Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2008, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2008, Side 30
mánudagur 18. ágúst 200830 Síðast en ekki síst Sandkorn n „Eins og einhverjir hafa heyrt þá fékk ég nýlega samning við Ilmvatnsfram- leiðandann Ray Saxx. Ég fór í myndatökuna á miðvikudag- inn síðasta og hún gekk bara ágætlega,“ segir Ásdís Rán Gunn- arsdóttir á heima- síðu sinni um leið og hún kveður Ísland eftir gott frí. Á síðunni má einnig sjá brot úr myndatökunni og er óhætt að segja að stúlkan valdi að- dáendum sínum ekki von- brigðum frekar en fyrri dag- inn. Hægt verður að nálgast skandinavíska ilmvatnið sem Ásdís prýðir, í verslunum strax í september. n Sólveg Anspach er í Evr- ópuferð um þessar mundir þar sem hún kynnir mynd- ina sína Skrapp út. Myndin var lokamynd Locarno Film Festival í Sviss um helgina. Mynd- in verð- ur sýnd í Piazza Grande leikhús- inu, en frá Sviss heldur Sólveig til Frakklands. Þar verð- ur myndin sýnd 20. ágúst. Myndin, sem skartar Diddu Jónsdóttur í aðalhlutverki, fjallar um miðaldra konu sem er vinsæll kannabissali í Reykjavík og kemst í hann krappan. n Það er mikið um að vera hjá Haffa Haff þessa dag- ana. Eins og DV greindi frá fyrir helgi þá er hann á leiðinni til Seatt- le að hitta kærastann sinn í fyrsta skipti, en í vikunni tekur hann einnig við nýju starfi. Fyrir er Haffi förðunarmeistari hjá Mac, blaðamaður, og stíl- isti á Vikunni, útvarpsmað- ur á Flass að því ógleymdu að vera á fullu í tónlistinni. Því má segja að hann sé að fara taka við fimmta starfinu. Haffi vildi ekki greina frá því um hvaða starf væri að ræða, en það er spurning hvort hann ætli að reyna fyrir sér í leiklistinni næst. Hver er konan? „Fjörtíu og eins árs gömul eiginkona, móðir og stjórnmálamaður í Foss- voginum.“ Hvað drífur þig áfram? „Löngunin til að hafa góð áhrif á um- hverfið í kringum mig.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir þegar þú vaknar á morgnana? „Það fyrsta sem ég geri á morgnana er að dást að eiginmanni mínum og börnum.“ Uppáhalds matur? „Íslenskur fiskur og sushi.“ Helstu áhugamál? „Lestur góðra bóka, ferðalög og stjórnmál.“ Hver er þinn helsti hæfileiki? „Getan til að leiða saman ólík sjón- armið.“ Hvernig er tilfinningin að verða borgarstjóri? „Ég veit það ekki ennþá, það kemur í ljós á fimmtudaginn.“ Hefur það alltaf verið draumur- inn að verða borgarstjóri? „Nei.“ Hvert verður þitt fyrsta verk sem borgarstjóri? „Fyrsta verk mitt sem borgarstjóri verður að heilsa upp á samstarfs- menn mína í ráðhúsinu og síðan hyggst ég heimsækja helstu stofnan- ir borgarinnar.“ Verður byggt upp í Vatnsmýrinni? „Það verður byggt upp í nágrenni við flugvöllinn.“ Hvernig gengur að sameina vinnuna og heimilislífið? „Stundum ágætlega en of oft er það svolítið flókið.“ Hver eldar kvöldmatinn á heimilinu? „Við gerum það bæði en í seinni tíð hefur það lent oftar á manninum mínum.“ Hver er þín fyrirmynd? „Helstu fyrirmyndir mínar til þessa eru foreldrar mínir.“ Hvað er framundan? „Vonandi mjög góður tími fyrir Reykjavík og Reykvíkinga.“ dáist að eiginmanni sínum og börnum Bókstaflega „Óskar er ógeðslega fúll út í mig.“ n marsibil sæmundardóttir um ákvörðun sína að starfa ekki með borgarstjórnar- flokki sjálfstæðis- flokksins.-visir.is „Þetta hefur því miður komið á daginn.“ n Ólafur F. magnússon í yfirlýsingu sinni um kenningu þá að hann hafi verið blekktur til samstarfs við sjálfstæðis- flokkinn til að sprengja tjarnarkvart- ettinn. „Afhverju ekki að nýta alla þessa tækni sem við búum við ef við höfum tækifæri til þess.“ n söngvarinn Haffi Haff á kærasta í seattle sem hann hefur aldrei hitt en þeir spjalla saman í gegnum internetið. –dV „Ef barnið fer með þeim er ekki spurning um hvort heldur hvenær eitthvað hræðilegt gerist.“ nViðmælandi dV um að misþroska foreldrar ætli að flytja frá fjölskyldu sinni með tveggja vikna barn. -dV „Í fyrstu var ég pínu hrædd, en í dag hlakka ég til.“ n Edda Heiðrún Backman um að hún sé að fara til Bandaríkjanna að prófa nýtt lyf við taugasjúkdómnum mnd. -dV „Þetta er sögulegur dag- ur. Þetta er bylting í sam- göngumálum á Suður- landi.“ n Kristján möller samgönguráðherra. Fyrir helgi var skrifað undir samning um gerð Landeyjar- hafnar og Bakkafjöruvegar sem stytti siglingu nýs Herjólfs um hálftíma. -Fréttablaðið Skútahrauni 11 220 Hafnarfjörður S: 565 2727 www.hraunbt.is Fligel 4 Öxla vélavagn með 2 beygjuöxlum 2,70 áb ferí 3,25 Fligel Malarvagnar 2 öxla á 2 földu með lyfti hásingu segli og fl Fligel Malarvagnar 3 öxla á 1 földu með lyftihásingum og segli og fl Möguleiki á 100% fjármögnun Minningartónleikar til heiðurs Vilhjálmi Vilhjálmssyni í Laugardalshöll. Erfiðast að velja lögin „Það er fyrirtækið Bravó! sem ætlar að ráðast í þetta stórvirki og leggja í það fullan metnað,“ segir Magnús Kjartans- son um Minningartónleika Vilhjálms Vilhjálmssonar sem fram fara í Laugar- dalshöllinni þann tíunda október næst- komandi. Magnús kemur til með að vera tón- listarstjóri kvöldsins en fær að eigin sögn hjálp góðra manna við tónlistar- stjórnina enda heldur stórt verkefni að velja lög úr safni Vilhjálms sem var einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar. „Það erfiðasta við það að setja sam- an svona prógram er að velja lögin. Vil- hjálmur á sér breiðan aðdáendahóp og það þurfa náttúrulega allir að fá sitt. Það er draumur okkar allra sem stönd- um að baki þessu að þetta verði ein allra besta sýning sem sett hefur verið upp á Íslandi. Þrátt fyrir að þetta séu minn- ingartónleikar þá má ekki gleyma því að þetta er líka skemmtun og við mun- um keppast við að skemmta fólki með allri þeirri tækni sem okkur stendur til boða,“ segir Magnús og bætir því við að ráðist verði í heljarinnar uppgröft á efni og fleiru frá tímum Vilhjálms. Meðal þeirra söngvara sem fram koma á tónleikunum eru Björgvin Hall- dórsson, Bubbi Morthens, Diddú, Eg- ill Ólafsson, Ellen Kristjánsdóttir, Guð- rún Gunnarsdóttir, Helgi Björnsson, Jónsi, KK, Laddi, Lay Low, Páll Rósin- kranz, Pálmi Gunnarsson, Ragnheið- ur Gröndal og Stefán Hilmarsson. Auk þeirra kemur fram 10 manna hrynsveit, strengjasveit og kórar. „Ætli það verði ekki um fjörutíu til fimmtíu manns á sviðinu á köflum,“ segir Magnús að lok- um. krista@dv.is Tónleikastjórinn Magnús Kjartansson magnús segir erfitt að velja lög á minningartónleika Vilhjálms Vilhjálmsson- ar þar sem þau séu svo mörg. MaÐUR DagsINs Hanna Birna Kristjánsdóttir tekur formlega við sem borgarstjóri reykjavíkur síðar í vikunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.