Hagskýrslur um fiskveiðar

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1939, Qupperneq 60

Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1939, Qupperneq 60
Hagstofa Islands gefur út eftirfarandi rit: I. Hagskýrslur íslands. Þar eru birtar ítariegar skýrslur um þau efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út í sjálfstæðum heftum og fast þau keypt einstök. Menn geta lika gerst áskrifendur að Hagslcýrslunum með þvi að snúa sér beint til Hagstofunnar. Áskriftargjald er 5 krónur um árið. Á bverju ári kemur út eitt hefti af verslunarskýrslum, bún- aðarskýrslum og fiskiskýrslum og venjulega auk þess eitt hefti um önnur efni. II. Hagtíðindi, mánaðarblað. Eru þar birtar mánaðarskýrslur um innflutning og útflutning, smásöluverð og ýmislegt fleira, sem ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslunum. Ennfremur bráðabirgðaskýrslur um ýmislegt, sem síðar koma um ítarlegri skýrslur. Áskriftargjald er 1 króna og 50 aurar um árið. III. Árbók Hagstofu íslands. Er þar birtur útdráttur úr þeim tal- fræðiupplýsingum, sem til eru á öllum sviðum, án þess farið sé mikið út í einstök atriði. Ennfremur eru þar allmargar töflur með alþjóðlegum yfirlitum. Af árbókinni er út kominn 1. árg. 1930. Kostar 3 krónur. IV. Manntal á íslandi árið 1703 telcið að tilhlutun Árna Magnús- sonar og Páls Vídalin. Er það prentað í heild sinni og kemur út eitt hefti á ári. Komin eru út 14 hefti, sem ná yfir alt landið nema nokkurn hluta af Árnessýslu.

x

Hagskýrslur um fiskveiðar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um fiskveiðar
https://timarit.is/publication/1127

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.