Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2008, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2008, Qupperneq 16
mánudagur 18. ágúst 200816 Umræða Upp er risin Ummtíð. Fólk bragð- ar stöðugt á nýjum félagsmála- pakkaréttum og segir: Umm ..! Aug- að þverfótar varla í sjónvarpinu fyrir endalausum matreiðsluþáttum: Umm. Eilíf umfjöllun um heilsufar og næringu: Umm í útvarpi. Umm í dagblöðum. Brotið upp á nýjum skreytingum á fiskbollum: Umm. Og auðvitað er allt í samfélaginu krydd- legið. Almenningur og auðmenn hafa komist að þeirri farsælu niðurstöðu að í lífi mannsins er álíka mikið Umm það að spara og það að eyða. Þjóðin er farin að minna á menntastúlku að setja samasemmerki við ólík- legustu hluti í viðtali. Bankastjórar umma í berjamó. „Söngvarnir þagna og heiðlóan flýr ...“ en Ummið kom- ið í staðinn. Ráðherrar hjóla Umm- andi. Hver veit nema maður fari að sjá Ólaf Ragnar og Dorrit ummandi á gömlum reiðhjólum, klædd fötum frá hjálparstofnun kirkjunnar. Prest- ar Umma í kirkjum. Megas er einnig farinn að umma með eðlilegri rödd eins og mamma yfir pottunum. Hvað gerir Bubbi? Eða Árni Johnsen? Yfir hverju er fólk þá að kvarta? Álverin fara sigurför um landið ummandi meðal bænda; burt með jarmandi rollur! Fleiri bláfátækir Bretar sjást ummandi á götunum vegna frétta um að allt sé gott í Bjarkarlandi, jafn- vel ókey að lenda þar í fangelsi; betra en atvinnuleysið heima. Meðan þetta gerist engjast landsmenn af þrá eftir minni holdum en meiri fínpússun á því sem þeir láta ofan í sig. Nú monta menn sig ekki lengur yfir mestu bíla- eign á mann í heimi heldur hjóla- eign. Fólki fækkar í verslunum vegna megrunarstarfsemi og sparnaðar. Aðeins tveir kassar eru opnir í Bón- us; íslenskumælandi stúlkur á báð- um. Maður fær ekki lengur skammir frá kassastúlkum fyrir að kunna ekki austantjaldsensku. Það var engin leið að kenna þeim íslensku, tíminn naumur á kössunum, biðröðin þrýsti á með matarkörfurnar sem Ingibjörg Sólrún var sérfræðingur í á upp- gangstíma sínum, eins og hún hefði staðið eins og samasemmerki báð- um megin við búðarborðið á sínu uppvaxtarskeiði uns hún skellti sér út í frelsunina með fréttir af matarkörf- unni og misvirtum konum sem virt- ust hafa allt sitt vit í þeirri eftirlíkingu á laupi. Matarkarfan var enginn lyga- laupur, enda kvenkyns, en laupurinn lyginn og karlkyns. Svona einfalt var Ummið sem laðaði atkvæði í kjör- kassann. Og hvílík ríkisstjórn með mataruppskriftir og hagfræðitertur í hruni kapítalismans á heimsvísu. En ókey af því Gunnar Smári er kominn á ný til sögunnar, korktappinn tryggi úr heimsflösku fjölmiðlanna. Hon- um skýtur alltaf upp á strandstað eft- ir skipskaða í blaðamennsku. Ferfalt Umm! fyrir honum. Umm..! ReyniR TRausTason RiTsTjóRi skRifaR. Fáum duldist að hann var engan veginn í stakk búinn til að stjórna ... Vondra manna verk Leiðari Eftir upphlaupið í kringum meirihluta-skiptin í borginni er tímabært að menn skoði hverjir báru ábyrgð á því að Ólafur F. Magnússon var gerður að borgarstjóra. Ólafur hafði glímt við erfið andleg veikindi þegar sjálfstæð- ismennirnir Kjartan Magnússon og Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson sóttu hann, nán- ast á sjúkrabeð, og settu hann í þá stöðu að stýra Reykjavíkurborg. Sjálfur hefur Ólafur nú sagt að hann hafi verið blekkt- ur. Fáum duldist að hann var engan veginn í stakk búinn til að stjórna með nauðsynlegri reisn og festu. En samt ákvað Sjálfstæðis- flokkurinni að taka ábyrgð á gjörn- ingnum. Síðan þegar Ólafur fór út af sporinu í verkum sínum láta þeir eins og það komi á óvart. Ofbeldi er beitt til þess fyrirsjáanlega verks að fella hann af stalli. Hanna Birna Kristj- ánsdóttir, nýr leiðtogi sjálfstæðismanna, er einkar vel að því hlutverki komin. Hún virð- ist hafa það sem til þarf og lítil hætta á að hún skandalíseri í embætti sínu. En hún ber bagga fortíðar eins og aðrir flokks- menn. Hún ber sína ábyrgð á því að Ólafur var sóttur í björg til að stjórna eins og allir aðrir borgarfulltrúar sem fylgdu þáverandi forystu þegjandi út í fenið. Næstu misseri munu leiða í ljós hvort hún veldur embætt- inu eða hvort skrípaleikurinn heldur áfram. Mesta ábyrgð bera tvímenningarnir sem leiddu Sjálfstæðisflokkinn út í það fen að setja Ólaf F. Magn- ússon til valda. Það var vondra manna verk sem borgarbú- ar verða að gera upp við flokkinn í kosningum. DómstóLL götunnar Hvað finnst þér um nýjan meiriHluta í borgarstjórn? „mér finst þetta bara vera sirkus, svo óstöðugt, og ég vildi bara fá davíð aftur.“ Guðbjörg Jóhannsdóttir 60 ára sjúkraliði „mér finst hann bara allt í lagi.“ Heimir Klemensson 17 ára verkamaður „mér líst ekkert á það, þetta er bara þvæla fram og til baka, þetta er of dýrt.“ Guðmundur Gunnarsson 44 ára kokkur „mér líst vel á Hönnu Birnu, ég held hún verði fín.“ Anna Linda Sigurgeirsdóttir 40 ára vinnur hjá N1 sanDkorn n Talið er að lykilmaður við stofnun hins nýja meirihluta sé Björn Ingi Hrafnsson, fyrr- verandi leiðtogi flokksins, sem er í einkar góðu sambandi við Hönnu Birnu Kristj- ánsdóttur. Á meðan Óskar Bergs- son laug sig bláan varð- andi það að ekkert væri í gangi er hermt að Björn Ingi hafi liðkað fyrir á bak við tjöldin og lagt grunninn. Hann mun þó ekki hafa nein áform um afskipti af stjórnmálum eða annarskon- ar viðsnúning. Björn Ingi er þó kominn á sama stall og Alfreð Þorsteinsson og orðinn Don að tjaldabaki. n Sögulegar sættir urðu milli Kastljóssmannsins Helga Selj- an og Ólafs F. Magnússonar fráfarandi borgarstjóra á föstu- dagskvöldið. Áður hafði soðið upp úr á milli þeirra í Kast- ljóssþætti en að þessu sinni fór vel á með mönnum. Hermt er að eftir þáttinn hafi Ólafur slegið á létta strengi og meðal annars haft á orði við Helga að hann yrði aðstoðarmað- ur hans. Vandinn er aðeins sá að djobbið hefði aðeins enst í viku. n Félagar í Frjálslynda flokkn- um eru farnir að huga að næsta flokksþingi sínu. Menn velta fyrir sér hvað gerist þá og eru sér- staklega farnir að velta fyrir sér hvað Jón Magnússon gerir. Hann var kjörinn formaður Borgar- málafélags Frjálslynda flokks- ins í Reykjavík á dögunum. Ýmsa grunar hins vegar að það sé ekki eina formanns- tignin sem hann hefur áhuga á. Nú heyrist að hann kunni að bjóða sig fram gegn Guð- jóni Arnari Kristjánssyni, for- manni flokksins. n Fari svo að Jón Magnússon bjóði sig fram til formanns Frjálslynda flokksins, hvort sem það yrði gegn Guðjóni Arnari Kristjánssyni eða eftir að sá síðarnefndi dregur sig í hlé, kann að rætast spá frá því fyrir síðustu þingkosning- ar. Þá hélt Margrét K. Sverris- dóttir því fram að Jón Magnússon og félag- ar hans í Nýjum vett- vangi ætl- uðu sér að yfirtaka flokkinn. Meðal þeirra sem voru með Jóni í Nýjum vettvangi var Ása Jóna Flosadóttir, sem hefur verið öflug í flokksstarfi Frjáls- lynda flokksins í Reykjavík, og lagði grunn að stofnun Borg- armálafélagsins. LyngháLs 5, 110 Reykjavík Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: hreinn Loftsson framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir ritStjórar: jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: ásmundur helgason, asi@birtingur.is dv á netinu: dv.is aðalnúmer: 512 7000, ritstjórn: 512 7010, áskriftarsími: 512 7080, auglýsingar: 512 70 40. Umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. GuðberGur berGSSoN rithöfundur skrifar „Ráðherrar hjóla ummandi. Hver veit nema maður fari að sjá Ólaf Ragnar og Dorrit ummandi á gömlum reið- hjólum, klædd fötum frá hjálparstofnun kirkjunnar.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.