Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2008, Blaðsíða 22
þriðjudagur 21. október 200822 Fólkið
Sagan segir að allir eigi sér tví-
fara úti í hinum stóra heimi. Jón Ás-
geir Jóhannesson, stjórnarformaður
Baugs, er nauðalíkur Hollywood-
leikaranum Tom Cruise á þessari
mynd sem var tekin þegar fyrsta
Bónus-verslunin var opnuð fyrir
tæpum tuttugu árum. Á sama tíma
var Cruise að slá í gegn í kvikmynd-
um á borð við Rain Man og Cockta-
il. Báðir voru þeir svakalegir töffarar
og áttu framtíðina fyrir sér. Á síðustu
árum eða vikum – í það minnsta hjá
Jóni Ásgeiri – hefur leiðin legið svo-
lítið niður á við. Upphaf niðurtúrs
Krúsarans er hins vegar gjarnan
miðað við sófahoppið fræga í þætti
Opruh Winfrey fyrir nokkrum árum.
Tískusérfræðingurinn Mr. Black-
well kvaddi þennan heim á sunnu-
dagskvöldið síðastliðið. Fólk beið
ávallt í ofvæni eftir lista hans yfir
verst klædda fólkið sem kom út einu
sinni á ári. Björk Guðmundsdóttir
söngkonan komst nokkrum sinnum
á lista hans. Herra Blackwell virtist
hafa haft litla þolimæði um ævina
gagnvart nýstárlegum klæðnaði
fræga fólksins og fékk Björk oftar
en einu sinni sæti á listanum góða.
„Hún dansar í myrkrinu – og klæð-
ir sig þar líka,“ sagði hann eitt árið
um Björk. Við annað tækifæri sagði
herra Blackwell: „Tilgerðarlegt og
dýrt tískuslys í verstu martröð Sal-
vadors Dalí,“ og: „Hún lítur út eins
og karakter í eyðilögðu tískuævin-
týri. Köllum hana héðan í frá Lísu í
Klaufalandi.“
Dansar í
myrkrinu
„Það eru tveir þættir sem ég get
valið um sem eru frægastir hérna
í Búlgaríu. Þetta eru svona spjall-
þættir sem stjörnurnar koma fram
í og eru mjög svipaðir Jay Leno og
David Letterman. Eftir það á ég eftir
að verða súperstjarna hérna,“ segir
Ásdís Rán Gunnarsdóttir á léttu
nótunum en hún hefur vart undan
að svara búlgörskum fjölmiðlum
eftir að hafa flust þangað til lands
í síðasta mánuði. Ásdís sem hef-
ur starfað mikið við fyrirsætustörf
fluttist út með eiginmanni sínum,
knattspyrnumanninum Garðari
Gunnlaugssyni.
Aðspurð hvort hún fái meiri at-
hygli en knattspyrnumaðurinn
Garðar svarar hún hlæjandi: „Já,
ég get eiginlega ekki neitað því. Ég
er örugglega alveg helmingi fræg-
ari en hann hérna úti.“ Garðar veg-
ar staðið sig vel með búlgarska
meistaradeildarliðinu CSKA Sofia.
„Hann er aðeins að venjast þessu
ennþá en hann er búinn að skora
fimm mörk á tímabilinu. Það tekur
okkur miklu lengri tíma að komast
inn í þetta land en önnur þar sem
það eru bara einhver óskiljanleg
tákn á öllum skiltum og erfitt að
skilja þetta tungumál.“
Ásdís tekur þessari búlgörsku
frægð bara létt og gerir sér eigin-
lega enga grein fyrir af hverju búlg-
arskir fjölmiðlar sækja svo í hana.
„Ég geri mér enga grein fyrir því
af hverju ég er að fá alla þessa at-
hygli. Ætli það sé ekki aðallega út af
módelstörfunum,“ segir Ásdís en á
næstu dögum birtist hún á forsíðu
búlgörsku útgáfunnar af hinu virta
ítalska tímariti Max.
„Þetta eru tvær til þrjár opn-
ur, viðtal og myndir. Þetta er mun
virtara blað en til dæmis Maxim og
allar súperstjörnurnar hafa verið
framan á þessu tímariti. Mér hefði
nú aldrei dottið það í hug að verða
einhver súperstjarna í Búlgaríu,“
segir hún hlæjandi en í gær fékk
Ásdís einnig boð frá Playboy í Búlg-
aríu um að sitja fyrir á forsíðunni.
„Ég er líka búin að fá tilboð frá
Maxim og FHM og er að skoða öll
tilboðin núna. Ég ætla að ákveða
mig þegar ég kem aftur hingað
eftir jólafríið en ég ætla að vera í
einhverju af þessum þremur tíma-
ritum, FHM, Maxim eða Playboy.“
Sjálf segir Ásdís að nánast sé
fjallað um hana daglega í búlgörsk-
um fjölmiðlum.
„Ég les voðalega lítið blöðin
hérna, þau eru náttúrulega öll á búl-
görsku svo ég skil náttúrulega ekki
neitt. Ég heyri af öllu sem er skrif-
að en það er talað um mig nánast
daglega í pressunni hérna en get
lítið fylgst með því. Blaðamennirn-
ir hringja ekkert í mig og spyrja mig
heldur skrifa þeir meira bara það
sem þeim hentar en það sem hefur
verið þýtt fyrir mig er voðalega gott.
Ég er hálfgerð gyðja í þeirra augum
og það er haldið voðalega mikið upp
á mig hérna.“
Aðspurð hvers hún sakni mest
frá Íslandi þarf Ásdís ekki lengi að
hugsa sig um. „Það eru vinirnir og
fjölskyldan. Ég svo sem sakna
þess ekkert að vera í þessu
hræðilega ástandi á Íslandi
núna og er bara mjög feg-
in að vera hérna.“
krista@dv.is
Það má með sanni segja að athafnakonan Ásdís Rán sé að slá í gegn í Búlgaríu. Hún
fluttist út með eiginmanni sínum Garðari Gunnlaugssyni sem spilar knattspyrnu
með meistaradeildarliðinu CSKA Sofia og drengjum þeirra. Hún hefur vart undan
við að svara búlgörskum fjölmiðlum sem keppast um að fá hana í viðtöl og mynda-
tökur en næst á dagskrá er viðtal í vinsælum spjallþætti í anda Jay Leno.
„Ég fékk þessa hugmynd fyrir nokkrum
vikum síðan. Hef verið að trúbadorast í þrjú
ár. Fólk hefur alltaf gaman af því að hlusta á
mig spila, en það er mun skemmtilegra að
hlusta á annað fólk syngja og ég spila undir,“
segir Ragnar Ólafsson trúbador sem heldur
lifandi karaókí-kvöld á Café Oliver á þriðju-
dögum. „Ég bjó til hundrað og þrjátíu laga
möppu með textum. Fólk velur sér síðan lag
og eftir því bíður míkrófónn og ég spila und-
ir,“ segir Ragnar og er handviss um að lifandi
karaókíið sé alveg sér á báti í heiminum.
„Ég held að þetta sé alveg einstakt í heim-
inum. Það má kannski finna þetta einhvers
staðar í Japan, en ég er nokkuð viss um að
þetta er einstakt hér á landi,“ segir Ragnar
sem þegar hefur haldið lifandi karaókí-kvöld
tvisvar við góðar undirtektir. Ragnar kemur
einnig til með að hjálpa fólkinu við sönginn.
Hann raddar með söngvurunum og leið-
beinir þeim sem gerast svo djarfir að stíga
upp á svið.
Hann segir lagavalið mjög fjölbreytt.
„Þetta er gott bland af lögum. Þarna má
finna Bítlana, Sálina og Britney Spears. Það
má segja að þetta séu lög sem vekja upp
söngkenndir fólks. Svo inn á milli má finna
„extreme“ lög eins og Barbiegirl með Aqua,“
útskýrir Ragnar. Hann segir alla geta fundið
eitthvað fyrir sinn smekk á listanum.
Ragnar segir skemmtilegast að fylgjast
með fólkinu sem ríður á vaðið. „Sumir eru
með rosa stæla þegar þeir syngja og aðrir
taka allar rokkpósurnar í bókinni. Ég mun
koma til með að gefa verðlaun fyrir bestu
frammistöðuna og þá er ég ekki bara að tala
um sönginn heldur líka fílinginn í laginu er
það er sungið.“
hanna@dv.is
í fyrsta sinn á íslanDi
TrúBAdorinn RaGnaR ÓLafsson Býður upp á lifAndi KArAóKí á CAfé oliver:
Ragnar Ólafsson býður upp á lifandi
karaókí á Café oliver. Hann segir þetta
einstakt fyrirbæri.
Ásdís RÁn:
alveg eins og
tom Cruise
Helmingi frægari
en garðar
súperstjarna í Búlgaríu Ásdísi
var í gær boðið að sitja fyrir í
Playboy í búlgaríu en áður
höfðu henni borist tilboð frá
tímaritunum Maxim og
FHM. Hún ætlar að taka
tilboði frá einu af
tímaritunum þegar hún
snýr aftur til búlgaríu í
janúar eftir jólafrí á
Íslandi.
mynd aRnoLd