Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2008, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2008, Page 2
mánudagur 18. ágúst 20082 Fréttir InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is „Okkur líður nokkuð vel miðað við aðstæður,“ segir unnusti konu sem var nauðgað af yfirmanni sínum á Skagaströnd í vikunni. Maðurinn er enn í haldi lögreglunnar og hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Eins og DV greindi frá á föstudaginn þá lokkaði maðurinn, sem er á sjö- tugsaldri, konuna heim til sín undir því yfirskini að vinnu væri að hafa. Þar á maðurinn að hafa nauðgað konunni, sem er á þrítugsaldri. Kon- an reif sig lausa frá honum að sögn unnustans og komst út úr húsinu. Þaðan hélt hún heim til unnustans sem fór með hana rakleiðis til lög- reglunnar á Blönduósi. Hún gekkst síðan undir læknisskoðun bæði á Blönduósi og síðan Akureyri. Yfirlögregluþjónninn Daníel Guðjónsson staðfesti að málið væri í rannsókn hjá lögreglunni á Akureyri þó málið hefði komið upp á Skaga- strönd. „Við bíðum bara eftir lausn mála en við ætlum bara að halda áfram með okkar líf,“ segir unnustinn en hann gaf lögreglunni skýrslu nýver- ið. Unnusta hans hefur fengið nýjan réttargæslumann en liggur nú fyr- ir og reynir að jafna sig eftir meinta árás. Unnustinn segist sjálfur mjög reiður vegna málsins. Það skal þó tekið fram að í frétt sem birtist á föstudag kom fram að maðurinn væri eigandi fyrirtækisins þar sem konan vinnur íhlaupavinnu. Það er ekki rétt. Maðurinn er hins vegar starfsmaður þar. Hinn meinti nauðgari situr enn í varðhaldi. valur@dv.is Ung kona jafnar sig eftir kynferðisbrot: Meintur nauðgari í gæsluvarðhaldi Fórnalamb jafnar sig Kona sem hefur kært yfirmann sinn fyrir nauðgun er að jafna sig. Innbrot í skóla Lögreglan handtók snemma á laugardagsmorg- un fjóra unglingspilta grun- aða um innbrot í Árbæj- arskóla. Piltarnir voru í bíl á leið frá Árbænum þegar lögregla stöðvaði þá og færði til yfirheyrslu. Málið er í rannsókn en í bíl drengjanna fannst meint þýfi. Hanna Birna á byrjunarreit Samkvæmt skoðanakönnun sem Fréttablaðið birti á sunnudag nýtur nýr meirihluti Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks 26,2 prósenta fylgis í Reykjavík. Þetta er svipaður stuðningur og meiri- hluti Ólafs F. Magnússonar og Sjálfstæðisflokks naut í upphafi í janúar á þessu ári. 73,8 prósent borgarbúa segjast samkvæmt könnuninni ekki styðja nýja meirihlutann. Í skoðanakönnun Fréttablaðsins sögðust 46,8 pró- sent kjósa Samfylkingu ef kosið væri nú, 27,9 prósent Sjálfstæðis- flokk, 17,7 prósent vinstri-græna, 4,5 prósent Framsóknarflokkinn og 3,4 prósent F-lista. Yrði þetta niðurstaða kosninga fengi Sam- fylkingin átta borgarfulltrúa, Sjálf- stæðisflokkurinn fjóra og vinstri- grænir þrjá. Reynt við Marsibil Orðrómur þess efnis að Mars- ibil Sæmundardóttir, varaborgar- fulltrúi Óskars Bergssonar, sé að ganga til liðs við Samfylkinguna komst á kreik fljótlega eftir að hún lýsti því yfir að hún myndi ekki styðja nýjan meirihluta Sjálfstæð- isflokks og framsóknarmannsins Óskars Bergssonar. Sjálf segist Marsibil vel skilja að fólk spyrji sig þeirrar spurningar. Hún segist þó ekki hafa gert upp hug sinn og ætlaði að velta stöðu sinni fyrir sér í rólegheitum yfir helgina. Hún segir þó eðlilegt að fólk álykti að hún geti hugsað sér að skipta yfir í Samfylkinguna þar sem hún hafi viljað styðja Tjarnarkvartett- inn auk þess sem Samfylkingin sé augljós kostur fari svo að hún yfirgefi sinn félagslega sinnaða miðjuflokk. Þegar Marsibil var spurð hvort Dagur B. Eggertsson eða Svandís Svavarsdóttir væru byrjuð að reyna við hana og lokka hana í sínar raðir hló hún og sagði að alltaf sé verið að reyna við sig. Auglýsing í skoðun „Okkur bárust ábendingar um að auglýsingarnar væru brot á fánalögum en það þótti ekki ástæða til að grípa til aðgerða,“ segir Gunnar Jóhannsson hjá lögreglunni á Akureyri um auglýsingar Vodafone, Skítt með kerfið. Málið er nú í höndum Sýslumannsins á Akureyri sem hyggst senda það áfram til lögreglunnar í Reykja- vík. Starfsmaður embættisins segir málið svipa til kvartana yfir áfengisauglýsingum þar sem auglýsendur fara í kringum lögin, ekki er full ljóst hvort þær hafi verið ólöglegar. VON BROTTRÆK fRá SeyðiSfiRði Tíkin Von á ekki sjö dagana sæla á Seyðisfirði en bæjaryfirvöld hafa gert eiganda henn- ar, Oddnýju Lísu Ottósdóttur að fjarlægja hana úr bæjarfélaginu innan viku. Oddný er ósátt við ákvörðunina en tíkin réðist á kött með þeim afleiðingum að hann drapst, og var álitin hættuleg af bæjaryfirvöldum. Tíkin hefur þó aldrei gert neinum mein ef kötturinn er undanskilinn. „Ég er bara sár út af þessu og ég vil ekki láta vaða yfir mig,“ segir Oddný Lísa Ottósdóttir en hún fékk nýverið bréf frá heilbrigðiseftirliti Austurlands þar sem henni var gert að fjarlæga Rott- weiler-tíkina Von frá Seyðisfirði inn- an viku. Ástæðan er sú að tíkin Von beit kött til bana í bakgarði Oddnýjar og það hleypti illu blóði í bæjarstarfs- menn. Sjálf segist Oddný hafa fengið undarleg símtöl þar sem hún var beð- in um að koma með Von til hundaeft- irlitskonu bæjarins og þar átti að að skjóta tíkina. Bæjarstjóri Seyðisfjarð- ar, Ólafur Sigurðsson segir rétt að það eigi að fjarlægja tíkina úr bænum en sér enga ástæðu til þess að lóga dýr- inu. „Það er engin ástæða til þess að drepa hundinn,“ segir hann. Drap kött Upphaf málsins má rekja til þess að Von var úti að pissa í bakgarði Oddnýjar. Þá sá tíkin kött og réðist á hann og beit í hálsinn. Kötturinn drapst samstundis. Í kjölfarið fór Oddný, sem er starfar tímabund- ið í bænum, til nágranna síns sem á köttinn. Hún baðst innilegrar af- sökunar á framferði Vonar og var að eigin sögn fyrirgefið. Nágranninn kærði ekki kattardrápið og þar með taldi Oddný málið úr sögunni. En svo reyndist aldeilis ekki. Hundaeft- irlitskona tók málið upp á sína arma og hafði samband við Oddnýju. Að sögn hennar vildi hundaeftirlits- konan lóga dýrinu hið fyrsta. Sjálf var Oddný ekki á því. Faldi Von „Mér brá svo mikið að ég fór með Von í felur,“ segir Oddný en síðar kom í ljós að engin heimild var fyrir því að lóga dýrinu. Málinu var að lokum vís- að til bæjarráðs og þaðan var því vís- að til heilbrigðiseftirlits Austurlands. Nokkru síðar fékk Oddný bréf þar sem henni var tilkynnt að hún ætti að fjarlæga tíkina úr bænum innan viku frá dagsetningu bréfsins. Oddný er bæði sár og reið vegna málsins. „Tíkin er vel öguð og hefur aldrei veist að neinum að kettinum undan- skildum,“ segir Oddný sem vill ekki láta vaða yfir sig. Sætta bæjarbúa „Hundurinn er gestkomandi hér í bæ, hann er skráður á Akur- eyri og kvartanir hafa borist okk- ur,“ segir Ólafur Sigurðsson, bæj- arstjóri Seyðisfjarðar, en hann segir allnokkrar kvartanir hafa borist vegna hundsins eftir kattar- drápið. Við því sé brugðist að sögn Ólafs vegna þess að velferð bæjar- búa sé á þeirra könnu. Hann seg- ir hundinn vissulega líta út fyrir að vera sauðmeinlaus en sjálfur hefur hann kynnst tíkinni Von lítillega. Hann segir enga ástæðu til þess að lóga henni en það beri að hlusta á kvartanir bæjarbúa. Hann staðfestir að málið hafi verið tekið fyrir á bæjarráðsfundi en þar hafi mál Oddnýjar þó ekki sérstaklega verið rætt, heldur gall- ar á samþykktum um hundahald yfir höfuð. Mikið tilfinningamál „Við höfum ekki áður lent í svona löguðu með gestkomandi hunda,“ segir Ólafur og bendir á að í svona til- vikum spili tilfinningar stórt hlutverk. Hann skilur reiði Oddnýjar og segist sjálfur hafa mikla samúð með henni. „En okkur ber skylda til þess að leysa málið á einhvern hátt,“ seg- ir Ólafur sem þykir þetta hóflegasta leiðin til þess að sætta sjónarmið allra. Oddný hyggst aftur á móti mót- mæla úrskurði heilbrigðiseftirlits Austurlands. „tíkin er vel öguð og hefur aldrei veist að neinum að kettinum undanskildum.“ Oddný Lísa Ottósdóttir Ósátt við að seyðisfjarðarbær vilji tíkina Von út úr bænum. VaLur grettiSSOn blaðamaður skrifar: valur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.