Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2008, Page 8
mánudagur 18. ágúst 20088 Fréttir
FANGAKLEFAR FULLIR
Í HÓLMINUM
Fjöldi ungmenna var saman kominn á Dönskum dögum í Stykkis-
hólmi um helgina. Lögreglan hafði í nógu að snúast og voru
fangageymslur yfirfullar. Lögreglan segir að ungir aðkomumenn
hafi verið þeir sem voru mest til vandræða. Finnur Torfi Þor-
geirsson, öryggisvörður, er ósáttur við framkomu lögreglu, eftir
að hafa verið snúinn niður að tilefnislausu, að hans mati. Verk-
efnisstjóri Danskra daga er hins vegar ánægður með hátíðina.
Fjöldi manna gisti fangaklefa lög-
reglunnar á Snæfellsnesi á bæjarhá-
tíðinni Dönskum dögum um helg-
ina. Lögreglan áætlar að um fjögur
þúsund manns hafi verið saman-
komnir í Stykkishólmi um helgina.
Mikið var um ólæti og ölvun í bæn-
um, samanborið við síðustu bæj-
arhátíðir og segir upplýsingafull-
trúi lögreglunnar á Snæfellsnesi að
lögreglan hafi haft í nógu að snúast.
Svo mikill erill var hjá lögreglu á
föstudagskvöldið að þeir sem höfðu
snemma nætur verið handteknir og
látnir sofa úr sér í fangaklefa, voru
vaktir og hent út úr klefum sínum
um miðja nótt, til þess að rýma fyr-
ir nýrri næturgestum lögreglunnar,
eða þeim sem talið var meiri þörf
að hafa í haldi.
Aðkomumenn með usla
Engar alvarlegar líkamsárás-
ir komu upp, en fjölmörg slagsmál
brutust út víðsvegar um bæinn,
skömmu eftir miðnætti á föstu-
dagskvöldið. Þeir sem lögregla
þurfti að hafa mest afskipti af voru
ungmenni á aldrinum 18 til 24 ára,
langflestir frá höfuðborgarsvæðinu.
Enginn heimamaður í Stykkishólmi
þurfti að gista fangaklefa, heldur
eingöngu aðkomumenn, að sögn
lögreglu.
Danskir dagar hafa hingað til
verið fjölskylduhátíð og hafa farið
afar vel fram. Lögregla telur þann
mikla fjölda ungra gesta sem sótti
hátíðina, megi rekja til þess að yfir-
leitt hafi Danskir dagar verið haldn-
ir sömu helgi og Menningarnótt í
Reykjavík, en ekki í ár.
Verkefnisstjórinn ánægður
Daði Sigurþórsson, verkefnis-
stjóri Danskra daga, segir hins veg-
ar að hátíðin hafi tekist æðislega
vel. „Það rættist úr veðrinu, fullt af
fólki kom og það var mjög gaman.
Við erum bara ekki vön því að það
komi svona margir á besta partí-
aldri og þá meina ég fólk á milli 18
upp í 23 ára sem eru að skemmta
sér duglega. Það var slett verulega
úr klaufunum á aðfaranótt laug-
ardags, það var nokkuð um pústra
en engar alvarlegar líkamsárásir,“
segir Daði. Hann segir það verst að
tvær til þrjár rúður hafi verið brotn-
ar. „Við erum það góðu vön að það
er það sem slær okkur mest því það
hefur aldrei gerst áður. Níutíu og
níu prósent af fólkinu var í góðum
gír, það voru þrjú til fimmþúsund
manns á svæðinu og þrír teknir úr
umferð á föstudegi og þeir sömu á
laugardegi,“ segir Daði.
Ætlar að kæra lögreglu
Finnur Torfi Þorgeirsson, starf-
aði sem öryggisvörður á veitinga-
staðnum Fimm fiskar í Stykkishólmi
um helgina. Þegar hann tók pásu
frá störfum, fékk hann sér göngu-
túr niður að bryggjunni í bænum.
„Ég var að labba niður á bryggju til
þess að horfa á flugeldasýninguna.
Skyndilega birtust sex lögreglu-
menn og handtóku manninn fyrir
framan mig. Gott og vel, þeir hafa
sennilega haft gilda ástæðu til þess,“
segir hann.
Bryggjan í Stykkishólmi er þröng
og segir Finnur Torfi að því næst hafi
lögreglumennirnir gengið hröðum
skrefum að honum. „Þeir löbbuðu
bara beint á mig. Ég spurði þá hvað
væri málið. Þá greip einn lögreglu-
maðurinn í mig og dúndraði mér í
jörðina. Ég var frekar ósáttur og sagði
við þá að kurteisi kostaði ekkert.“
Finnur Torfi segir að því næst hafi
hann spurt lögreglumanninn um
lögreglunúmerið, því hann ætlaði
að leggja fram kvörtun vegna þess-
arar framkomu. „Þá brást hann illa
við og snéri upp á hendina á mér og
spurði mig hvort ég vildi koma upp
á stöð. Já, sagði ég og þá henti hann
mér í burtu.“ Finnur fékk seinna lög-
reglunúmer mannsins og ætlar í
þessari viku að leggja fram kvörtun
vegna valdbeitingar. „Ég lagði ekki
hönd á neinn, var ekki með læti og
var ekki ókurteis. Ég var bláedrú og
ég skil ekki afhverju þeir snúa upp á
hendina á mér,“ segir hann.
Íbúi ekki var við ólæti
„Ég varð ekki var við neitt en ég
frétti af einhverjum pústrum og lát-
um en ég sá ekkert slíkt sjálfur,“ seg-
ir Alfreð Viktor Þórólfsson vélstjóri.
„Mér fannst einkennandi fyrir há-
tíðina í ár hversu margir ungling-
ar voru í bænum. Ég held að það
sé út af því að Menningarnótt hef-
VAlGEIR ÖRN RAGNARS-
SON OG áSTRúN
FRIðbjÖRNSdóTTIR
blaðamenn skrifa
valgeir@dv.is og astrun@dv.is
Lögreglumaður sem
DV ræddi við í gær,
segir ástandið í Stykk-
ishólmi á föstudags-
kvöld, hafa verið það
versta sem hann hef-
ur nokkru sinni séð í
bænum.
bæjarhátíð Finnur torfi Þorgeirs-
son, segir lögregluna hafa snúið sig
niður að tilefnislausu þegar hann
var að horfa á flugeldasýninguna.
mynd - dralli.com