Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2008, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2008, Blaðsíða 3
þriðjudagur 21. október 2008 3Fréttir „Það hefur eng- in ákvörðun verið tekin en mér sjálf- um finnst eðlilegt að þessi mál séu uppi á borðinu,“ segir Ágúst Ólafur Ágústsson, varafor- maður Samfylk- ingarinnar. DV sagði frá því í gær að engin svör hafi enn bor- ist frá Fjármála- eftirlitinu við fyr- irspurn DV um launakjör bankastjóra nýju rík- isbankanna. Í þættinum Í bítið á Bylgjunni í gærmorgun sagð- ist Ágúst Ólafur vilja skoða það hvort launaleynd yrði aflétt. Ágúst sagði í samtali við DV í gær að á fundi með bankastjórum í gærmorgun hefði engin ákvörðun verið tekin um hvort og þá hvenær laun- in yrðu gefin upp. Hann sagði að almennt væru launakjör starfsmanna hlutafélaga í eigu ríkis- ins ekki uppi á borðinu en hann segist sjálfur vilja beita sér fyrir því að það verði endurskoðað. „Okkur gefst nú tæki- færi til að byrja á núlli og hafa þessi mál gegnsæ. Það tæki- færi eigum við að nýta okkur,“ seg- ir Ágúst en bendir þó á að útsvar allra launa sé aðgengilegt í álagn- ingarskrá hjá skattstjóra sem út kemur síðla sumars ár hvert. DV hefur einnig óskað eftir því að fá uppgefin kjör nefndarmanna í skilanefndum Nýja Glitn- is og Nýja Landsbank- ans. Svar við þeirri fyrir- spurn hefur heldur ekki borist en í dag er vika síðan fyrst var eftir því leitað. baldur@dv.is Varaformaður Samfylkingarinnar um nýju bankastjórana: Vill launin upp á borðið mánudagur 20. október 20086 Fréttir InnlendarFréttIrritstjorn@dv.is Íhuga að stefna lögreglunni „Ef smygl hefði verið um borð hefði verið löngu búið að koma því frá borði þar sem skipið var búið að vera í höfninni í þrjá sólarhringa,“ segir Guðmundur Sigvaldason, verksmiðjustjóri Þörungaverk- smiðjunnar á Reykhólum. Í síðustu viku urðu starfsmenn verksmiðjunnar mjög óánægðir með störf lögreglunnar í sýslunni þegar hún fór um borð í danska skipið Hein sem hafði legið við höfn í þrjá daga. Guðmundur er mjög ósáttur við þessar aðgerð- ir lögreglunnar og íhugar að fara í mál vegna þeirra, þar sem gífurlegt tjón hafi orðið á vinnslu fyrirtækis- ins. „Ég veit ekki hvort við förum í mál, það er ekki búið að taka neina afstöðu í því. Menn voru mjög óánægðir því maður hefur ekki kynnst svona áður. Menn hafa komið hingað og farið í skip og við feng- ið að halda áfram en ekki með svona læti og dóna- skap.“ Hann segir að lög- reglumenn hafi verið með dónaskap við starfsmenn við höfnina. „Það var einn starfsmaður sem fór til þeirra en þeir voru bara með skæting við hann og sögðu að þetta væru verk- lagsreglur einhverj- ar,“ segir Guðmundur sem furðar sig á vinnubrögðum lögreglunnar. Önundur Jóns- son, yfirlögreglu- þjónn á Vest- fjörðum, segir að aðgerðin hafi ver- ið ósköp eðlileg tollavinna. „Það er mjög algengt að svona sér gert, þó að við séum búnir að fara um borð í skip, þá fylgjumst við með skipum þegar þau ferðast um,“ segir Ön- undur en enginn smyglvarning- ur fannst um borð í skipinu. Hann segir að tveir lögreglumenn hafi farið á staðinn til að kanna skipið. Aðspurður hvort vinnutap hafi orðið í verksmiðjunni segir hann ekki svo vera. „Lögreglan stöðvaði enga vinnu, það þurfti þess ekkert. Það er engin ástæða til að stöðva vinnu þegar lögreglan fer um borð nema það hafi verið einhver vand- ræði.“ bodi@dv.is Lögregla að störfum guðmundur er ósáttur við að starfsemi fyrirtækis hans hafi raskas t vegna aðgerða lögreglu. DV hefur nú í sex daga árangurslaust óskað eftir upplýsingum um launa- kjör nýrra bankastjóra Landsbank- ans og Glitnis, sem og laun þeirra sem sitja í og leiða skilanefndir bank- anna þriggja sem þjóðnýttir voru á dögunum. Samkvæmt upplýsingum frá við- skiptaráðuneytinu hefur Fjármála- eftirlitið þessi mál á sinni könnu. Þar fengust einnig þær upplýsingar að þessar upplýsingar ættu ekki að vera leyndarmál. Frá Fjármálaeftirlitinu hafa eng- in svör borist önnur en þau að haft verði samband við blaðamann þegar svör við fyrirspurninni liggja fyrir. Ókunnugt um samninga Geir H. Haarde forsætisráðherra var spurður um launakjör nýrra bankastjóra og skilanefnda á blaða- mannafundi sem hann hélt í síð- ustu viku. Hann sagði að starfs- menn Fjár- málaeftir- litsins hefðu annað og þarfara við tímann að gera en að velta fyr- ir sér launum þessa fólks. Í því samhengi má benda á að eftir að ríkið tók rekst- ur bankanna yfir greiðast þau laun úr vösum almennings. Geir sagðist raunar ekki vita hvort búið væri að semja um launakjör við bankastjór- ana og skilanefndirnar. Í stað þess að ganga úr skugga um stöðu mála eftir fundinn sagði Geir: „Áfram Ísland!“ og brá sér á völlinn. Með á þriðju milljón í fyrra Bankastjórar Nýja Glitnis hf. og Nýja Landsbankans hf. eru þær Birna Einarsdóttir, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Glitnis, og Elín Sigfúsdóttir, fyrrver- andi forstöðumaður fyrirtækjasviðs hjá Landsbankanum. Samkvæmt tekjublaði Mannlífs var Birna með 2.587.442 krónur á mánuði að jafn- aði í fyrra. Tugir milljóna í laun Tekjur Elínar er ekki að finna í tekjublaðinu en þó er ljóst að fráfarandi banka- stjórar Lands- bankans áttu vel fyrir salti í grautinn. Sigurjón Þ. Árnason var með rúmar 13 milljónir á mán- uði og Halldór J. Kristjánsson var með rúmar 7 milljónir. Ekki er búið að ráða nýjan bankastjóra Kaupþings en fráfarandi forstjóri var skatta- kóngur Íslands í fyrra; hafði 64 millj- ónir á mánuði. Forstjóri Glitnis, Lár- us Welding, hafði 27 og hálfa milljón á mánuði. Tími ofurlauna liðinn Eins og fram hefur komið fór DV þess á leit við Fjármálaeftirlitið að fá veittar upplýsingar um launakjör þeirra sem eru í skilanefndum bank- anna. Það hefur enn ekki verið upp- lýst en í áðurnefndu tekjublaði kem- ur fram að Árni Tómasson, sá sem leiðir skilanefnd Glitnis, var með tæpar 1,4 milljónir í tekjur á mánuði í fyrra, örlítið minna en Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármála- eftirlitsins, sem hafði um eina og hálfa milljón í tekjur á mánuði í fyrra. Hafa ber í huga að forsætisráðherra hef- ur lýst því yfir að tími ofurlauna sé liðinn og því óvarlegt að ætla að mánaðartekjur hinna nýju bankastjóra, eða formanna skilanefnda, verði jafnháar og tekj- ur forvera þeirra. Eru launin lEyndarmál? Geir H. Haarde BALDUR GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar baldur@dv.is Launin lækka tími ofurlauna er liðinn, að sögn ríkisstjórnar- innar. ekki hefur fengist uppgefið hver laun nýs bankastjóra eru. Geir H. Haarde forsætisráð- herra Segist ekki vita hvort búið sé að semja við bankastjóra. Tugmilljónir á mánuði Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri glitnis, hafði 27 milljónir á mánuði í fyrra. Hvetja til jafnréttis „Jafnréttisráð telur að jafnrétt- issjónarmiða hafi ekki verið fylli- lega gætt við skipun í svokallaðar skilanefndir undanfarna daga og vikur. Ráðið hvetur stjórnvöld og öll þau sem nú hafa fjöregg lands og þjóðar í hendi sér til góðra verka og til að virða jafnréttislög í hvívetna.“ Þetta segir í álykt- un sem Jafnréttisráð sendi frá sér. Þar segir einnig að gríðar- legar efnahagshamfarir feli í sér tækifæri til breytinga og umbóta, kynjasjónarmið þurfi að hafa að leiðarljósi og að atvinnuleysi megi ekki bitna harðar á öðru kyninu. Ráðið fagnar því að fyrstu kvenbankastjórarnir hafi nú ver- ið ráðnir en segir að betur megi ef duga skuli. Tvöföldunin komin í gagnið Kristján L. Möller sam- gönguráðherra vígði í gær tvöfalda Reykjanesbraut frá Hafnarfirði að Njarðvík. Tvöföldun Reykjanes- brautar hefur tekið tæp sex ár. Framkvæmdir hófust í janúar 2003 og lauk fyrri hluta framkvæmdanna í október ári síðar. Tafir urðu hins vegar á seinni hluta tvöföldunarinnar vegna þess að Jarðvélar sögðu sig frá verkinu eftir að félagið komst í þrot. Nú er loks hægt að hleypa umferð á báðar ak- reinar, hálfum mánuði áður en menn gerðu ráð fyrir við síðustu áætlun. ásmundur hjálpar Geir Geir H. Haarde forsætisráð- herra hefur nú fengið Ásmund Stefánsson ríkissáttasemjara til liðs við sig. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að áfallið á fjármálamarkaði kallaði á fjölþætt viðbrögð jafnt á vett- vangi ríkisstjórnarinnar sem hinna ýmsu stofna samfélagsins. Hlutverk Ásmundar verður að treysta yfirsýn, vera tengiliður og tryggja betur tengsl forsæt- isráðherra og ríkisstjórnar- innar og bæta samhæfingu þeirra mörgu sem að starfinu koma. 20 % afmælisafsláttur af öllum hefðbundnum myndatökum og stækkunum í október. Nú er um að gera að panta stax Mynd - ljósmyndastofa í 25 ár. MYND Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði S: 565 4207 www.ljosmynd.is 20. o tóber 2008 Vill gegnsæi Ágúst ólafur Ágústsson segir ekki ljóst hvort laun nýju bankastjóranna verði gefin upp. Samkvæmt heimildum DV er talið fullvíst að Alþjóðagjaldeyris- sjóðurinn (IMF) leggi til verulegan niðurskurð ríkisútgjalda til þess að mæta fyrirsjáanlegum tekju- samdrætti ríkissjóðs eftir banka- hrunið og miklar skuldbindingar því samfara. Jafnframt er búist við að gripið verði til skattahækkana og þannig verði farin blönduð leið til þess að draga úr högginu og komast hjá fjöldauppsögnum opinberra starfsmanna, svo sem innan mennta- og heilbrigðis- kerfisins. IMF leggur til að stýri- vextir verði áfram háir til þess að draga úr útstreymi gjaldeyris sem IMF kann að lána íslenska ríkinu. Þá eru einnig mestar líkur á því að gengi krónunnar verði látið fljóta enn um sinn að ráði IMF. Sérfræðingar IMF fara nú yfir uppfærðar tölur um stöðu ís- lenska þjóðarbúsins. Fullvíst er talið að ríkisstjórnin taki ákvörð- un um það á ríkisstjórnarfundi fyrir hádegi í dag að sækja um aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins enda í fá önnur hús að venda. Tak- ist samkomulag um slíkt er eins víst að boðað verði til þingflokks- funda stjórnarflokkanna þar sem fjallað verður um neyðarástand íslenska efnahagslífsins og vænt- anlega aðstoð sjóðsins. Geir H.Haarde forsætisráð- herra segir að skilyrði þau sem IMF kunni að setja snerti fyrst og fremst efnahagsstefnuna sem þjóðin verði hvort sem er að gang- ast undir. Hann vill ekki staðfesta frétt Financial Times í gær um að þegar hafi tekist samkomulag um 6 milljarða dollara lán, þar af eins milljarðs dollara lán frá IMF, en seðlabankar Norðurlanda og Japans standi undir hinum hluta lánsins. Samkvæmt heimildum DV gætti andstöðu innan forystu Sjálfstæðisflokksins varðandi samstarf við IMF og lán frá sjóðn- um. Úr þeirri andstöðu hefur dregið eftir því sem næst verður komist enda brýnt talið að end- urreisa sem fyrst trúverðugleika gjaldeyrisviðskipta og íslenska fjármálakerfisins. Financial Times kveðst hafa upplýsingar frá fólki sem þekki vel til viðræðna IMF og íslenskra stjórnvalda. Tekið er fram að skil- yrði IMF fyrir lánveitingunni snúi fyrst og fremst að bankakerfinu og endurreisn þess, ríkisfjármál- um og gengismálum. „Engar kröfur eru gerðar um grundvall- arbreytingar á innviðum velferð- arkerfisins,“ hefur FT eftir einum viðmælanda sínum. Viðmælendur DV úr röðum stjórnarflokkanna segja óhugs- andi að gangast undir skilyrði sem felist í veðsetningu auðlinda eða skuldaskilum við aðrar þjóð- ir umfram það sem lög mæla fyr- ir um. johannh@dv.is Búist er við ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aðstoð Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins í dag: Opinber störf í hættu og skattahækkanir Geir H. Haarde Forsætisráð- herra segir að skilyrði þau sem iMF kunni að setja snerti fyrst og fremst efnahagsstefnuna sem þjóðin verði hvort sem er að gangast undir. Þeir fengu milljarða í ofurlaun „Ég held að tími ofurlauna sé liðinn hér á landi.“ þrátt fyrir að DV hafi spurt banka- stjóra Landsbankans að því. Þeir vildu ekki tjá sig um meintar bónus- greiðslur upp á tíu milljarða á árinu. Þá vildu þeir ekki tjá sig um hvort ráðamönnum bankans hefðu verið borgaðar bónusgreiðslur um mán- aðamótin september/ október. „Ég vil ekki tala um þessa hluti,“ svaraði Sigur- jón Þ. Árnason við það tækifæri. Samkvæmt heim- ildum DV hafa skilanefndir bank- anna ráðið óháð skoðunarfyrirtæki til þess að fara yfir rekstur bankanna. Ársuppgjörs og niðurstöðu er að öll- um líkindum ekki að vænta fyrr en í byrjun næsta árs. Hannes Smárason Fékk fimmtíu milljónir fyrir að tapa rúmlega sextíu milljörðum hjá FL group á síðasta ári. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsso Forstjóri Vinnslustöðvarinnar, er fátækasti forstjórinn en hann fékk aðeins fimmtán milljónir í árslaun á síðasta ári. Hreiðar Már Sigurðsson bankastjóri kaupþings fékk 110 milljónir í árslaun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.