Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2008, Blaðsíða 22
Þriðjudagur 28. Október 200822 Fólkið
Stórsöngvarinn Björgvin Hall-
dórsson og félagar hafa ákveðið
að láta ekki deigan síga og blása til
tónleikanna Jólagestir Björgvins í
Laugardalshöllinni 6. desember.
Tónleikarnir fóru fyrst fram í fyrra
og var aðsókn það mikil að settir
voru á tvennir aukatónleikar og var
alltaf uppselt. Sannkallað stórskota-
lið listamanna hefur þegar þekkst
boð um að koma fram í ár. Þar má
nefna Eyjólf Kristjánsson, Krumma
og Daníel Ágúst, Ladda, Siggu Bein-
teins, Pál Óskar og Stefán Hilmars-
son. Sérstakur gestur er svo enginn
annar en Kristján Jóhannsson óp-
erusöngvari. Þá er bara að vona að
Kristján „beili“ ekki á Bó Halldórs en
eins og DV greindi frá á dögunum lét
hann ekki sjá sig eins og ráðgert var á
hátíðarsamkomu sem SÁÁ stóð fyrir
í byrjun október.
Glöggir sjónvarpsáhorfendur
hafa vafalítið tekið eftir nýjum frétta-
ritara RÚV í Vestmannaeyjum sem
gert hefur hinum ýmsu mannlegu
athöfnum góð skil á skjánum undan-
farnar vikur. Sighvatur Jónsson heitir
kappinn og er Eyjapeyi í húð og hár.
Þetta eru svo sannarlega ekki fyrstu
skref Sighvats á fjölmiðlabrautinni
því hann var fréttaritari Stöðvar
2 í Danmörku síðustu fjögur árin
við góðan orðstír. Áður en Sighvat-
ur fluttist til Danmerkur var hann
meðal annars í innlendum fréttum á
Stöð 2 en fleiri muna þó kannski eftir
honum sem Hvata á FM 957. Sig-
hvatur var nefnilega á meðal fyrstu
FM-hnakka landsins sem kvaddi sér
hljóðs á þeirri sívinsælu útvarpsstöð.
FM-hnakki
á RÚV
eR Möndlu-
gjöFin í áR
„Ég fékk þessa hugmynd síð-
astliðinn miðvikudag. Mig langaði
til þess að gera eitthvað með þetta
kreppuástand, alveg frá því að
þetta ástand dundi yfir, en ég fann
aldrei neinn flöt á þessu,“ segir Ótt-
ar Norðfjörð rithöfundur sem gefur
út bókina 10 litlir bankastrákar.
„Síðan kom hugmyndin að not-
ast við 10 lítilla negrastráka-form-
attið. Ég tók mikla geðveiki í þrjá,
fjóra daga og kláraði bókina,“ út-
skýrir Óttar. En þetta er ekki í fyrsta
sinn sem hann skrifar einhvers
konar ádeilu um íslenskt samfélag.
Í fyrra gaf hann út bókina Jón Ás-
geir og afmælisveislan, en þar var
góðærið sem ríkti á landinu tekið
fyrir.
„Þessi saga fjallar um 10 litla
bankastráka sem lenda í vandræð-
um. Fyrstur til þess að fara er Hann-
es Smárason sem klúðraði algjör-
lega FL Group. Svo fara þeir einn
af öðrum og í lokin er bara einn
bankastrákur eftir og það er Davíð
Oddsson. Hann neitar að fara og
endar með íslensku fjallkonunni.
Síðustu línur bókarinnar hljóma
svona: „Hann sótti handjárnin og
hjakkaðist á píu og fyrr en varði
urðu bankastrákarnir aftur 10.“
Óttar var ekki lengi að koma
bókinni frá sér, hann fékk grænt
ljós á útgáfu hennar í gær og mun
hún koma út fyrir jólabókaflóðið.
„Hún verður væntanlega ódýr og
er hugsuð sem nokkurs konar grín
að útrásinni og útrásarvíkingun-
um okkar,“ segir Óttar og bæt-
ir við: „Ég er ótrúlega glað-
ur að geta þó lagt mitt af
mörkum í öllu þessu
rugli sem er of mik-
ið til þess að standa
þögull hjá.“ Hann
tekur fram að bókin
sé tilvalin möndlu-
gjöf.
Tíu litlir banka-
strákar er þó ekki
eina bókin sem
Óttar gefur út í
ár. Sólkross heitir
önnur bók Óttars
og kemur hún út
í vikunni. Óttar
segir hana sjálf-
stætt framhald
Hnífs Abra-
hams sem kom
út í fyrra.
„Þetta er heimildaskáld-
saga sem byggist á kenn-
ingum Einars Pálssonar
sem alla sína ævi var
mikill áhugamað-
ur um íslenska
fornmenningu.
Hann var með
nýstárlegar
og róttækar
hugmynd-
ir, sem sam-
ræmdust
ekki háskóla-
nálgun, um
landnáms-
menn,“ seg-
ir Óttar. „Þetta
er þó umfram
allt spennusaga,“
bætir hann við.
„Ég er sáttur við
útkomuna. Var að
fá bókina í hendurn-
ar og er ánægður með
útlit bókarinnar og aug-
lýsingarnar,“ segir Óttar sem
hræðist ekki samdrátt í bóka-
bransanum um jólin. „Bók-
sala jókst eftir því sem Íslend-
ingar urðu ríkari. Salan minnkar
kannski aðeins en annars hafa
bækur alltaf selst vel fyrir jólin.
Þetta er ekki eins og við séum að
selja pelsa og jeppa.“
Rithöfundurinn Óttar Norðfjörð gefur út teiknimyndasöguna 10 litlir bankastrákar
sem gerir óspart grín að útrásarvíkingunum. Bókin er byggð á hinni umdeildu
barnabók 10 litlir negrastrákar.
„Ég ætla að reyna eftir fremsta
megni að láta myndrænan húmor
tala sínu máli,“ segir skopmynda-
teiknarinn Ingi Jensson sem er
genginn til liðs við DV á nýjan leik.
„Þetta er allt mjög opið hjá mér,“
segir Ingi en hann teiknaði fyrir DV
á árinum 2003 til 2005. Ingi hef-
ur myndskreytt hin ýmsu blöð og
tímarit en hann er ef til vill þekkt-
astur fyrir Heim Sjonna sem birtist
í Bleiku & bláu hér á árum áður.
Nýleg teikning Inga um brott-
rekstur kollega síns Sigmund af
Morgunblaðinu hefur vakið at-
hygli. „Hvernig Mogginn tók á
þessari brottvikningu er alveg fyrir
neðan allar hellur,“ segir Ingi sem
finnst illa farið með Sigmund sem
hefur teiknað fyrir blaðið síðan
1964.
„Mér virðist sem svo að blað-
ið stefni á að láta brotthvarf hans
fljóta þegjandi og hljóðalaust með
rokinu og efnahagsruglinu sem á
sér nú stað. Mogginn passaði sig
til dæmis á því að birta nokkurn
skapaðan hlut um brotthvarf Sig-
mund á vefnum sínum, enda hefði
umræðan orðið skrautleg geri ég
ráð fyrir.“ Ingi vill með teikning-
unni sína Sigmund stuðning en
fólk getur gert það sama inni á
bloggsíðu teiknarans á ingijens-
son.blog.is
asgeir@dv.is
StyðuR SigMund
INgI JeNssoN teiknaRi genguR til liðs við Dv:
sigmund rekinn ingi jensson
mótmælir brottsögn Sigmunds.
Óttar Norðfjörð:
BeilaR
á Bó?
Óttar Norðfjörð gefur út tvær
bækur í jólabókaflóðinu.
10 litlir bankastrákar óttar skrifaði bókina á þremur dögum.