Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2008, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2008, Page 12
þriðjudagur 21. október 200812 Fréttir Bartie úthýst af Facebook Bartie Bristle var fyrsti leikfanga- bangsinn sem skráði sig hjá Face- book-netsamfélaginu og sem slíkur fékk hann heilmikla athygli. Leik- fangabangsa-safnarar vildu ólmir og uppvægir setja hann á vinalist- ann sinn. En núna, eigandanum Amöndu Middleditch til mik- illa vonbrigða, hafa stjórnendur Facebook rift félagsaðild Barties og segja að hún gangi í bága við reglur. „Þeir sendu mér snubótt- an póst og sögðust óttast að Bartie gæti þóst vera einhver annar og það byði hættunni heim,“ sagði Middledich, sem býr til leikfanga- bangsa fyrir verslun í Hampshire á Englandi. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur ver- ið mikið í fréttum, bæði innan lands og utan. Ástæður þess má fyrst og fremst rekja til þess ástands sem ríkir í efnahagsmálum heimsbyggðarinnar, með örfáum utantekningum. Nú hriktir í stoðum Alþjóðagjald- eyrissjóðsins vegna máls sem varðar framkvæmdastjóra sjóðsins, Dom- inique Strauss-Kahn. Hann sætir nú rannsókn vegna meintrar misnotk- unar stöðu sinnar og er honum gefið að sök að hafa átt í kynferðislegu sam- bandi við konu sem gegndi háttsettu embætti hjá sjóðnum. Rannsóknin gæti ekki komið á verri tíma því stofnunin þyrfti að geta beitt sér af fullum þunga til að takast á við efnahagskreppuna og leita leiða til að aðstoða þjóðir heims að stand- ast hana. Runnið undan rifjum Banda- ríkjamanna Franskir stjórnmálamenn og emb- ættismenn brugðust reiðir við orðr- óminum um Strauss-Kahn, en hann birtist fyrst í bandaríska blaðinu Wall Street Journal. Frakkar sökuðu banda- rísk stjórnvöld um skítlegt eðli fyrir að hafa beint augum fréttamanna að inn- anhússrannsókn Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins á málefnum Strauss-Kahns. Samkvæmt Wall Street Journal stóð Strauss-Kahn í sambandi við Pir- oska Nagy, háttsettan embættismann í Afríkudeild sjóðsins sem ólst upp í Ungverjalandi. Sambandinu mun hafa lokið þegar eiginmaður Nagy, Mario Blejer hagfræðingur og fyrr- verandi forseti seðlabanka Argentínu, hnaut um rafrænan póst sem varpaði ljósi á það. Nagy yfirgaf Alþjóðagjaldeyrissjóð- inn og einn þáttur rannsóknarinn- ar snéri að því hvort hún hefði feng- ið hærri lokagreiðslu en manneskja í hennar starfi átti rétt til. Talsmaður sjóðsins Masood Ah- med sagði að allar ásakanir þyrfti að rannsaka, ekki síst þær sem vörðuðu háttsetta stjórnendur. En rannsóknin hefur sætt gagnrýni innan Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins vegna þess að vitn- eskja um hana hafði ekki náð eyrum allra stjórnarmanna þegar Wall Street Journal hóf fyrirspurnir sínar. Undarleg tímasetning Það gætir víða reiði í Evrópu vegna málsins. Einn franskur hagfræðingur og ráðgjafi ríkisstjórnar Frakklands sagði að tímasetning umfjöllunar Wall Street Journal væri athygli verð. „Það er mjög undarlegt að hún komi á sama tíma og fólk er að tala um Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og þá forystu sem hann tekur í að skapa nýja skipan efnahagsmála á heimsvísu, sem mun ekki endilega koma auðugum, hægri- sinnuðum Bandaríkjamönnum til góða,“ sagði hagfræðingurinn í viðtali við breska blaðið Observer. Strauss-Kahn er fyrrverandi fjár- málaráðherra Frakklands, háttsettur í franska sósíalistaflokknum og þekktur fyrir hófsamar vinstriskoðanir. Í yfirlýs- ingu sem hann sendi frá sér fyrir helgi sagði hann að atvikið sem átti sér stað í einkalífi hans hefði gerst í janúar og hann hefði aldrei misnotað stöðu sína sem framkvæmdastjóri sjóðsins. Þetta er í annað skipti undanfar- in ár sem stór alþjóðleg fjármálastofn- un lendir í hringiðu hneykslis. Í júní á síðasta ári sagði Paul Wolfowitz af sér sem forseti Alþjóðabankans í kjöl- far hneykslis vegna stöðuveitingar og launhækkunar sem hann samþykkti til handa starfsmanni bankans. Um var að ræða förunaut Wolfowitz til langs tíma. Með ráðum gert Þungavigtarmenn í frönskum stjórn- málum slógu skjaldborg um Domin- ique Strauss-Kahn og á meðal þeirra var hægriflokkur Nicolas Sarkozy, for- seta Frakklands. Dominique Strauss- Kahn getur meðal annars þakkað Sar- kozy stöðu sína sem framkvæmdastjóra sjóðsins. Fjölmargir sósíalistar lýstu yfir stuðningi við Strauss-Kahn, og er hann af mörgum þeirra álitinn mögulegur forsetaframbjóðandi, sé horft til fram- tíðar. Fjöldi fréttaskýrenda í Frakklandi setti spurningarmerki við tímasetningu þessa fárviðris sem skollið hefur á Al- þjóðagjaldeyrissjóðnum. Sumir leiddu líkur að því að upplýsingum um rann- sóknina, sem framkvæmd er að undir- lagi tuttugu og fjögurra manna stjórn- ar sjóðsins með aðstoð frá Rússum og Bandaríkjamönnum, hafi verið lekið af af ásetningi til að „slá hann út af lag- inu“. Frakkar út af sporinu Þetta hliðarspor Dominique Strauss- Kahn hefur ekki aðeins stefnt í hættu hans eigin ferli heldur einnig angrað forseta Frakklands, Sarkozy, sem ætl- aði Frökkum stóran hlut í því að koma á nýrri efnahagsskipan í heiminum. Þegar Sarkozy sótti George W. Bush Bandaríkjaforseta heim um helgina kynnti hann, fyrir hönd Evrópusam- bandsins, sýn sína á efnahagsskipan framtíðarinnar, en sú mynd gengur í bága við óskir Bandaríkjamanna. Sarkozy brást reiður við því að mál- efni Strauss-Kahns væru til umfjöllunar í bandarísku dagblaði, því þó Sarkozy og einhverjir innanbúðarmenn í París hefðu vitneskju um þau hafði ekki ver- ið ástæða til að ætla að þeim yrði slegið upp í fjölmiðlum. Sarkozy var Strauss-Kahn sárreið- ur fyrir að hafa varpað fyrir róða eig- in ferli og möguleikanum til að hjálpa Frakklandi á alþjóðavettvangi, með því að flækja sér í óæskilegt samband utan hjónabands. Móðursýki púrítana Franskir fjölmiðlar eru þekktir fyr- ir að láta einkalíf ráðamanna sig litlu varða, sem er í hróplegri andstöðu við þá bandarísku. Bandamenn Strauss- Kahns og nokkrir fréttaskýrendur hafa vísað þessu máli hans á bug og segja að um sé að ræða móðursýki sem rekja megi til púrítanskra bandarískra stofnana. Claude Askolovitch, ritstjóri franska dagblaðsins Le Journal du Di- manche, sagði: „Ástarævintýrið kann að vera fáránlegt í samanburði við ör- lög jarðar, en það snertir hjarta menn- ingar bandarísku ríkisstjórnarinnar og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.“ Auk ástarævintýrisins hafa einn- ig vaknað upp spurningar um hvort Strauss-Kahn hafi beitt áhrifum sín- um þegar Nagy yfirgaf stofnunina og haft fingurna í að hún fékk gott starf í Þróunarbanka Evrópu í Lundún- um. Strauss-Kahn hefur neitað hvoru tveggja. Hvað sem því líður er óhætt að segja að ástarævintýrið hefur dreg- ið dilk á eftir sér og hvað sem öll- um stuðning heima fyrir líður er ljóst að Strauss-Kahn gekk í bága við þær ströngu hegðunarreglur sem á að hafa í heiðri í alþjóðlegum stofnunum. Sjálfvirkum símhringingum rign- ir nú yfir kjósendur í lykilfylkjum frá Colorado til Ohio. Tilgangur símhring- inganna er að útmála Barack Obama, forsetaframbjóðanda demókrata, sem öfgamann sem á í vinfengi við hryðju- verkamenn og Hollywood-stjörnur. Símtölin hefjast á orðunum: „ Halló. Ég er að hringja fyrir John McCain og RNC [landsnefnd rep- úblikana].“ Herferðin hefur vakið upp hörð viðbrögð í herbúðum bæði rep- úblikana og demókrata og hafa ein- staklingar úr beggja röðum fordæmt kosningavél McCains fyrir að grípa til aðgerða sem hann hefur ítrekað for- dæmt. Frá fjölda fylkja hafa borist fregn- ir um nokkrar útgáfur sjálfvirku sím- hringinganna þar sem drepið er á málum allt frá fóstureyðingum til hryðjuverka. Í þeirri útgáfu þar sem lögð er áhersla á fullyrðingar um tengsl Obama við hryðjuverk er skírskotað til sambands hans við Willam Ayers, róttækling frá sjöunda áratugnum. Í þeirri útgáfu segir: „Þú þarft að vita að Barack Obama hefur unnið náið með hryðjuverkamanninum Bill Ayers, en samtök hans sprengdu þinghús Bandaríkjanna, Pentagon, heimili dómara og drápu Bandaríkjamenn. Demókratar munu koma á kerfi vinstrisinna ef þeir ná völdum í Wash- ington.“ Barack er einnig vændur um að setja Hollywood ofar Bandaríkjun- um. Þeir sem hafa gagnrýnt þessa aðferð McCains hafa bent á yfirlýst andstöðu hans við hana frá því þegar hann beið lægri hlut fyrir George W. Bush árið 2000. Þegar slagurinn harðnaði voru kjósendur í Suður-Karólínu spurðir, með sömu aðferð og McCain beitir nú: „Væri líklegra eða ólíklegra að þú kys- ir John McCain... ef þú vissir að hann hefði feðrað óskilgetið þeldökkt barn?“ Aðspurður sagði McCain að ekki væri hægt að bera aðferð hans sam- an við það sem hann varð fyrir barð- inu á árið 2000, og sagði að fullyrð- ingarnar um Obama væru réttmætar og sannleikanum samkvæmar. Árið 2000 fordæmdi McCain aðferðina og sagði: „Ég lofa ykkur að ég hef aldrei, og mun aldrei, koma nálægt svona pólitískum aðferðum af þess- um toga.“ John McCain greip til baráttuaðferðar sem hann fordæmdi: Varð John McCain að falli árið 2000 John McCain Samherjar hans hafa gagnrýnt hann fyrir baráttuaðferðina. KolBeinn þoRsteinsson blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is „Það er mjög undarlegt að hún komi á sama tíma og fólk er að tala um Al- þjóðagjaldeyrissjóðinn og þá forystu sem hann tekur í að skapa nýja skip- an efnahagsmála á heimsvísu, sem mun ekki endilega koma auðugum, hægrisinnuðum Bandaríkjamönnum til góða,“ sagði hagfræðingurinn í við- tali við breska blaðið Observer. Þrátt fyrir að Dominique strauss-Kahn, framkvæmdastjóri Alþjóðagjald- eyrissjóðsins, njóti ákveðins stuðnings heima fyrir er ljóst að með ást- arævintýri sínu hefur hann gert Frakklandi skráveifu. Líkur hafa verið leiddar að því að fréttum af innanhússrann- sókn sjóðsins á máli Strauss-Kahns hafi verið lekið af Bandaríkjamönnum sem hugnast ekki sú leið sem Evr- ópusambandið vill fara vegna efnahagskreppunnar. Framhjáhald veikir stöðu Frakka Dominique strauss-Kahn Hliðarsporið hefur dregið dilk á eftir sér og kemur upp á yfirborðið á undarlegum tíma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.