Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2008, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2008, Síða 28
mánudagur 18. ágúst 200828 Fókus Árið 1998 kom loksins að því að alríkislögregluparið Fox Mulder og Dana Scully úr hinum vinsælu X- Files sjónvarpsþáttum komust yfir á hvíta tjaldið. Útkoman olli því miður nokkrum vonbrigðum þar sem þvældur samsæriskenninga- og geimverulopinn var teygður út í hið óendanlega þannig að myndin reyndi talsvert á þolrif áhorfenda. Fjórum árum síðar runnu sjón- varpsþættirnir sitt skeið og síðan þá hefur ekkert spurst til þeirra Mulder og Scully. Það er að segja þangað til nú þeg- ar önnur bíómyndin skýtur upp koll- inum, svo að segja eins og skrattinn úr sauðaleggnum þar sem varla er hægt að tala um að eftirspurnin eft- ir Mulder og Scully hafi verið mik- il síðustu misserin enda lognuðust þessir annars ágætu þættir hægt og rólega út af. Þegar hér er komið sögu hefur ýmislegt gengið á hjá þeim skötu- hjúum. Þau eru bæði hætt að vinna fyrir FBI. Scully hefur klæðst hvíta læknasloppnum og starfar á sjúkra- húsi en Mulder hefur safnað mynd- arlegu alskeggi og hegðar sér eins og sérvitur einbúi og hengir úrklippur úr blöðum um yfirskilvitleg fyrir- bæri upp á vegg. Á þessum líflega vegg hangir svo vitaskuld „I Want to Believe“ veggspjaldið sem skreytti kjallarkompuna sem FBI úthlutaði honum í uphafi X-Files þáttanna. Mulder er frekar þver og fúll og kann FBI litlar þakkir fyrir málaferli sem leiddu til brotthvarfs hans frá stofnuninni. Hann lætur þó til leið- ast, meðal annars fyrir þrábeiðni Scully, og snýr aftur þegar FBI stendur frammi fyrir því að þurfa að treysta á vafasaman sjáanda í leit að horfnum alríkislögreglufulltrúa. FBI veit ekki hvort mark sé á manninum takandi og enginn er auðvitað betur til þess fallinn að sjá í gegnum svika- miðla en einmitt Fox Mulder. Mulder krefst þess þó að Scully fylgi með þannig að enn á ný fáum við að fylgjast með þeim leysa sam- an flókið mál þótt þau séu að þessu sinni hvorki vopnuð byssum né lög- regluskilríkjum. Sjáandinn sem virðist hafa hæfileika til þess að þefa uppi lík- amsparta sem tengjast rannsókn á ráni á ungri FBI konu er býsna kúnstug persóna. Hann er kaþ- ólskur prestur sem hefur veirð sviptur kjóli og kalli fyrir að mis- nota 37 unga drengi. Ekki beint geðslegur félagsskapur en Muld- er er þó tilbúinn til þess að trúa á hann. Myndin byrjar eins og dæmi- gerður X-Files þáttur og er frekar hæg í gang þannig að maður ótt- ast á tímabili að þetta langa hlé hafi dregið allan mátt úr þeim Mulder og Scully. Þegar Muld- er svo loks sýnir að kaldhæðnin hefur ekki elst af honum kemst skriður á málin og þessar áhyggj- ur gufa upp þegar löggugengið heimsækir sambýli fyrir barnan- íðinga og Mulder varar fólk við því að fara inn í hobbýherbergið. Síðan eru þetta bara fastir lið- ir eins og venjulega. Sakamálið rambar á mörkum hins mögulega og ómögulega. Mulder vill trúa en Scullly efast. Drungaleg X-Fil- es stemningin ræður ríkjum og nettur hryllingsmyndaandi svífur yfir vötnum. Þessi mynd er eigin- lega bara eins og langur miðlungs góður X-Files þáttur. Hún miss- ir hins vegar kraft við að það er komið eitthvert tómahljóð í þetta allt saman og spennan nær aldrei hámarki. X-Files, sem fyrirbæri, ber aldurinn hreinlega ekki vel. Þetta svínvirkaði í lok síðustu ald- ar en X-Files eru bara eitthvað „so 1992“. Okkur sem þykir vænt um Mulder og Scully leiðist mynd- in samt síður en svo. Duchovny og Anderson sýna gamla takta og skoski spaugfuglinn Billy Conn- olly stelur senunni ítrekað í hlut- verki skyggna barnaníðingsins. Þá birtist óvænt annar gamall kunn- ingi úr sjónvarpinu á ögurstundu og lyftir heldur betur geði dyggra aðdáenda þáttanna. Geimverusteypan sem gerði út af við fyrri myndina er sem bet- ur fer víðs fjarri að þessu sinni og myndin er bergmál af X-Files þáttunum sem gerðu út á sam- þættingu hryllings og sakamála. Maður hefur svo sem ekki yfir neinu að kvarta öðru en því að fyrir X-Files aðdáendur er þetta of lítið og kemur allt of seint. Þórarinn Þórarinsson á m á n u d e g i Frönsk stemming Það er frönsk stemming í Iðnó á menningarnótt þegar AllIAnce FrAncAIse býður upp á tónlist, ljóðalestur og líflegan dans í þessu glæsilega húsi í hjarta reykjavíkur. dagskráin hefst klukkan 18 og stendur hún til 22. Það er boðið upp á allt frá selló- og hörpuleik yfir í hressilegt franskt dansiball. Langur sjón- varpsþáttur eins og í bíómynd Landsleikurinn á laugardag minnti mig svolítið á mynd sem var sýnd á RÚV kvöldið áður. Það var íþrótta- myndin Mighty Ducks 2. Þó að leik- urinn hafi nú ekki verið jafn væmin og Danirnir aðeins betri leikarar en Emilio Estevez. En þróunin var sú sama. Í byrjun var allt í járnum þó Danirnir væru yfirleitt einu skrefi á undan. Við þurftum að hafa meira fyrir öllu og Danirnir spiluðu grófan og fastan handbolta sem okkur fannst svolítið ósanngjarn. Þá tóku Danirnir mikið af því sem ég kalla „klassískan dana“. Sem sagt að brjóta gróft af sér og taka svo fúla móðgaða gaurinn þeg- ar ýtt er við þeim. Þetta elur af sér mjög mikið hatur í þeirra garð hjá stuðningsmönnum hins liðsins sem er í þessu tilfelli Ísland. Reyndar voru Íslendingar vondu karlarnir í hokkí-myndinni Mighty Ducks 2 og voru algjör ill- menni. Um miðjan hálfleikinn komust Danir svo nokkrum mörkum yfir og leikurinn virtist vera renna frá okkur. En með góðum lokaspretti fæddist vonarglæta. Og á þeim kafla gerðist það mikilvægasta. Sigfús fékk nóg af dönsku sultunni og lét einn þeirra finna fyrir því og var rekinn útaf. Þá létu Íslendingar allri minnimáttar- kennd og tóku á baununum. Eins og Hollywood-mynd þá var dramantík- in í hámarki. Rautt spjald og fínerí. Vítakast á lokamínútunni og allt að gerast. Til að toppa þetta allt hljóp svo danska „konan“ sem þjálfar danska liðið æpandi um völlinn eft- ir á og gerði sigur/jafntefli íslenska liðsins enn sætari. Það er eitt- hvað við simma og Jóa Það er einfaldlega eitthvað við Simma og Jóa. Vissulega þekkja þá flestir enda slógu þeir í gegn hjá þjóðinni sem kynnar Idolsins þegar það var og hét. Þeir ná vel til fólks, gera gott grín, skemmta sér á kostnað hvors annars og það gerir þá mannlega og skemmtilega. Í út- varpsþætti þeirra á Bylgjunni á laug- ardagsmorgnum má heyra að þeir hafa engu gleymt. Þeir leggja gífur- legan metnað í þáttinn. Semja lög um atburði líðandi stundar og eru með mjög svo fróðlega og skemmti- lega viðmælendur. Á heimasíðu Bylgjunnar segir reyndar: „Simmi og Jói bera enga ábyrgð á því hvort við- mælendur þeirra eru ekta eður ei.“ Sama er mér, viðmælendurnir eru hver öðrum skemmtilegri og á með- an sumir þeirra eru auðheyranlega leiknir efast maður um aðra. Ljótulagakeppni, vangaveltur um lífið og tilveruna, ítrekuð gagnrýni á fermingarmynd aumingja Jóa og símtal til mömmu hans Simma eru dæmi um það sem fram fór í þessum frábæra skemmtiþætti Simma og Jóa á laugardaginn. Big Beach Sports er íþróttaleikur í anda Wii Sports sem hefur náð gríð- arlegum vinsældum og vakið mikla lukku. Sem sagt leikur sem bygg- ir upp á nokkrum smáleikjum eða íþróttum sem gerast í þessu tilfelli á strönd. Í Big Beach Sports er boðið upp á blak, boccia, fótbolta, krikket, fris- bígolf og amerískan fótbolta. Út- færslurnar á þessum íþróttum eru misskemmtilegar en spilun þeirra allra notast að sjálfsögðu við Wii- stýrikerfið og gefur það þeim kar- akter. Maður líkir eftir hreyfingun- um líkt og í Wii sports. Leikurinn getur verið nokkuð skemmtilegur sértu að spila með fé- laga og stendur frisbígolfið eða folf- ið upp úr. Boccia er einnig mjög fínt en folfið hefur vinninginn. Leikur- inn verður fljótt mjög þreyttur ef þú ert að spila einn en hann getur ver- ið þeim mun skemmtilegri sértu að keppa við vini og vandamenn. Grafík leiksins verður seint eitt- hvað til að klappa fyrir og sama bongólagið verður helvíti þreytt á endanum. Þó grafíkin í Wii Sports sé engin bylting þá er hún aulalega skemmtileg og stílhrein en ekki tekst að skapa sama andrúmsloft hér. Það er þó jafnvel þess virði að kíkja á þennan leik ef þú hefur gam- an af smáleikjaforminu. Folfið er skemmtilegt og mig dauðlangar til að spila það í alvöru eftir að hafa prófað það hér. Ásgeir Jónsson Máttlítil eftirlíking simmi og jói HHHHH bylgjan á laugardögum 9.00 - 12.00. ÚTVARP Ísland-danmörk HHHHH sjónVarPiÐ sJÓNVARP TölVuleikiR BIG BEACH SPORTS HHHHH Útgefandi: nintendo Wii kVikMYND X-FILES: I WAnT TO BELIEvE HHHHH Leikstjórn: Chris Carter Aðalhlutverk: david duchovny, gillian anderson, amanda Peet, billy Connolly Mulder og Scully Hafa yfirgefið alríkislögreglunna en láta sig hafa það að rannsaka enn eitt furðumálið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.