér að semja
tónlist og slaka á með eigin-
manni sínum, Simon Konecki, og
tveggja ára syni þeirra, Angelo.
Söngkonan vinsæla á fyrir íbúð
í Los Angeles og hús í borginni
Brighton á Englandi. „Adele er að
undirbúa endurkomu sína í tón-
listina. Hún vill verja tíma í hljóð-
veri í Los Angeles og einnig geta
slakað á í ró og næði við hafið,“
sagði heimildarmaður. „Hún elsk-
ar að búa við sjóinn í Brighton og
hefur því einnig fengið sér hús
við sjóinn í Malibu.“
Adele kaupir
hús í Malibu
ADELE Söngkonan ætlar að slaka á við
sjávarsíðuna í Malibu.
Níunda hljóðversplata Belle and
Sebastian, Girls in Peacetime
Want to Dance, kemur út eftir
eina viku. Upptökustjóri var Ben
H. Allen III, sem hefur unnið
með Animal Collective og Gnarls
Barkley. Fjögur ár eru liðin
síðan síðasta plata sveitarinnar
kom út og nefndist hún Belle and
Sebastian Write About Love.
Skoska hljómsveitin mun fylgja
nýju plötunni eftir með tónleika-
ferð sem hefst í Cardiff í Wales,
3. maí. Sveitin er einnig vænt-
anleg á tónlistarhátíðina All
Tomorr ows Parties sem verður
haldin á Ásbrú í sumar.
Styttist í nýja
plötu frá Belle
STUART MURDOCH Murdoch og félagar
gefa út plötuna Girls in Peacetime Want
to Dance eftir eina viku. NORDICPHOTOS/GETTY
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
8, 10:20
6, 9
7
5:50
10
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
CHICAGO SUN TIMES
LOS ANGELES TIMES
WASHINGTON POST
TAKEN 3 KL. 5.30 - 8 - 10.30
UNBROKEN KL. 6 - 9
THE HOBBIT 3 3D KL. 6 – 9
NIGHT AT THE MUSEUM 3 KL. 5.30 - 8
MOCKINGJAY– PART 1 KL. 10.15
TAKEN 3 KL. 5.30 - 8 - 10.30
TAKEN 3 LÚXUS KL. 10
THE HOBBIT 3 3D 48R KL. 5 – 8 - 10
THE HOBBIT 3 LÚXUS 3D 48R KL. 4 - 7
NIGHT AT THE MUSEUM 3 KL. 3.30 - 5.45 - 8
EXODUS KL. 7
MOCKINGJAY - PART 1 KL. 10.15
MÖRGÆSIR ÍSL TAL 2D KL. 4.30
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
KYSSTU rauðhaus-dagurinn eða Kiss A
Ginger Day var haldinn hátíðlegur í sjö-
unda skipti í gær. Dagurinn er andsvar við
Sparkaðu í rauðhaus-daginn sem er einmitt
haldinn í nóvember. Jú, endilega. Kyssumst
meira. Spörkum minna. Svo fór ég aðeins að
spá í þennan ímyndarhernað og tilganginn.
Gúgglaði brandara um rauðhærða sem eru
óhemju margir og ganga allir út á að rauð-
hærðir séu ófríðir og eigi enga vini: Hvern-
ig gerir þú rauðhaus ringlaðan? Með því að
senda honum vinabeiðni á Facebook. Hvað
kallast myndarlegur kærasti rauðku? Fangi.
ÉG VARÐ alls ekki fyrir mikilli stríðni
sem krakki. Var spurð einu sinni hvort
það væri kviknað í hárinu á mér. Sá hinn
sami fékk á kjaftinn og ég var ekki
spurð aftur. Nú hugsa einhverjir: Ein-
mitt! Rauðhærð og skapstór! En það er
einmitt ein mýtan af mörgum um rauð-
hærða. Rauðhærðir ku líka vera orð-
hvassir og beinskeyttir. Sagt var um
Önnu í Grænuhlíð að skapið stóra væri
í stíl við hárið.
ÉG FÉKK sjálf viðurnefnið Rauða hætt-
an þegar ég var lítil, vegna uppátækja
og skapofsakasta. Ég vil reyndar meina
að það sé of mikið gert úr meintri óþægð
vegna háralitarins. Sögurnar verða bara
svo miklu skemmtilegri. Rauðhærð, hás
og kolvitlaus, eins og lítill djöfull. Bróðir
minn var miklu brjálaðri en ég. En hann
lítur út eins og engill. Ljóshærður með
geislabaug. Það segir enginn sögurnar af
honum í jólaboðunum!
ÞAÐ ER LITRÍKT safnið af rauðhærð-
um skúrkum. Bókmennta- og kvikmynda-
sagan er yfirfull af rauðhærðum nornum,
hórum og hrekkjusvínum. Ein merkilegasta
rauðhærða söguhetjan að mínu mati er þó
vel falin í sögunni. Það er hún Lilit, fyrsta
kona Adams. En Lilit fór frá Adam því hún
þoldi ekki karlrembuna í honum og neitaði
að vera honum undirgefin. Þannig að hún
fékk sér nýjan elskhuga, sjálfan djöfulinn.
Þá var Eva sköpuð úr rifbeini Adams svo
konan yrði eftirleiðis þæg og góð. Eva var
ekki rauðhærð.
ÞANNIG að þrátt fyrir að sagan bjóði
rauðhærðum stúlkubörnum ekki upp á mjög
hefðbundnar fyrirmyndir þá eigum við alla
vega fyrsta femínistann. Koss fyrir því!
Óþekkir rauðhausar
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
E
8
-F
7
7
8
1
7
E
8
-F
6
3
C
1
7
E
8
-F
5
0
0
1
7
E
8
-F
3
C
4
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
4
0
s
_
1
2
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K