Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2008, Síða 2
þriðjudagur 21. október 20082 Fréttir
Tekjur fimm bankastjóra á síðasta ári
námu tæpum tveimur milljörðum
króna, eða 1,7 milljörðum. Það voru
hreinar tekjur samkvæmt tekjublaði
Mannlífs sem gefið var út í ágúst.
Þessir bankastjórar eru allir hætt-
ir störfum núna eftir þjóðnýtingu
bankanna. Launahæsti bankastjór-
inn var Hreiðar Már Sigurðsson hjá
Kaupþingi sem var með tæpar átta
hundruð milljónir í tekjur á síðasta
ári. Þess má geta að þetta eru tekjur
bankastjóranna en ekki aðeins laun
þeirra fyrir reglubundin störf. Þeg-
ar rætt er um tekjur þeirra er átt við
laun og fjármagnstekjur til viðbótar,
til dæmis af kaupréttarsamningum
og sölu hlutabréfa. Árslaun banka-
stjóranna eru talsvert lægri. Sigurjón
Þ. Árnason bankastjóri hjá Lands-
bankanum var með tæpar 160 millj-
ónir í árstekjur. Þá var Lárus Welding
hjá Glitni með rúmar þrjú hundruð
milljónir. Halldór J. Kristjánsson hjá
Landsbankanum rekur lestina með
tæpar 86 milljónir króna á ári.
Tuttugu með milljarða
Tuttugu forstjórar deildu með sér
rúmlega tveimur milljörðum króna í
launa- og árangurstengdar greiðslur
á síðasta ári samkvæmt ársskýrslum.
Sá sem var með hæstu launin er Frið-
rik Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri
Straums-Burðaráss, en hann fékk
alls 412 milljónir fyrir sinn snúð. Þess
ber að geta að inni í launum Friðriks
er starfslokasamningur sem hann
gerði við bankann þegar hann lét af
störfum. Fjórir bankastjórar stærstu
viðskiptabankanna deildu með sér
tæpum hálfum milljarði í launatekj-
ur á síðasta ári. Þar af var Sigurjón
Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri
Landsbankans, með rúmlega hundr-
að og sextíu milljónir króna í laun.
Milljónir fyrir að tapa
Flest félög í Kauphöll Íslands skil-
uðu af sér ársreikningi fyrir árið 2007
og voru laun forstjóra þeirra allt frá
fimmtán milljónum króna fyrir árið
til hundraða milljóna. Þá var nokkuð
um að menn hættu störfum á árinu
og fengu þeir því starfslokagreiðsl-
ur. Mesta athygli vekur þó að þetta á
einnig við hjá því fyrirtæki sem tap-
aði um 67 milljörðum króna á árinu
og setti Íslandsmet í tapi, það er FL
Group. Þar fékk Hannes Smárason
90 milljóna króna starfslokasamn-
ing að viðbættum þeim 50 milljón-
um króna sem hann hafði hlotið í
laun og árangurstengdar greiðslur á
árinu. Hannes hætti í desember og
tók Jón Sigurðsson aðstoðarforstjóri
við af honum. Jón fékk um 32 millj-
ónir króna í laun á síðasta ári. FL
Group er nú Stoðir en fyrirtækið fór
í greiðslustöðvun eftir að Glitnir var
þjóðnýttur.
Níu hundruð milljónir í stjóra-
skipti
Skýrasta dæmið um ríkidæmi for-
stjóranna fyrir kreppu er væntanlega
þrjú hundruð milljóna króna samn-
ingurinn sem var gerður við Lárus
Welding, fyrrverandi bankastjóra
Glitnis. Þá upphæð fékk hann fyrir
það eitt að taka til starfa hjá bankan-
um. Sama ár hætti Bjarni Ármanns-
son sem bankastjóri Glitnis en hann
hafði rekið bankann í tíu ár. Hann
fór þó ekki tómhentur heim, held-
ur fékk hann 190 milljónir króna í
launagreiðslur. Inni í því er starfs-
lokasamningur. Bjarni hagnaðist
enn fremur um 391 milljón króna á
kaupréttarsamningum eftir að hann
hætti. Það eitt að losa sig við einn
bankastjóra og ráða annan kostaði
Glitni því tæpar níu hundruð millj-
ónir króna á síðasta ári.
Tími ofurlauna liðinn
„Besta samlíkingin er sennilega
sú að þegar togaraskipstjórinn kom
að landi með verðmætan farm sem
var rétt um 200 milljónir í aflaverð-
mæti var hann spurður hvort það
væri ekki gaman að koma með svona
mikið að landi. Hann svaraði því til
að þetta væri ekki nema þriðjungur
af launum tekjuhæstu bankamann-
anna,“ segir Steingrímur J. Sigfússon,
formaður vinstri-grænna, um ofur-
laun forstjóra á Íslandi. Hann seg-
ir þessi laun hafa verið hluta af því
sjúka ástandi sem hér ríkti, og all-
ir tóku þátt í. Þar sé enginn undan-
skilinn. Hann segir það þó sárast að
þessir menn borguðu ekki eðlilega
skatta til samfélagsins, þökk sé fyrri
ríkisstjórn sem afnam hátekjuskatt.
„Ég held að tími ofurlauna sé lið-
inn hér á landi,“ segir Steingrímur að
lokum.
Þjóðverjar hafna bónusum
Bónusgreiðslur eru umdeildar
víða um veröld. Til að mynda sagði
Josef Ackerman, aðalbankastjóri
Deutsche Bank, sem var sá launa-
hæsti af forstjórum þrjátíu stærstu
fyrirtækjanna í Þýskalandi, að hann
ætlaði að fórna bónusgreiðslum
þessa árs vegna þess að bankinn
glímir nú við mesta fjármálavanda
frá því í kreppunni miklu 1929. Þetta
á líka við um bankastjóra nokkurra
fjárfestingarbanka í Þýskalandi; þeir
verða af bónusgreiðslum þessa árs
vegna ástandsins.
„Þessu fordæmi verða margir
aðrir að fylgja,“ sagði Michael Glos,
fjármálaráðherra Þýskalands, við
þingmenn í Berlín fyrir nokkrum
dögum. „Þetta eru fyrstu ánægjulegu
merki þess að forstjórar hafi ákveðið
að stinga ekki bónusgreiðslum í eig-
in vasa.“
Afturkræfar bónus-
greiðslur
Mörg dæmi
eru þess víða
um lönd,
til dæm-
is í Banda-
ríkjunum,
að banka-
stjórar af-
þakki bón-
usgreiðslur
eða verði
af þeim
vegna ákvörðunar bankastjórna.
Alessandro Profumo, aðalbanka-
stjóri ítalska bankans UniCredit SpA,
verður af árangurstengdum bónus-
greiðslum á þessu ári þar sem bank-
inn nær engan veginn markmiðum
sínum um arðsemi. Á síðasta ári fékk
hann liðlega 9 milljónir evra í sinn
vasa, þar af 6 milljónir evra í bónus-
greiðslur og aðrar árangurstengdar
greiðslur, eða sem svarar 900 millj-
ónum íslenskra
króna sé
miðað við núverandi gengi.
Bandarísk yfirvöld hafa ákveð-
ið að rannsaka gjaldþrot nokkurra
banka. Athugaðar verða bónus-
greiðslur til yfirmanna og gerð krafa
um að þær verði afturkræfar 2 ár aft-
ur í tímann.
Vill ekki tala um þessa hluti
Svör hafa ekki enn fengist um
bónusgreiðsl- ur og
laun for-
stjóra á
þessu
ári
Þeir fengu milljarða í ofurlaun
Alls fengu nokkrir forstjórar á Íslandi rúmlega tvo milljarða
króna í laun á síðasta ári en árstekjur þess hæsta slöguðu hátt
upp í hálfan milljarð. Bankastjórarnir fjórir deildu með sér tæp-
um hálfum milljarði í launatekjur. Það kostaði Glitni tæpar 900
milljónir að losna við bankastjóra og fá nýjan. Launahæsti maður
síðasta árs var Friðrik Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri Straums-
Burðaráss. Einn bankastjórinn, Lárus Welding, fékk þrjú hundr-
uð milljónir fyrir að hefja störf. Tekjur bankastjóranna eru þó
mun hærri en launatölurnar einar og sér segja til um.
VALur greTTissoN
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Forstjórarnir í Kauphöllinni
Forstjóri Árslaun í milljónum króna
Sigurgeir brynjar kristgeirsson, Vinnslustöðin 5,0
erlendur Hjaltason, exista 33,8
jón karl ólafsson, icelandair 34,0
þórður Sverrisson, Nýherji 34,7
Sigurður Valtýsson, exista 40,5
Hörður arnarson, Marel 45,0
Hannes Smárason, FL group 50,0
ari edwald, 365 54,0
baldur guðnason, eimskip 61,0
guðmundur Hauksson, SProN 61,0
jón Sigurðsson, Össur 64,0
Xavier govare, alfesca 68,0
Árni Pétur jónsson, teymi 83,0
William Fall, Straumur 94,0
Hreiðar Már Sigurðsson, kaupþing 110,0
Lárus Welding, glitnir 114,0
Magnús jónsson, atorka 117,0
Ágúst guðmundsson, bakkavör 130,0
Sigurjón þ. Árnason, Landsbankinn 163,5
Friðrik jóhannsson, Straumur-burðarás 412,0
inni í þessum tölum eru laun og árangurstengdar greiðslur. Laun þeirra Lárusar
Welding og Williams Fall eru framreiknuð þar sem þeir hófu störf á þessu ári.
Starfslokagreiðslur eru undanskildar í tilfellum þeirra sem hafa hætt störfum,
líkt og jóns karls ólafssonar og Hannesar Smárasonar. þá ber að geta þess að
laun Lárusar Welding eru miðuð við síðasta ár og koma þau til með að lækka
um helming á þessu ári vegna ákvörðunar stjórnar glitnis.
sigurður einarsson og
Hreiðar Már sigurðsson Í
ráðherrabústaðnum við hrun
íslenska efnahagskerfisins.
Lárus Welding Fékk þrjú hundruð
milljónir fyrir að byrja að vinna. að auki
fékk hann 114 milljónir í árslaun.
sigurjón Þ. Árnason annar banka-
stjóri Landsbankans vill ekki ræða
meintar bónusgreiðslur sem ráðamenn
fengu um síðustu mánaðamót.
Hannes smárason Fékk fimmtíu
milljónir fyrir að tapa rúmlega sextíu
milljörðum hjá FL group á síðasta ári.
Tíu tekjuhæstu bankamenn landsins
1. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri kaupþings 741,6
2. bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri glitnis 516
3. Friðrik jóhannsson, fyrrverandi forstjóri Straums-burðaráss 373,2
4. Steinþór gunnarsson, forstöðumaður verðbréfamiðlunar Landsbankans 354
5. Lárus Welding, forstjóri glitnis 318
6. jón diðrik jónsson, fyrrverandi forstjóri glitnis á Íslandi 296,4
7. guðmundur Örn þórðarson, framkvæmdastjóri Property group í danmörku 268,8
8. jón kristinn oddleifsson, Landsbankanum 258
9. tómas kristjánsson, fyrrverandi starfsmaður glitnis 256,8
10. Finnur reyr Stefánsson, fyrrverandi starfsmaður glitnis 242,4
tekjur í milljónum króna árið 2007