Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2008, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2008, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 28. Október 2008 17Sport Sport Skúli fékk ekki að berjaSt Hnefaleikamaðurinn Skúli Ár-mannsson fékk ekki að keppa sinn annan atvinnumannabar-daga um helgina eins og til stóð. Stærsti styrktaraðlili mótsins dró sig út á síðustu stundu og féll mótið því niður. Skúli vann sinn fyrsta bardaga í vor með rothöggi í annarri lotu. Hann hefur æft stíft fyrir bardagann sem átti að vera á laugardag-inn og því mikil vonbrigði fyrir Skúla að þurfa að snúa aftur heim. ekki er vitað hvort af bardaganum verði. Íslenska karlalandsliðið í hand- knattleik kom saman í gærkvöldi á æfingu í Vodafone-höllinni en í vik- unni á liðið tvo leiki í undankeppni Evrópumótsins gegn Belgum og Norðmönnum. Fyrri leikurinn er gegn Belgum á miðvikudaginn og þótt ekki sé sett samasemmerki milli þeirra og stórliða í handknatt- leik segir Guðmundur leikinn ekki æfingu fyrir leikinn gegn Noregi. „Það er hættulegast þegar menn ætla að fara að labba í gegnum leik- ina. Síðast þegar ég stjórnaði lands- liðinu var fyrsti leikurinn minn gegn Belgum þar sem við gerðum jafn- tefli. Þar vorum við með frábært lið en menn ætluðu að taka þetta með vinstri. Það er einfaldlega ekkert þannig í handbolta lengur og það er okkar skylda að fara í leikinn af full- um krafti á heimavelli í fyrsta leik eftir Ólympíuleikana,“ sagði Guð- mundur við DV í gær. Í liðið vantar Snorra Stein Guð- jónsson, Ólaf Stefánsson og Alexand- er Petterson. Leikstjórnendastaðan og hægri vængurinn eru því nýr og gamall en inn koma Einar Hólm- geirsson, Rúnar Kárason og nýliðinn Aron Pálmarsson. Nú er þeirra að sanna sig segir Guðmundur. „Ég hef enga ákvörðun tekið enn- þá. Þetta er átján manna hópur og það eiga allir jafna möguleika. Þannig hef ég alltaf haft það. Ég var með æfingu í kvöld [gærkvöldi] svo verða tvær æfingar á morgun [í dag] og á þeim mun ég mynda mér skoð- un. Annað kvöld [í kvöld] verð ég líklega búinn að ákveða hvernig ég fer inn í Belgaleikinn,“ sagði Guð- mundur. tomas@dv.is Karlalandsliðið í handknattleik kom saman á ný í gær og æfði fyrir næstu verkefni: Ekkert vanmat hjá Guðmundi ferrari hættir ef fia staðlar vélar Hið ítalska formúlustórveldi Ferrari hefur brugðist hart við áformum Max Mosley og alþjóðaaksturs- íþróttasambandsins (Fia) að staðla vélar keppnisbílanna í Formúlu 1. Fia hefur nýverið gefið út að samtökin muni fylgja þessum áformum eftir af fullum þunga. Markmiðið segja þeir að minnka kostnað liðanna. Ferrari sendi frá sér yfirlýsingu í gær þess efnis að liðið muni endurskoða þátttöku sína í Formúlu 1 ef Fia heldur þessu til streitu. Þeir hóta sem sagt að hætta ef allir verða skyldaðir til að vera með vélar frá sama framleiðanda. Ítalarnir eru ekki einir í gagnrýni sinni því toyota-liðið hafði áður gefið út að fyrirhugaðar breytingar myndu að öllum líkum verða til þess að liðið myndi einnig draga sig úr keppni. aksturáhugamenn liggja eflaust margir á bæn og vona að Fia sjái að sér í þessu máli, enda væri Formúlan án Ferrari eins og enski boltinn án Man.utd. swaage@dv.is kinnear sér um barton joe kinnear, sem stjórnar enska úrvalsdeildarliðinu Newcastle tímabundið, segir það undir sér komið hvort joey barton verði í liðinu sem mætir Wba í úrvalsdeildinni í kvöld. barton æsti upp stuðnings- menn Sunderland um helgina þegar hann kyssti merki æfingatreyju sinnar í upphitun. Hann hefur fengið nokkra gagnrýni fyrir en kinnear lætur engan hafa áhrif á sitt val. „Ég hef verið gagnrýndur fyrir að taka barton aftur inn en ég verð að gera það besta með þann hóp manna sem ég hef. Ég mun samt ekki hlusta á neina heldur tek ég sjálfur ákvörðun. Ég læt barton spila því hann er góður leikmaður og það segir mér enginn neitt annað,“ segir kinnear í gær. frítt á völlinn Frítt verður á leik Íslands og belgíu í fyrsta leik undankeppni evrópu- mótsins í handbolta sem fram fer í Laugardalshöll á morgun, miðviku- dag klukkan 20.15. Hægt verður að nálgast miða í þremur útibúum kaupþings á Hlemmi, Suðurlands- braut og í kringlunni ásamt þjónustustöðvum N1 í Fossvogi, á Ártúnshöfða og við Hringbraut. allir miðar verða gefnir á miðvikudaginn, leikdag, milli klukkan 9 og 16. „Ég hafði mjög gaman af þessu og þetta var hörkukeppni,“ segir bar- dagasnillingurinn Gunnar Nelson um fyrsta Íslandsmótið í brasilísku jiu jitsu, BJJ, sem fram fór á sunnu- daginn. Gunnar er frekar hógvær því andstæðingar hans voru nú ekki mik- il fyrirstaða. Hann vann sinn flokk í - 88kg, opna flokkinn og liðakeppnina án þess að fá á sig svo mikið sem eitt stig. BJJ er gólfglíma þar sem reynt er að ná taki á andstæðingnum svo hann gefist upp. Einnig eru gefin stig fyrir yfirburðastöðu í bardaganum. frábært mót BJJ hefur rutt sér hratt til rúms á Íslandi og var þetta fyrsta mót eink- ar vel sótt. Alls tóku 42 keppendur þátt frá fjórum félögum. Mjölnir, lið Gunnars, áttu sigurvegarana í fimm af sex þyngdarflokkum. „Ég bjóst ekki við því að þetta yrði svona stórt og skemmtilegt. Þetta var náttúr- lega fyrsta Íslandsmótið og fólk vissi kannski ekki alveg af þessu. En það var frábærlega vel að þessu staðið og mikið af áhorfendum,“ segir Gunnar. taplaus í MMa BJJ er aðeins hluti af æfingum Gunnars en hans aðalsmerki er blandaðar bardagalistir, MMA. Það er öllu blóðugra en í þeim má kýla og sparka ásamt því að vinna með tök og lása. Gunnar barðist síðast við Brasilíumanninn Iran Mascheranas sem hafði unnið 13 bardaga og tap- að aðeins þremur á ferlinum, marg- reyndur keppnismaður og þjálfari. „Iran er með svart belti í gólfinu og því mjög sterkur þar. Reyndar bara mjög sterkur alhliða keppnismaður,“ segir Gunnar en eftir fyrstu lotuna settist Gunnar ekki einu sinni niður til að hvíla sig. „Ég var bara algjör- lega óþreyttur. Ég var bara voðalega grimmur og tilbúinn í að fara í hann aftur,“ segir Gunnar sem rotaði svo Mascheranas í annarri lotu. Æfir með þeim besta Hæfileikar Gunnars fóru ekki framhjá einum virtasta þjálfara heimsins í MMA, Renzo Gracie, þegar hann kom hingað til lands í sumar. „Renzo er einn virtasti keppnismaður og þjálfari í heim- inum og hann bauð mér út til New York að æfa. Ég fer bara núna á mið- vikudaginn út,“ segir Gunnar sem er þó ekki með bardaga til að æfa fyr- ir eins og staðan er núna. „Ég ætla að sjá hvað Renzo segir, hvort ég fái einhverja bardaga. Það er enginn á döfinni en takmarkið núna er bara að æfa vel. Á nýju ári byrjar þetta vonandi á fullu,“ segir Gunnar sem æfir frítt með Renzo. ekki viðvart við kreppuna Það er ekki frítt að ferðast og berjast en Novator, eignarhaldsfélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, hef- ur stutt rækilega við bakið á Gunn- ari. „Ég er í ágætis málum held ég. Get allavega farið út og haldið áfram að æfa þótt ástandið togi náttúrlega í alla. Samningurinn sem var gerður við Novator var til árs og var greidd- ur fyrirfram,“ segir Gunnar. tilbúinn í stærsta vettvanginn UFC, Ultimate Fighting Champ- ionship, er stærsti vettvangur blandaðra bardagalista í heiminum en í því er keppt aðallega í Banda- ríkjunum og einnig á Bretlandseyj- um. Það er sú íþrótt sem hefur vax- ið hvað mest á síðustu árum þar í landi. Gunnar segist tilbúinn að fara þangað strax í dag. „Ég tel mig vera alveg tilbúinn og ég myndi ekki neita samningi í UFC núna ef hann byðist. Þangað stefni ég og ef ég kemst þangað mun ég fara í það til að vinna,“ segir Gunnar ákveðinn. Sjónvarpsstöðin Stöð 2 Sport hef- ur hafið sýningar á raunveruleika- þætti sem fjallar um MMA en sigur- vegarinn í honum fær samning hjá UFC. Aðspurður að lokum hvort sá möguleiki hefði eitthvað verið skoð- aður segir Gunnar: „Það er eitthvað búið að pæla í því en ekkert verið gert.“ Gunnar Nelson er færasti bardagaíþróttamaður landsins. Hann vann alla sína bardaga á fyrsta Íslandsmeistaramótinu í brasilísku jiu jitsu sem haldið var um helgina. Hans aðalsmerki er þó blandaðar bardagalistir og hefur einn færasti þjálfari heims í þeim efn- um boðið honum út til æfinga. ÆFIR MEÐ ÞEIM BESTA tÓMaS ÞÓr ÞÓrðarSON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Á leiðinni til New York gunnar mun æfa með einum færasta þjálfara heims á næstunni. Nýtt lið guðmundur þarf að stilla saman tiltölulega nýtt lið fyrir næstu leiki. MYNd GuNNar GuNNarSSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.