Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2008, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2008, Page 6
„Veistu ég drep þig þegar ég sé þig aumingi,“ segir í skilaboðum í síma sem sautján ára stúlka fékk að láni hjá símafyrirtækinu Nova. Stúlkan hefur verið með síma hjá Nova um nokkurt skeið. Nýlega bilaði síminn hennar og hún fékk lánssíma á meðan hennar var í viðgerð hjá fyrirtækinu. Henni brá þegar hún byrjaði að nota símann en þar voru vistuð skilaboð, að öllum líkindum frá því að annar viðskipta- vinur hafði fengið símann að láni hjá fyrirtækinu. Vægast sagt eru það vafa- söm samskipti sem fóru tveggja ein- staklinga á milli. Skilaboð á borð við: „Þú ert ræfillinn, sé þig á morgun. Kíki í heimsókn á þig. Vittu til aum- ingi!“ eru í símanum. Stelpan undrast mjög að hafa fengið símann frá fyrir- tækinu án þess að búið væri að eyða skilaboðum úr honum. Liv Bergþórsdóttir, framkvæmda- stjóri Nova, segir að fyrirtækið reyni að koma í veg fyrir slík tilvik. „Við erum með mjög öruggt ferli í þessu en vissulega geta okkur orðið á mistök, við þyrftum að fá að skoða þetta til- tekna atvik betur,“ segir Liv og bend- ir á að auðvelt er að hreinsa símana. „Þetta er ofsalega einföld aðgerð, við straujum símana og þá fer símaskrá- in, allur tölvupóstur og skilaboð út af símanum. Ég verð að fá að kanna hvort einhver mistök hafa átt sér stað í þessu tilfelli.“ Hún segir að bilanir á farsímum séu mjög algengar. „Það er þekkt staðreynd að símtæki bila, það eru ákveðnir standardar í því. Til dæmis er Nokia með fjögurra pró- senta bilanatíðni og svipað hjá Sony Ericsson. Við veitum lánstæki á með- an síminn er í viðgerð,“ segir Liv. þriðjudagur 21. október 20086 Fréttir InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is 20 % afmælisafsláttur af öllum hefðbundnum myndatökum og stækkunum í október. Nú er um að gera að panta stax Mynd - ljósmyndastofa í 25 ár. MYND Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði S: 565 4207 www.ljosmynd.is Yfirlýsing Björgólfsfeðga um að þeir myndu ganga í ábyrgð fyrir skuld- um Eimskipafélagsins vegna gjald- þrots XL Leisure ferðaheildsalans er að engu orðin í kjölfar greiðslu- stöðvunar Samson-hópsins. Ríkið tók ekki yfir ábyrgð Samson, segir ríkisendurskoðandi. Staða Eimskips hefur verið nokkuð mikið til umfjöllunar en verðmæti fyrirtækisins hefur hríð- fallið undanfarið. Samson eignar- haldsfélag átti í kringum 90 millj- arða króna í Landsbankanum en þeir hurfu í kjölfar þjóðnýtingar bankans. Samson var félag Björ- gólfsfeðga um eignir í Lansbank- anum. Ábyrgð á hendi ríkisins „Ábyrgðin var hjá Samson eign- arhaldsfélagi en þegar ríkið greip til sinna aðgerða gagnvart Lands- bankanum varð félagið eignalaust og fór í greiðslustöðvun, þannig að þetta er á hendi ríkisins núna,“ segir Ásgeir Friðgeirsson, talsmað- ur Björgólfs Guðmundssonar fyrr- verandi eiganda Landsbankans. Ásgeir segir alveg ljóst að Samson geti ekki ábyrgst skuldir XL Leisure sem féllu á Eimskipafélagið í kjöl- far gjaldþrots fyrrnefnda fyrirtæk- isins. Hann segir ábyrgðina vera komna í hendur ríkisins og hún sé nú á hendi skiptastjóra Landsbank- ans, Gunnars Sturlusonar. „Svona er staðan á þessu og við höfum bara ekkert um kröfuna að segja lengur, þannig er það bara,“ segir Ásgeir. Fellur ekki á ríkið Þorfinnur Ómarsson, upplýs- ingafulltrúi Fjármálaeftirlitsins, seg- ir ábyrgð Samson ekki vera komna yfir til ríkisins. „Þó að Landsbank- inn fari til ríkisins þýðir það ekki að Samson fari til ríkisins,“ segir hann við DV. Sveinn Arason ríkisendurskoð- andi tekur í sama streng og Þorfinn- ur. „Ríkið tekur enga ábyrgð á Eim- skip. Ábyrgðin hvílir hjá Eimskip og ef félagið getur ekki greitt hana þegar eftir henni verður leitað, þá er næsta skrefið að þeir fara bara á hausinn,“ segir Sveinn. Hann tekur fram að Eimskip hafi lýst því yfir að félag- ið standi traustum fótum og að það verði bara að standa áfram á eigin fótum. Hann segir Samson-hópinn hafa ætlað að ábyrgjast greiðsluna ef einhver krefðist þess að Eim- skip þyrfti að standa í skilum. Þó að Björgólfsfeðgar geti ekki staðið við ábyrgðina fellur hún ekki á ríkið. Óvissa Breski ferðaheildsalinn XL Leisure varð gjaldþrota í byrjun september. Félagið var að einhverju leyti í eigu Íslendinga. Þeirra á meðal Magnúsar Stephensen. Eim- skipafélagið var í ábyrgð fyrir yfirtöku stjórnenda á XL Leis- ure Group. Ábyrgðin nam um 280 milljónum Bandaríkjadala, eða sem nemur ríflega 25 milljörð- um íslenskra króna. Ábyrgðin féll á Eimskipafélagið, en Björgólfsfeðg- ar lýstu því yfir að þeir myndu taka hana yfir. Í kjölfar þess að Samson eignarhaldsfélag, sem fór með 41% hlut í Landsbankanum, óskaði eftir greiðslustöðvun kom upp óvissa varðandi það hvort ábyrgðin félli aft- ur á Eim- skipa- félagið. Nú er það orðið ljóst. „Ábyrgðin hvílir hjá eimskip og ef félagið getur ekki greitt hana þegar eftir henni verður leitað, þá er næsta skrefið að þeir fara bara á hausinn.“ ÓSKABARNIÐ ÁN ÁBYRGÐARMANNS JÓn BJarki magnússon blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is Ætlaði að ábyrgjast björgólfur guð- mundsson og sonur hans björgólfur thor ætluðu sér að ganga í ábyrgð fyrir skuldum eimskipafélagsins en af því verður ekki. Vill inn í hlýjuna „Það er orðið ansi kalt í veðri. Ég vona að ég komist þarna inn. Annars hreinlega veit ég ekki hvað verður,“ segir Lárus Björn Svavarsson, betur þekktur sem Lalli Johns. Hann er einn þeirra fjölmörgu sem eru heimilislaus- ir og vonast til þess að fá inni í einu þeirra smáhýsa sem komið hefur verið fyrir á Fiskislóð. Gert er ráð fyrir að komandi íbúar geti flutt þar inn í þessari viku. Lalli fer í viðtal í dag hjá Þjónustumið- stöð Reykjavíkurborgar: „Þá fæ ég vonandi svar um hvað verður,“ segir hann. Ekki náðist í neinn hjá velferð- arsviði borgarinnar sem gat svar- að til um hvort húsnæðinu hefði þegar verið úthlutað. Bara fimmtíu nýir bílar Nýskráningum ökutækja hefur fækkað stórkostlega. Fimmtíu ökutæki voru nýskráð frá 10. til 17. október. Á sama tíma í fyrra voru 543 ökutæki nýskráð og hefur því fækkað gríðarlega. Er hér um að ræða nýskráningar og eigendaskipti allra ökutækja, ekki bara bif- reiða. Ljóst er að nýskráningar ökutækja á fyrstu 326 dögum ársins, frá 1. janúar til 17. okt- óber, eru samtals 17.063 en á sama tímabili í fyrra voru 24.932 ökutæki nýskráð. Veikur verjandi Aðalmeðferð í máli Jóns Ólafssonar, sem átti að fara fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, var frestað. Að sögn Ragnars Aðal- steinssonar, verjanda Jóns, urðu veikindi eins verjandans til þess að málinu var frestað. Jón hefur verið ákærður fyrir meiriháttar brot á skattalögum en hann er sakaður um að hafa skilað röngum skattframtölum á árunum 1998 til 2002. Þannig á Jón að hafa komið sér undan greiðslu 360 milljóna þegar hann var stjórnarformaður Norður- ljósa. Auk Jóns eru þeir Hreggvið- ur Jónsson, Ragnar Birgisson og Símon Ásgeir Gunnarsson ákærð- ir í málinu en aðalmeðferð mun fara fram 3. nóvember. Ábyrgðin sem Björgólfsfeðgar lofuðu að ganga í fyrir Eimskipafélagið er fallin aftur á Eimskip. Í kjölfar þess að Samson eignarhaldsfélag fór í greiðslustöðvun varð ljóst að félagið gat ekki ábyrgst skuldir Eimskips vegna XL Leisure. Ríkið mun ekki ganga í ábyrgð fyrir Eimskip þrátt fyrir að það hafi tekið yfir Landsbankann sem var að mestu í eigu Samson. Eimskip verður að standa á eigin fótum, segir ríkisendurskoðandi. Engin ábyrgð eimskipafélagið þarf að standa á eigin fótum en ábyrgð Samson eignarhaldsfélags er einskis verð í kjölfar þess að félagið fór í greiðsluþrot. Sautján ára stelpa fékk óvæntan „bónus“ með lánssíma frá Nova: Stúlka fékk farsíma með hótunum úr síma stúlkunnar Lánssíminn var fullur af hótunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.