Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2008, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2008, Qupperneq 10
mánudagur 18. ágúst 200810 Fréttir Lottómiði sem keyptur var í söluturni í Iðufelli skilaði kaupandanum 65 milljónum: Milljónamæringur leynist í Fellunum „Allir sem vinna svona stóra vinn- inga fá fjármálaráðgjöf,“ segir Inga Huld Sigurðardóttir, markaðsstjóri Íslenskrar getspár. Á laugardaginn var einhver heppinn einstaklingur með allar fimm tölur réttar í Lottó- inu og vann því rúmar 65 milljónir króna. „Við getum ekki tilkynnt við- komandi um vinninginn því hann er ekki áskrifandi. Væntanlega kemur viðkomandi til okkar eftir helgi með miðann til þess að fá vinninginn. Þess vegna getum við ekkert sagt fyrr en eftir helgi og vonandi kemur hann eða hún bara strax á mánudaginn,“ segir Inga. Hún bætir við að áskrif- andi í Lottó borgi með kreditkorti og þá hefur Getspá allar upplýsing- ar um viðkomandi. „Þess vegna fá allir áskrifendur alltaf alla sína vinn- inga og við hringjum alltaf í þá strax á mánudegi. Vinningshafar fá svo vinningin greiddan út fjórum vikum eftir útdrátt,“ segir Inga. „Það var rosaleg sala í gær, bara metsala,“ segir Reynir Óli Smárson, starfsmaður Söluturnsins Iðufell þar sem vinningsmiðinn var seld- ur á laugardaginn. „Ég var að vinna hérna allan daginn og fékk eiginlega enga pásu. Venjulega er mjög ró- legt hérna en í gær var enginn frið- ur. Þetta voru bæði fastagestir og fólk sem ég hef aldrei séð áður sem kom hérna við og keypti Lottómiða. Ég er ótrúlega forvitinn hver keypti vinn- ingsmiðann,“ segir Reynir. astrun@dv.is Lottó Vonandi áttar vinningshafinn sig á því að hann vann 65 milljónir í Lottóinu. Tilviljun réð því að upp komst um barnaníðinginn sem dæmdur var í sex ára fangelsi fyrir helgi. Maður- inn var dæmdur fyrir ítrekuð og mjög gróf kynferðisbrot gegn fósturdóttur sinni. Þegar nágrannar manns- ins komust á snoðir um það sem gekk á innan veggja heimilisins námu þeir stúlkuna á brott. Lögregla var í kjölfarið kölluð til og í framhaldinu komst upp um athæfi mannsins. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir fólkið sem skarst í leikinn hafa axlað samfélagslega ábyrgð. Í dómnum yfir manninum kemur fram að „upp hafi komist um at- hafnir þeirra er vinkona eiginkonu ákærða hafi komið í heimsókn.“ Gróf misnotkun mannsins á tæl- enskri fósturdóttur sinni eftir að ut- anaðkomandi aðilar skárust í leik- inn. Nágrannar mannsins námu stúlkuna á brott frá heimili henn- ar mánudaginn 19. maí vitandi að misnotkun átti sér stað innan veggja heimilisins. Þegar vinkonan móð- urinnar kom í heimsókn var níð- ingurinn með stjúpdótturina uppi í rúmi. Eftir að hafa heyrt sögusagnir af því að maðurinn og stúlkan hafi sést kyssast brá vinkona móðurinn- ar á að ráð að fara með stúlkuna heim til sín og nam hana þannig á brott. Níðingurinn og eiginkona hans hringdu þá í lögregluna og málið komst allt upp. Sagðist hafa kysst hana á munninn Þegar lögreglan kom á vettvang þann 19. maí skýrði níðingurinn út fyrir lögreglu að hann hefði nýver- ið verið að kyssa fósturdóttur sína á munninn. Var níðingurinn færður á lögreglustöðina til skýrslutöku en sleppt að henni lokinni. Viku síðar mætti eiginkona mannsins á lögreglustöðina til þess að kæra. „Kvað hún dóttur sína hafa greint sér frá því að ákærði hafi stað- ið í kynferðislegum samskiptum við hana. Hafi hún haft munnmök við ákærða og strokið getnaðarlim hans. Þá hafi þau haft samfarir,“ segir ennfremur í dómnum. Þögul og kennir sjálfri sér um Stúlkan var drifin í skoðun í Barnahúsi þar sem kom í ljós að meyjarhaft hennar var rofið með óreglulegum köntum. Skoðun á barninu leiddi ennfremur í ljós að hún stundaði reglulegt kynlíf. Stúlkan mátti þola viðurstyggi- leg brot af hálfu mannsins og gat enga björg sér veitt. Fram kemur í dómnum að stúlkan eigi mjög erf- itt með að tjá sig og sé þögul. Hún kennir sér um hvernig fór fyrir fjöl- skyldunni og að hún hefði sundrast. „Erfitt er að segja til um batahorfur,“ segir í niðurlagi dómsins. Almenningur er á varðbergi „Samkvæmt barnaverndarlög- unum er tilkynningarskylda ef fólk grunar að barn sæti van- rækslu eða misþyrmingum,“ seg- ir Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu. „Ég verð að segja að þróunin undanfarin ár hefur verið jákvæð í þessum efn- um. Við erum að sjá mikla fjölg- un á tilkynningum til nefndanna sem bendir til þess að almenn- ingur er meira á varðbergi í þess- um efnum heldur en áður var og til muna meðvitaðri um mikil- vægi þess að börn verði ekki fyrir ofbeldi eða vanrækslu. Almennt er ég nokkuð ánægður með vit- und íslensks samfélags í þess- um efnum og mér finnst bæði al- menningur og fagfólk í skólakerfi og heilbrigðisþjónustu vera mun meðvitaðra en áður í þessum efn- um og þekkingu manna hefur raunverulega fleytt fram. Þessu er einnig að þakka að það er meira traust borið til barnaverndar- starfs en var áður, þannig að fólk er reiðubúnara að gera viðvart.“ Rétt viðbrögð nágranna Bragi segir þó mikilvægt að hafa í huga að það sé ekki ígildi kæru að tilkynna um svona til barnavernd- ar. „Tilkynningin er ekkert annað en beiðni til barnaverndarnefndar um að kanna hagi og aðstæður barn- anna án þess menn séu að bera sak- ir á einhvern. Þetta er frekar beiðni um að kanna aðstöðu og hagi og grípa þá inn í með stuðningsað- gerðum ef á þarf að halda.“ Aðspurður um hvort nágrannar barnsins hafi brugðist rétt við seg- ir Bragi það óyggjandi að þeir sem grípa inn í og gera viðvart axla sína samfélagslegu ábyrgð. „Þeir axla ábyrgð með mjög ánægjulegum hætti til aðstoðar þessum börnum, á því leikur ekki nokkur vafi.“ Benedikt BóAS hinRikSSon blaðamaður skrifar: benni@dv.is NágraNNar stöðvuðu NíðiNgiNN Viðbjóðslegur glæpur níðingurinn var dæmdur í sex ára fan elsi. myndin tengi t ek i efni greinarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.