Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1939, Page 60
Hagstofa Islands
gefur út eftirfarandi rit:
I. Hagskýrslur íslands. Þar eru birtar ítariegar skýrslur um þau
efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út í
sjálfstæðum heftum og fast þau keypt einstök. Menn geta lika
gerst áskrifendur að Hagslcýrslunum með þvi að snúa sér beint
til Hagstofunnar. Áskriftargjald er 5 krónur um árið.
Á bverju ári kemur út eitt hefti af verslunarskýrslum, bún-
aðarskýrslum og fiskiskýrslum og venjulega auk þess eitt hefti
um önnur efni.
II. Hagtíðindi, mánaðarblað. Eru þar birtar mánaðarskýrslur um
innflutning og útflutning, smásöluverð og ýmislegt fleira, sem
ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslunum.
Ennfremur bráðabirgðaskýrslur um ýmislegt, sem síðar koma
um ítarlegri skýrslur. Áskriftargjald er 1 króna og 50 aurar
um árið.
III. Árbók Hagstofu íslands. Er þar birtur útdráttur úr þeim tal-
fræðiupplýsingum, sem til eru á öllum sviðum, án þess farið
sé mikið út í einstök atriði. Ennfremur eru þar allmargar töflur
með alþjóðlegum yfirlitum. Af árbókinni er út kominn 1. árg.
1930. Kostar 3 krónur.
IV. Manntal á íslandi árið 1703 telcið að tilhlutun Árna Magnús-
sonar og Páls Vídalin. Er það prentað í heild sinni og kemur
út eitt hefti á ári. Komin eru út 14 hefti, sem ná yfir alt landið
nema nokkurn hluta af Árnessýslu.