Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2008, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2008, Qupperneq 10
þriðjudagur 21. október 200810 Neytendur Lof&Last n Lofið fá starfsstúlkurnar á Heilsugæslustöð- inni í grafarvogi. þær sýna mikinn liðleika og reyna eftir bestu getu, þrátt fyrir að mikið sé að gera, að koma til móts við þarfir hvers og eins. jafnvel þó mikið sé að gera. Viðmót sem margir mega taka sér til fyrirmyndar. n Lastið fær krónan á granda fyrir rangar hilluverðmerkingar. kona keypti Neutral color þvottaefni og tók eftir því þegar hún kom út að strimillinn sýndi 699 krónur. Hilluverð sagði hins vegar 490 krónur. konan fékk endurgreiddan mismuninn en blöskraði hversu mikill hann var. Álfheimum 158,90 178,60 Bensín dísel Öskjuhlíð 157,20 176,90 Bensín dísel Skógarhlíð 157,40 178,10 Bensín dísel Skemmuvegi 155,10 174,80 Bensín dísel Starengi 155,20 174,90 Bensín dísel Vatnagörðum 157,20 177,10 Bensín dísel Skógarseli 157,40 177,10 Bensín díselel d sn ey t i Matarkarfan er ódýrust í Bónus en dýrust í 11-11 samkvæmt nýrri verðkönnun DV. Matarkarf- an er 100 prósentum dýrari í 11-11 en í Bónus. Athygli vekur að mesti verðmunur á einstökum vörutegundum fer upp í 175 prósent frá einni búð til annarrar. Verðið í Bónus var 13 prósentum lægra en í Krónunni. Mikið er um að hilluverð sé rangt og því þurfa neytendur að vara sig. 100% munur á matarkörfunni Á meðan aurinn er lítill og bensínverð hátt er bráðsniðugt ráð að reyna að sameina í bíla efir bestu getu. Hvort sem um vinnufélaga eða hjón er að ræða getur borgað sig að minnka notkun á bensíni. Sérstaklega ef fólk á tvo bíla. það þarf ekki að taka upp á því að losa sig við bílinn til að reyna að græða peninga eða losna við vexti. bara slaka á notkun hans um tíma. Sá sem á bíl sem eyðir 8 lítrum á hundraðið og fer með tvo tanka á mánuði getur sparað sér 20 þúsund krónur. þær nýtast í margt annað á krepputím- um. Vinnufélagar geta samið um að skipta akstri á milli sín. Bónus er ódýrasta matvöruversl- unin á höfuðborgarsvæðinu ef marka má verðkönnun DV sem framkvæmd var í gær. Matarkarfan í Krónunni, þar sem hún var næstódýrust, var tæpum 13 prósentum dýrari. Matarkarfan í dýrustu versluninni, 11-11, var 100 prósentum dýrari en í ódýrustu versl- uninni. Verðmunur á einstökum vöruteg- undum milli verslana er frá 37 pró- sentum upp í 175 prósent og sýnir það gríðarlegan verðmun hjá versl- unum höfuðborgarsvæðisins. Ódýrast í Bónus Matarkarfan kostar 2.164 krónur í Bónus en 4.336 krónur í 11-11 þar sem hún er dýrust. Verðið miðast við þær níu vörutegundir sem til voru í öllum verslunum í sömu pakkn- ingum. Meðal þeirra eru kíví, kína- kál, kaffi, brauð, popp og gos. Reynt var að kanna verð á hveiti, múslí og ör- bylgjupoppi en það var ekki hægt vegna þess að annaðhvort var það ekki lengur til sölu eða ekki til. Athygli vek- ur að sú verslun sem oftast hef- ur verið dýrasta verslunin á höfuð- borgarsvæðinu, 10- 11, var einungis þriðja dýrasta búðin samkvæmt könnuninni. Lágvöruverðsverslanirnar Töluverðu munar á Bónus og þeim verslunum sem næstar koma. Krónan og Kaskó voru 12 og 15 prósentum dýrari. Matarkarfan í Krónunni var 280 krónum dýrari en í Bónus og í Kaskó var hún 329 krónum dýrari. Ein- ungis tveimur prósent- um munar á Krónunni og Kaskó sem sýnir að bilið milli Bónuss og Krónunnar er að breikka. Næst á eftir komu Fjarðarkaup, Nettó og Hagkaup en þar var karf- an á bilinu 19 til 25 prósent- um dýrari en í Bónus. Svokall- aðar klukkubúðir eru svo langdýrastar, þar mun- ar 50 til 100 prósent- um. Mesta athygli vekur að versl- unin 10-11 sem oftast hefur verið dýrasta verslunin er nú sú þriðja dýrasta og munar 50 prósentum hjá henni og dýrustu versluninni, 11-11. Einstakar vörur Verðmunur á einstökum vöruteg- undum er mikill. Minnsti verðmunur er 37 prósent og sá mesti 175 prósent. Verðmunur á Smjörva er 37 prósent. Hann kostar 174 krónur í Bónus en 239 krónur í 11-11. Þess má geta að í verð- könnun sem gerð var þann 25. mars síð- astliðinn kostaði Smjörvinn í Bónus 143 krón- ur og hefur því hækkað um 22 pró- sent. Mesti verðmunurinn var á fjölskyldu- stærð af Orville-ör- bylgjupoppi en sá verðmunur var ekki tekinn með í lokaút- reikninga því Krón- an hefur hætt sölu á þessari stærð. Ódýrust var pakkningin í Bónus á 253 krónur en dýrust í 11-11 á 698 krónur. Í könnuninni sem gerð var þann 25. mars kostaði poppið 498 krónur í 11-11. Það hefur því hækkað um 40 prósent. Misræmi í verðmerkingum Algengast er að verðmunur fari yfir 50 prósent og í nokkrum tifelllum yfir 100 prósent. Það sýnir að gríðar- legur verðmunur er á milli einstakra verslana á höfuðborgarsvæðinu og ljóst að bilið milli lágvöruverðsversl- ana og dýru búðanna er mjög breitt. Við gerð könnunarinnar bar á misræmi í hilluverði og kassaverði. Í Hagkaup sýndi hilluverðmerking að kílóverð á kínakáli var 379 krón- ur. Þegar á kassa var komið var verð- ið aftur á móti 299 krónur. Sama er að segja um 10-11 en hilluverðmiði sýndi að 400 grömm af rjómaosti áttu að kosta 329 krónur. Við kassa var verðið 399 krónur. Kemur á óvart Jóhannes Gunnarsson, formað- ur Neytendasamtakanna, segir verð- muninn á milli verslana gríðarlegan. „Óneitanlega bregður manni í brún neytendur@dv.is umSjóN: ÁSdíS björg jóHaNNeSdóttir, asdisbjorg@dv.is Neyten ur Tölvukaupendur súpa hveljur yfir verðhækkunum undanfarið Tugþúsunda hækkun á Tölvum Fall krónunnar og gríðarlega óhag- stætt gengi hefur orðið til þess að margir tilvonandi tölvukaupendur verða fyrir áfalli þegar stigið er inn í tölvuverslanir í dag. Ein vinsælasta fartölvan undanfarin misseri hefur verið Macbook-tölvan frá Apple. Þann 15. júlí var verðlistaverðið á ódýrustu týpunni af hvítri 13“ Macbook frá App- le IMC á Íslandi 134.990 krónur. Hafi tölvukaupendur hikað við að skella sér á eina slíka nýverið gæti þeim brugðið illa þegar litið er á verðlista Apple í dag þar sem sama tölva er nú verðsett á 185.990 krónur. Tilboðsverð hefur þó verið á þessari sömu tölvu undanfarið þar sem verð hefur farið niður í allt að 120 þúsund krónum. Hækkunin nem- ur því tugum þúsunda. „Allar verðlagningar hjá okkur eru háðar krónunni,“ segir Íris Richter, rekstrar- og markaðsstjóri Apple IMC á Íslandi. Hún segir að gríðarlegt fall krónunnar undanfarið útskýri þess- ar miklu hækkanir sem nú hafa dun- ið á. En þessi mikla hækkun nú á sér líka aðra skýringu. „Ég held að ástæð- an fyrir því að fólk upplifi þetta sem mikið sjokk núna er að við vorum of sein að hækka. Við reyndum að halda verðlaginu á tilteknum tímapunkti sem hefði í raun átt að kalla á hækk- un miðað við gengi. Innkaupaverðið hækkaði og þegar við brugðumst loks við varð stökkið stærra. Staðreynd- in er samt sem áður sú að við höfum hækkað minna en krónan hefur fall- ið. En við munum lækka um leið og gengið jafnar sig, það er alveg ljóst,“ segir Íris og vonast til að um tíma- bundið ástand sé að ræða enda ekki skemmtileg staða fyrir fyrirtæki sem eru í innflutningi að vörur hækki nú upp úr öllu valdi. Apple kynnti á dögunum nýja út- gáfu af hinum vinsælu Macbook- og Macbook Pro-fartölvum og segir Íris að von sé á þeim til landsins. „Von- andi verður gengið það hagstætt að þær tölvur verði spennandi kostur fyrir fólk.“ verðkönnun í matvöruverslunum 20. október: Fjarðarkaup Hagkaup Samkaup Bónus Krónan 10-11 11-11 Kaskó Nóatún Nettó Ódýrast Dýrast Munur Pillsbury hveiti 368 Ekki til 492 Ekki til 389 429 579 400 509 Ekki til 368 579 57,34% Appelsín 2.l 189 205 197 158 179 305 298 169 215 159 158 305 93,04% Axa fibersund múslí 298 406 424 hætt 349 399 498 332 407 344 298 498 67,11% Orville natural 6 pack 298 369 389 253 hætt 529 698 219 589 339 253 698 175,89% Stjörnu ostapopp 141 143 147 96 125 209 235 114 149 97 96 209 117,71% Merrild 103 kaffi 479 495 575 474 475 729 679 475 496 477 474 729 53,80% McVities Hob nobs 226 228 212 189 239 199 309 195 258 199 189 309 63,49% Smjörvi 185 208 199 174 186 219 239 177 209 180 174 239 37,36% Kíví kílóverð 359 449 397 245 346 399 539 347 489 349 245 539 120,00% Myllan hveitbrauð 285 279 398 225 269 379 409 189 375 239 189 409 116,40% Kínakál kílóverð 389 299 369 298 299 399 485 299 485 299 298 485 62,75% Rjómaostur 325 384 377 305 326 399 445 309 385 315 305 445 45,90% Samtals á vörum sem til voru í öllum verslunum 1769 1847 1952 1436 1665 1994 4336 2493 3650 2653 2164 4336 100,37% Finnur þú Fyrir því að verðlag á matvöru haFi hækkað? „já, eins og til dæmis verðið úti í búð.“ HEiða ÓsKarsdÓttir, 67 Ára öryrki „já, það er mjög greinilegt. Ég held til dæmis hér á flatkökum sem kosta 119 krónur, þær kostuðu áður langt undir 100 krónum.“ Áslaug Ólafsdóttir, 69 ára Við mælum með... ...að sameinast um bíla matarkarfan 20.10.08 Munur á körfum Bónus 2.164 Krónan 2.444 12,94% Kaskó 2.493 15,20% Fjarðarkaup 2.578 19,13% Nettó 2.653 22,60% Hagkaup 2.690 24,31% Samkaup 2.871 32,67% 10-11 3.237 49,58% Nóatún 3.650 68,67% 11-11 4.336 100,37% 30% 28%

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.