Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2008, Side 14
Á dularfullri lítilli eyju lengst norður í ballarhafi býr ósam-stæður hópur strandaglópa við fremur kröpp kjör. Á
þessari eyju er öllum náttúrulögmál-
um snúið á hvolf og hvorki viðtekin
sannindi eðlisfræðinnar um tíma og
rúm né einföldustu þumalputtareglur
um efnahagsmál virka á eyjunni. Eyj-
arskeggjum hefur því eðlilega reynst
erfitt að fóta sig í tilverunni og sá vísir
að siðmenntuðu samfélagi sem þeir
hafa reynt að koma á laggirnar er ekki
upp á marga fiska. Daglegt líf fólksins,
sem minnir mest á skipbrotsmenn í
eigin landi, er því ein samfelld runa
áfalla og lífshættulegra uppákoma.
Í sumar rákust íbúar eyjunnar til að mynda á risavaxinn og svang-an hvítabjörn en slík dýr hafa ekki beinlínis verið frek til fjörs-
ins á eyjunni. Þegar ísbjörninn birtist
var samt allt í lukkunnar velstandi á
eyjunni þannig að glóparnir gerðu sér
lítið fyrir, skutu dýrið og héldu síðan
áfram að lifa í vellystingum þótt ein-
hverjir þeirra teldu sig skynja að vá
byggi í lofti. Fáir vildu þó trúa dóms-
dagsspámönnunum en illu heilli
rættust hrakspárnar með haustinu og
gott betur.
Fyrir utan tannhvassan björninn hafði fátt raskað ró fólksins nema ef vera skyldi dularfullur svartur reykur
sem leggst yfir eyjuna með reglu-
legu millibili og hefur frekar hvimleið
áhrif á geðslag og fjárhagsstöðu hins
almenna eyjamanns. Þótt enginn hafi
botnað upp né niður í svörtu þokunni
þótti nauðsynlegt að gefa henni nafn
og í daglegu tali fólks nefnist hún
stýrivextir. Þoka þessi, sem er hin
mesta óáran, er ekki náttúruafl og að-
alkallinn á eyjunni stjórnar henni og
getur sigað henni á óttasleginn múg-
inn þegar honum sýnist.
Aðalkallinn á litla samleið með hinum almenna eyjar-skeggja þótt hann hafi ráðið ríkjum á eyju hinna for-
dæmdu lengur en elstu menn muna.
Hann hefur myndað harðsvíraða
klíku sem hefur með hörku og ofbeldi
tekist að viðhalda völdum og áhrifum
karlsins þótt sjálfur sé hann nokkuð
farinn að reskjast. Hrædda fólkið sem
húkir nú í flæðarmáli eyjunnar og býr
sig undir að lifa á fiski og rollukjöti
á vetri komanda, sem verður bæði
kaldur og erfiður, kallar klíku þessa
aldrei annað en „hina“.
Hinir“ hafa haldið öllu stjórnkerfi eyjunnar í hel-bláum járngreipum sínum og hafa ekki síst notið þess
að ráða yfir dularfullu byrgi undir
Svörtuloftum. Í iðrum byrgisins tikkar
skelfileg dómsdagsvél og þar hefur
aðalkarlinn ætíð haft mann á vakt sem
hefur þann starfa að stimpla ákveðna
talnarunu með reglulegu millibili í
tölvu. Riðlist þessar gengisvísitölur er
hætt við því að allt líf á eyjunni þurrk-
ist bókstaflega út. Ill álög virðast hvíla
á þeim sem stendur þessa dómsdags-
vakt yfir gengistölvunum í byrginu
og allir þeir sem gegnt hafa starfinu í
einhvern tíma hafa að lokum sturlast.
Þegar talnageggjunin rennur á við-
komandi fer hann að sýna verulega
andfélagslega hegðun og fer að fremja
alls kyns illvirki sem ógna lífi allra sem
eyjuna byggja.
Illu heilli fór aðalkarlinn sjálfur að standa þessa vakt þar sem hann treysti engum öðrum og hefur með stjórnleysi sínu
í talnaleikfiminni ekki aðeins sett
eyjuna á hvolf heldur einnig vakið
athygli umheimsins á eyjunni og nú
hyggja alls konar öflugir ættbálk-
ar úti í hinum stóra heimi á stríð á
hendur eyjarskeggjum sem vita ekki
sitt rjúkandi ráð enda blásaklausir.
Lykillinn að rólegu lífi eyj-arskeggja hingað til hefur ekki síst verið fólginn í því að enginn vissi í raun hvað
og hvar þessi eyja var. Nú vita það
hins vegar allir og aðalskúrkurinn
Brown ætlar sér að ganga milli bols
og höfuðs á íbúum eyjunnar, bæði
„hinum“ og „þeim“ sem landið
munu erfa. Eina lífsvon eyjarskeggja
er fólgin í enn einu brellutólinu
sem foringinn býr yfir, en einhvers
staðar á eyjunni er merkileg sveif
falin. Sveifin er þeirrar náttúru að
sé henni snúið hratt rangsælis í
klukkustund hverfur eyjan og birtist
á ný einhvers staðar allt annars stað-
ar. Takist ekki að færa eyjuna í tæka
tíð, þá erum við lost!
þriðjudagur 21. október 200814 Umræða
LOST!
svarthöfði
Jón TrauSTi reyniSSOn riTSTJóri Skrifar. Margir munu ekki geta borgað af lánunum, en geta ekki heldur losnað við íbúðina.
Skuldafangelsi heillar kynslóðar
Leiðari
Höfuðstefna Sjálfstæðisflokksins er að standa vörð um frelsi einstaklingsins. Stefna sama flokks hefur hins vegar valdið því að heil kynslóð Íslendinga er að glata frelsi sínu.
Hjá venjulegu fólki er stærsta fjárfesting lífsins fasteignin. Sjálf-
stæðisflokkurinn hét því fyrir síðustu kosningar að „treysta fjár-
hagslegt sjálfstæði einstaklinga“ með því að „sem flestum sé gert
kleift að búa í eigin húsnæði“. Flokkurinn beinlínis stefndi að því
að fólk keypti fasteignir og á hans valdatíð var fólki gert kleift að
skuldsetja sig meira en áður, og það á tímum ofþenslu í efnahagslíf-
inu. Gríðarlegt flæði lánsfjár olli því að fasteignaverð hækkaði um
60 prósent á skömmum tíma í Reykjavík, þannig að yngri kynslóð
borgarbúa þurfti bæði að borga meira fyrir fasteignina og skuld-
setja sig meira.
Þótt fasteignabólan væri dæmd til að springa og lítið mætti út af
bera vöruðu stjórnmálamenn almenning ekki við og gerðu ekkert
til að koma í veg fyrir að fólk lenti í fjárhagslegri ánauð með stærstu
fjárfestinguna. Þvert á móti réðust stjórnmálamenn gegn gagnrýn-
endum og átöldu þá fyrir að „tala niður fasteignamarkaðinn“. Það
er í raun ósanngjarnt að segja að ríkisstjórnin hafi ekki gert neitt. Í
júní síðastliðnum varð henni loksins ljóst að til vandræða stefndi
á fasteignamarkaði. Þá greip hún til þeirra aðgerða að auðvelda
ungu fólki að komast inn á ofþaninn markaðinn að hruni kominn.
Það fólk sem tók gylliboðinu sér nú fram á gríðarlegan vanda og
jafnvel eins konar vistarband, sem felst í því að eiga íbúð sem lækk-
ar í verði og lán sem hafa hækkað umfram virði eignarinnar. Marg-
ir munu ekki geta borgað af lánunum, en geta ekki heldur losnað
við íbúðina.
Á Íslandi hafa húsnæðiseigendur minni rétt en víðast hvar ann-
ars staðar. Hér getum við ekki gengið út úr íbúðum okkar og skilað
þeim til bankans, líkt og í Bandaríkjunum. Og hér erum við í þeirri
einstaklega ósanngjörnu stöðu að fasteignalánin hækka í sama
hlutfalli og hækkun verðlags, þannig að fasteignaverðið verður að
hækka svo við höldum í við skuldirnar. Ísland er eitt versta land í
heimi til að eiga fasteign í, en samt sem áður hefur Sjálfstæðisflokk-
urinn það sem eitt helsta markmið sitt að koma okkur út í þessi
ósanngjörnu viðskipti.
Hluti eldri kynslóðarinnar sem hefur náð að lifa sómasamlegu lífi
undanfarin ár fékk fasteign sína ódýrt, þar sem verðbólgan át upp
óverðtryggð lánin. Varlegar spár gera ráð fyrir yfir 20 prósenta verð-
bólgu á árinu. Það þýðir að 20 milljóna króna fasteignalán hækkar
um fjórar milljónir króna, bara á einu ári. Við þurfum að komast að
því sem fyrst hvort erlendar spár um allt að 75 prósenta verðbólgu
geti mögulega ræst, því frelsi heillar kynslóðar er að veði.
Stjórnmálamennirnir sváfu ekki á vaktinni. Þeir voru glaðvakandi í
því að ýta okkur út í fjárhagslega ánauð sem fylgir því að eiga mikið
skuldsetta fasteign á verðtryggðu láni.
spurningin
„Tja... Kolfinna
[Baldvins] sagði fjögur
þúsund, fréttirnar
fimm hundruð. Ég trúi
á hinn gullna
meðalveg, þannig
eigum við ekki að
segja um það bil tvö
þúsund, plús nokkrir
rónar,“ segir Valur Gunnarsson,
rithöfundur og tónlistarmaður, en
hann spilaði á mótmælunum gegn
davíð oddssyni á laugardaginn. deilt
var um fjöldann sem mætti á svæðið.
Hvað vOru margir
á móTmæLunum?
sandkorn
n Skyndilegt brotthvarf
Tryggva Þórs Herbertssonar
úr ráðgjafahlutverki Geirs H.
Haarde forsætisráðherra vakti
mikla athygli. Tryggvi Þór hafði
staðið upp úr bankastjórastól
Askar Capi-
tal til að
verða ráð-
gjafi. Þá var
umræða um
að Tryggvi
væri á flótta
úr bankan-
um þangað
sem hann
nú ætlar að snúa aftur. Nú er
staðfest að blikur eru á lofti hjá
Askar því sextán starfsmenn
bankans og dótturfyrirtækja
misstu vinnuna í síðustu viku.
n Tap Askar Capital er auðvit-
að ekki frábrugðið tapi fjölda
annarra fyrirtækja. Vitað er
að SPRON hefur verið í mikl-
um vanda, enda stóð til að sá
banki sameinaðist Kaupþingi.
Frá þeim áformum var horfið
þegar Kaupþing var yfirtekið af
ríkinu. Guðmundur Hauksson
sparisjóðsstjóri og hans fólk
eru þó hvergi af baki dottin.
Bankinn hafði keypt nokkur
hundruð miða á fyrstu minn-
ingartónleikana um Vilhjálm
Vilhjálmsson og boðið var upp
á einkapartí í Höllinni áður en
tónleikarnir hófust.
n Silfur Egils bregst sjaldan,
enda er Egill Helgason einn
öflugasti spyrill landsins og gef-
ur sjaldnast nokkuð eftir. Egill
er þó ekki aðeins ríkisstarfs-
maður á fín-
um launum
sem slíkum.
Hann heldur
úti Silfri Eg-
ils á Eyjunni
þangað sem
safnast flest-
ir kverúlant-
ar landsins.
Fyrir það stúss fær hann vel
borgað og það skiljanlega ef
litið er til þess að hann heldur
uppi aðsókninni á vefinn. Svo
er ekki verra að hann nær að
kynna síðuna sína nokkrum
sinnum í hverjum þætti Silf-
ursins.
n Í netheimum hefur verið gert
stólpagrín að fréttaumfjöll-
un Moggans þar sem erlend-
um seðlabönkum er gert upp
samsæri gegn Íslandi. Höf-
undurinn er Agnes Bragadótt-
ir blaða-
maður sem
nú hefur
öðlast
fyrri sess
á ritstjórn
Morgun-
blaðsins.
Tímaritið
Herðubreið
lýsti hlutverki hennar sem
kráku á öxl Styrmis Gunnars-
sonar, fyrrverandi ritstjóra.
Heldur sló í bakseglin þegar
Ólafur Stephensen tók við rit-
stjórn Moggans en hann hefur
nú fetað í slóð Styrmis og Agn-
es trónir í öndvegi ritstjórnar
og hefur fengið sitt eigið pláss
á fréttasíðum sem heitir Agnes
segir ...!
LyngháLs 5, 110 Reykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðalnúmer: 512 7000, ritstjórn: 512 7010,
áskriftarsími: 512 7080, auglýsingar: 515 70 50.
Umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Ég réð ekki við
[tilfinninguna] og
tel mig ekki vera
verri fyrir það.“
n Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar, sem beygði af þegar
hún gekk inn á flokksfund í fyrradag. Fundargestir
risu úr sætum og klöppuðu fyrir henni en
Ingibjörg var að snúa aftur eftir erfið veikindi. -
DV
„Mér fannst það eiginlega
nokkuð augljóst, eins
framkvæmdasamir og
Íslendingar eru, að í
staðinn fyrir að kaupa
eiturlyf af heildsölum
erlendis myndum við fara
að framleiða þau sjálfir.“
n Þráinn Bertelsson rithöfundur sem skrifaði
um Íslendinga sem starfrækja amfetamínverk-
smiðju í skáldsögunni Englar dauðans sem kom
út í fyrra. Slík verksmiðja fannst í Hafnarfirði í
síðustu viku. - DV
„Ég var í sjokki
og sagði að ég
hefði fengið
þetta heima hjá
mér.“
n Jessica Sól Helgudóttir nemi þegar gjaldkeri
í þýskum banka sagðist ekki geta tekið við
íslenskum seðlum sem hún reyndi að fá skipt í
evrur. Gjaldkerinn bauðst svo til að henda
seðlunum fyrir Jessicu. - DV
„Fréttaáherslurnar á 24
stundum voru meira á
mannlega vinkilinn
heldur en á Mogganum.
Og kannski meiri gredda
þar.“
n Lára Ómarsdóttir blaðamaður sem fór af 24
stundum yfir á Morgunblaðið þegar fyrrnefnda
blaðið var lagt niður á dögunum. - DV
bókstafLega