Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2008, Blaðsíða 12
þriðjudagur 21. október 200812 Fréttir
Bartie úthýst af Facebook
Bartie Bristle var fyrsti leikfanga-
bangsinn sem skráði sig hjá Face-
book-netsamfélaginu og sem slíkur
fékk hann heilmikla athygli. Leik-
fangabangsa-safnarar vildu ólmir
og uppvægir setja hann á vinalist-
ann sinn. En núna, eigandanum
Amöndu Middleditch til mik-
illa vonbrigða, hafa stjórnendur
Facebook rift félagsaðild Barties
og segja að hún gangi í bága við
reglur. „Þeir sendu mér snubótt-
an póst og sögðust óttast að Bartie
gæti þóst vera einhver annar og
það byði hættunni heim,“ sagði
Middledich, sem býr til leikfanga-
bangsa fyrir verslun í Hampshire á
Englandi.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur ver-
ið mikið í fréttum, bæði innan lands
og utan. Ástæður þess má fyrst og
fremst rekja til þess ástands sem ríkir í
efnahagsmálum heimsbyggðarinnar,
með örfáum utantekningum.
Nú hriktir í stoðum Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins vegna máls sem varðar
framkvæmdastjóra sjóðsins, Dom-
inique Strauss-Kahn. Hann sætir nú
rannsókn vegna meintrar misnotk-
unar stöðu sinnar og er honum gefið
að sök að hafa átt í kynferðislegu sam-
bandi við konu sem gegndi háttsettu
embætti hjá sjóðnum.
Rannsóknin gæti ekki komið á
verri tíma því stofnunin þyrfti að geta
beitt sér af fullum þunga til að takast
á við efnahagskreppuna og leita leiða
til að aðstoða þjóðir heims að stand-
ast hana.
Runnið undan rifjum Banda-
ríkjamanna
Franskir stjórnmálamenn og emb-
ættismenn brugðust reiðir við orðr-
óminum um Strauss-Kahn, en hann
birtist fyrst í bandaríska blaðinu Wall
Street Journal. Frakkar sökuðu banda-
rísk stjórnvöld um skítlegt eðli fyrir að
hafa beint augum fréttamanna að inn-
anhússrannsókn Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins á málefnum Strauss-Kahns.
Samkvæmt Wall Street Journal
stóð Strauss-Kahn í sambandi við Pir-
oska Nagy, háttsettan embættismann
í Afríkudeild sjóðsins sem ólst upp
í Ungverjalandi. Sambandinu mun
hafa lokið þegar eiginmaður Nagy,
Mario Blejer hagfræðingur og fyrr-
verandi forseti seðlabanka Argentínu,
hnaut um rafrænan póst sem varpaði
ljósi á það.
Nagy yfirgaf Alþjóðagjaldeyrissjóð-
inn og einn þáttur rannsóknarinn-
ar snéri að því hvort hún hefði feng-
ið hærri lokagreiðslu en manneskja í
hennar starfi átti rétt til.
Talsmaður sjóðsins Masood Ah-
med sagði að allar ásakanir þyrfti að
rannsaka, ekki síst þær sem vörðuðu
háttsetta stjórnendur. En rannsóknin
hefur sætt gagnrýni innan Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins vegna þess að vitn-
eskja um hana hafði ekki náð eyrum
allra stjórnarmanna þegar Wall Street
Journal hóf fyrirspurnir sínar.
Undarleg tímasetning
Það gætir víða reiði í Evrópu vegna
málsins. Einn franskur hagfræðingur
og ráðgjafi ríkisstjórnar Frakklands
sagði að tímasetning umfjöllunar Wall
Street Journal væri athygli verð.
„Það er mjög undarlegt að hún
komi á sama tíma og fólk er að tala um
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og þá forystu
sem hann tekur í að skapa nýja skipan
efnahagsmála á heimsvísu, sem mun
ekki endilega koma auðugum, hægri-
sinnuðum Bandaríkjamönnum til
góða,“ sagði hagfræðingurinn í viðtali
við breska blaðið Observer.
Strauss-Kahn er fyrrverandi fjár-
málaráðherra Frakklands, háttsettur í
franska sósíalistaflokknum og þekktur
fyrir hófsamar vinstriskoðanir. Í yfirlýs-
ingu sem hann sendi frá sér fyrir helgi
sagði hann að atvikið sem átti sér stað
í einkalífi hans hefði gerst í janúar og
hann hefði aldrei misnotað stöðu sína
sem framkvæmdastjóri sjóðsins.
Þetta er í annað skipti undanfar-
in ár sem stór alþjóðleg fjármálastofn-
un lendir í hringiðu hneykslis. Í júní
á síðasta ári sagði Paul Wolfowitz af
sér sem forseti Alþjóðabankans í kjöl-
far hneykslis vegna stöðuveitingar og
launhækkunar sem hann samþykkti til
handa starfsmanni bankans. Um var að
ræða förunaut Wolfowitz til langs tíma.
Með ráðum gert
Þungavigtarmenn í frönskum stjórn-
málum slógu skjaldborg um Domin-
ique Strauss-Kahn og á meðal þeirra
var hægriflokkur Nicolas Sarkozy, for-
seta Frakklands. Dominique Strauss-
Kahn getur meðal annars þakkað Sar-
kozy stöðu sína sem framkvæmdastjóra
sjóðsins.
Fjölmargir sósíalistar lýstu yfir
stuðningi við Strauss-Kahn, og er hann
af mörgum þeirra álitinn mögulegur
forsetaframbjóðandi, sé horft til fram-
tíðar.
Fjöldi fréttaskýrenda í Frakklandi
setti spurningarmerki við tímasetningu
þessa fárviðris sem skollið hefur á Al-
þjóðagjaldeyrissjóðnum. Sumir leiddu
líkur að því að upplýsingum um rann-
sóknina, sem framkvæmd er að undir-
lagi tuttugu og fjögurra manna stjórn-
ar sjóðsins með aðstoð frá Rússum og
Bandaríkjamönnum, hafi verið lekið
af af ásetningi til að „slá hann út af lag-
inu“.
Frakkar út af sporinu
Þetta hliðarspor Dominique Strauss-
Kahn hefur ekki aðeins stefnt í hættu
hans eigin ferli heldur einnig angrað
forseta Frakklands, Sarkozy, sem ætl-
aði Frökkum stóran hlut í því að koma á
nýrri efnahagsskipan í heiminum.
Þegar Sarkozy sótti George W. Bush
Bandaríkjaforseta heim um helgina
kynnti hann, fyrir hönd Evrópusam-
bandsins, sýn sína á efnahagsskipan
framtíðarinnar, en sú mynd gengur í
bága við óskir Bandaríkjamanna.
Sarkozy brást reiður við því að mál-
efni Strauss-Kahns væru til umfjöllunar
í bandarísku dagblaði, því þó Sarkozy
og einhverjir innanbúðarmenn í París
hefðu vitneskju um þau hafði ekki ver-
ið ástæða til að ætla að þeim yrði slegið
upp í fjölmiðlum.
Sarkozy var Strauss-Kahn sárreið-
ur fyrir að hafa varpað fyrir róða eig-
in ferli og möguleikanum til að hjálpa
Frakklandi á alþjóðavettvangi, með því
að flækja sér í óæskilegt samband utan
hjónabands.
Móðursýki púrítana
Franskir fjölmiðlar eru þekktir fyr-
ir að láta einkalíf ráðamanna sig litlu
varða, sem er í hróplegri andstöðu við
þá bandarísku. Bandamenn Strauss-
Kahns og nokkrir fréttaskýrendur hafa
vísað þessu máli hans á bug og segja
að um sé að ræða móðursýki sem
rekja megi til púrítanskra bandarískra
stofnana.
Claude Askolovitch, ritstjóri
franska dagblaðsins Le Journal du Di-
manche, sagði: „Ástarævintýrið kann
að vera fáránlegt í samanburði við ör-
lög jarðar, en það snertir hjarta menn-
ingar bandarísku ríkisstjórnarinnar og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.“
Auk ástarævintýrisins hafa einn-
ig vaknað upp spurningar um hvort
Strauss-Kahn hafi beitt áhrifum sín-
um þegar Nagy yfirgaf stofnunina og
haft fingurna í að hún fékk gott starf
í Þróunarbanka Evrópu í Lundún-
um. Strauss-Kahn hefur neitað hvoru
tveggja.
Hvað sem því líður er óhætt að
segja að ástarævintýrið hefur dreg-
ið dilk á eftir sér og hvað sem öll-
um stuðning heima fyrir líður er ljóst
að Strauss-Kahn gekk í bága við þær
ströngu hegðunarreglur sem á að hafa
í heiðri í alþjóðlegum stofnunum.
Sjálfvirkum símhringingum rign-
ir nú yfir kjósendur í lykilfylkjum frá
Colorado til Ohio. Tilgangur símhring-
inganna er að útmála Barack Obama,
forsetaframbjóðanda demókrata, sem
öfgamann sem á í vinfengi við hryðju-
verkamenn og Hollywood-stjörnur.
Símtölin hefjast á orðunum: „
Halló. Ég er að hringja fyrir John
McCain og RNC [landsnefnd rep-
úblikana].“
Herferðin hefur vakið upp hörð
viðbrögð í herbúðum bæði rep-
úblikana og demókrata og hafa ein-
staklingar úr beggja röðum fordæmt
kosningavél McCains fyrir að grípa til
aðgerða sem hann hefur ítrekað for-
dæmt.
Frá fjölda fylkja hafa borist fregn-
ir um nokkrar útgáfur sjálfvirku sím-
hringinganna þar sem drepið er á
málum allt frá fóstureyðingum til
hryðjuverka.
Í þeirri útgáfu þar sem lögð er
áhersla á fullyrðingar um tengsl
Obama við hryðjuverk er skírskotað
til sambands hans við Willam Ayers,
róttækling frá sjöunda áratugnum. Í
þeirri útgáfu segir: „Þú þarft að vita að
Barack Obama hefur unnið náið með
hryðjuverkamanninum Bill Ayers,
en samtök hans sprengdu þinghús
Bandaríkjanna, Pentagon, heimili
dómara og drápu Bandaríkjamenn.
Demókratar munu koma á kerfi
vinstrisinna ef þeir ná völdum í Wash-
ington.“ Barack er einnig vændur um
að setja Hollywood ofar Bandaríkjun-
um.
Þeir sem hafa gagnrýnt þessa aðferð
McCains hafa bent á yfirlýst andstöðu
hans við hana frá því þegar hann beið
lægri hlut fyrir George W. Bush árið
2000. Þegar slagurinn harðnaði voru
kjósendur í Suður-Karólínu spurðir,
með sömu aðferð og McCain beitir nú:
„Væri líklegra eða ólíklegra að þú kys-
ir John McCain... ef þú vissir að hann
hefði feðrað óskilgetið þeldökkt barn?“
Aðspurður sagði McCain að ekki
væri hægt að bera aðferð hans sam-
an við það sem hann varð fyrir barð-
inu á árið 2000, og sagði að fullyrð-
ingarnar um Obama væru réttmætar
og sannleikanum samkvæmar. Árið
2000 fordæmdi McCain aðferðina
og sagði: „Ég lofa ykkur að ég hef
aldrei, og mun aldrei, koma nálægt
svona pólitískum aðferðum af þess-
um toga.“
John McCain greip til baráttuaðferðar sem hann fordæmdi:
Varð John McCain að falli árið 2000
John McCain Samherjar hans hafa
gagnrýnt hann fyrir baráttuaðferðina.
KolBeinn þoRsteinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
„Það er mjög undarlegt að hún komi á sama tíma og fólk er að tala um Al-
þjóðagjaldeyrissjóðinn og þá forystu sem hann tekur í að skapa nýja skip-
an efnahagsmála á heimsvísu, sem mun ekki endilega koma auðugum,
hægrisinnuðum Bandaríkjamönnum til góða,“ sagði hagfræðingurinn í við-
tali við breska blaðið Observer.
Þrátt fyrir að Dominique strauss-Kahn, framkvæmdastjóri Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins, njóti ákveðins stuðnings heima fyrir er ljóst að með ást-
arævintýri sínu hefur hann gert Frakklandi skráveifu. Líkur
hafa verið leiddar að því að fréttum af innanhússrann-
sókn sjóðsins á máli Strauss-Kahns hafi verið lekið af
Bandaríkjamönnum sem hugnast ekki sú leið sem Evr-
ópusambandið vill fara vegna efnahagskreppunnar.
Framhjáhald
veikir stöðu
Frakka
Dominique strauss-Kahn
Hliðarsporið hefur dregið dilk á
eftir sér og kemur upp á
yfirborðið á undarlegum tíma.