Hagskýrslur um mannfjöldaþróun - 01.01.1938, Blaðsíða 19
Mannfjöldaskýrslur 1931—1935
17*
þvi seni þeir giftast seinna. Konur, sem giftast innan 35 ára, ^ganga venju-
lega að eiga menn, sem eru eldri en þær sjálfar, og því yngri sem þær
eru, því meiri er aldursmunurinn. Konur yfir fertugt giftast aftur á móti
venjulega mönnum, sem eru yngri en þær sjálfar.
4. Skyldleiki brúðlijóna.
Parcntc de.i deux époux.
Á skýrslueyðublöðunum, sem prestarnir senda Hagstofunni, er þess
getið, hvort brúðhjónin séu þremenningar eða skyldari, og ])á tilgreint,
hvernig skyldleikanum er háttað. Að því er viðvíkur brúðhjónum, sem
eru systkinabörn eða skyldari, er varla nokkur ástæða til að efast um,
að skýrslurnar séu nákvæmar, en vera má, að eitthvað falli undan af
þeim, sem eru fjarskyldari, vegna þess að presti sé það ekki kunnugt,
og að hann spyrji þá ekki æfinlega um það. Samkvæmt skýrslunum
hefur tala skyldra brúðhjóna verið þannig:
1916—20 1921—25 1926-30 1931-
Annað hjóna systkinabarn hins 3 3 2
Svstkinabörn 52 60 42
Af öðrum og þriðja 6 10 4
l-’remenningar 22 33 17
hundraði brúðhjóna voru Samtals 96 83 106 65
Premenningar eða skyldari 3.2 2.9 3.i 1.8
Systkinabörn eða skyldari 2.o 1.9 1.8 1.2
5. Brúðkaupstíð og vígslustaður.
Mariages par mois et par lieu du mariage.
í töflu IX (bls. 34) er sýnt, hvernig hjónavígslurnar hafa skifst
niður á mánuðina árin 1931—35. En vegna þess, að mánuðirnir eru
mislangir, sýna tölurnar ekki eins greinilega mismuninn á því, hve hjóna-
vígslurnar eru tíðari suma mánuði heldur en aði-a. í eftirfarandi yfirliti
er því sýnt, hvernig 1 200 hjónavígslur hefðu skifst á mánuðina 1926—
35, ef mánuðirnir væru allir jafnlangir. Er þá í öllum mánuðum reiknað
með daglegri hjónavígslutölunni 30-faldri.
1926-30 1931—35 1926-30 1931-35
Janúar ... 57 49 Júli 107 88
Febrúar .. 45 49 Ágúst 54 52
Mars 39 44 September . . . 83 90
Apríl 63 54 Október 166 185
Maí 160 Nóvember . . . 135 115
Júni 143 174 Desember . . . 145 140
Samtals 1200 1200
Ef hjónavígslur væru jafntíðar alt árið um kring, þá mundu 100
hjónavigslur af hverjum 1 200 koma á hvern mánuð, þegar mánuðirnir
c