Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2008, Side 4
ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 20084 Fréttir
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Móðir tveggja langveikra drengja er ósátt við skort á lyfjum
Fær ekki verkjalyf fyrir börnin
„Ég er svo reið. Mér finnst ólíðandi að
ég geti ekki fengið verkjastillandi lyf
fyrir drengina mína því hvergi eru til
endaþarmsstílar,“ segir móðir tveggja
langveikra barna. Hún hefur reglu-
lega þurft að gefa sonum sínum Pinex
Junior endaþarmsstíla við verkjum en
þeir eru nú hvergi fáanlegir.
„Þeir verða því að finna til, nema
ég mylji niður íbúfen, skipti því til
helminga og gefi þeim,“ segir móðir-
in sem hefur miklar áhyggjur af því
að gefa drengjunum of mikið magn
af íbúfeni enda erfitt að henda reiður
á skammtastærðum þegar töflurnar
eru muldar niður.
„Það veit guð að ég yrði ósátt ef
ég þyrfti verkjalyf en fengi þau ekki
því þau væru ekki til á landinu. Þetta
snertir heilsu barnanna okkar,“ segir
hún.
Þegar blaðamaður hafði sam-
band við Lyfjastofnun fengust þær
upplýsingar að stofnunin hafi um
miðjan október farið fram á innköll-
un á 250 milligramma stílum af Pin-
ex Junior endaþarmsstílum vegna
þess að villur voru í leiðbeiningum
um skömmtun á umbúðum lyfsins.
Virka innihaldsefnið í Pinex
Junoir er parasetamól en of stórir
skammtar geta haft alvarlegar auka-
verkanir í för með sér.
Actavis sem er framleiðandi lyfs-
ins sendi því frá sér tilkynningu 16.
október um að lyfið hefði verið fjar-
lægt úr apótekum. Þá tilkynnti Act-
avis einnig: „Lyfið verður fáanlegt
aftur með réttum leiðbeiningum
innan skamms.“ Síðan eru liðnar
sex vikur.
Endaþarmsstílarnir eru á biðlista
hjá Lyfjastofnun og eru væntanlegir
í apótek í þessari viku. Pinex Junoir
stílar í 125 milligramma styrkleika
eru heldur ekki fáanlegir og sömu-
leiðis væntanlegir í vikunni.
erla@dv.is
Sex vikna bið Actavis
innkallaði Pinex Junior
endaþarmsstíla fyrir börn um
miðjan október. Lyfið átti að
koma aftur á markað von bráðar
en fæst ekki enn í apótekum.
Fjárfestingafélagið Gift er komið í þrot og því ljóst að sá hlutur sem fimmtíu þúsund
einstaklingar áttu rétt á í félaginu er að engu orðinn. Einn af þeim var fyrrverandi
þingmaðurinn Valdimar Leó Friðriksson en hann segist hafa tapað hundrað þúsund
krónum. Hann er verulega ósáttur við vinnubrögð Eignarhaldsfélags Samvinnu-
trygginga sem átti Gift.
Fyrrverandi þing-
maður tapar á giFt
„Ég var með bílatryggingar frá
1977, mér skildist að ég ætti að fá
um hundrað þúsund krónur vegna
þessa,“ segir fyrrverandi þingmað-
ur Frjálslynda flokksins, Valdimar
Leó Friðriksson. Hann furðar sig
á gjaldþroti Gift, sem var fjárfest-
ingafélag í eigu Eignarhaldsfélags
Samvinnutrygginga, en fimm-
tíu þúsund manns áttu eignarrétt
í því í ljósi þess að þeir greiddu
tryggingar í Samvinnutrygging-
ar. Nú er Gift komið í þrot sam-
kvæmt bréfi sem skilanefnd Sam-
vinnutrygginga birti á heimasíðu
sinni á föstudaginn. Gift átti þrjá-
tíu milljarða í eiginfé og um sex-
tíu milljarða í eignum. Staðan nú
er vægast sagt slæm fyrir fjárfest-
ingafélagið, því það skuldar þrjátíu
milljarða umfram eignir.
Spila með almannafé
Þingmaðurinn fyrrverandi, Valdi-
mar Leó, segist hafa borgað trygg-
ingar í Samvinnutryggingar í ára-
vís. Hann var ekki sá eini sem átti
til- kall til félagsins, aðr-
ir fjölskyldu-
meðlim-
ir hans
eru nú
í sömu
stöðu.
„Per-
sónulega
finnst
mér þetta
ótækt, ég
skil ekki
eftir hvaða-
lögmálum
þeir voru að
vinna,“ seg-
ir Valdimar
sem
sér
málið út frá einföldum forsend-
um; honum líður eins og forsvars-
menn félagsins hafi verið að spila
með fé almennings.
Hann segir það eingöngu eðli-
legt að hann sæki sitt fé til baka, þá
sé væntanlega dómstólaleiðin ein
fær í dag.
Hver borgar að lokum?
„Það er viðurkennt að almenning-
ur ætti að fá þetta,“ segir Valdimar
Leó sem er einn af fimmtíu þús-
und einstaklingum sem áttu að
fá greitt í formi hlutabréfa vegna
þess að þeir tryggðu hjá Sam-
vinnutryggingum frá 1987 til 1988.
Þá veltir Valdimar því einnig fyrir
sér hvort það séu einhver lög sem
nái utan um þetta. Hann bendir á
að tilgangur Samvinnutrygginga
hafi meðal annars verið að ávaxta
sem best eigið fé félagsins. Nú er
peningurinn tapaður og skila-
nefnd Samvinnutrygginga boðað
til fundar fulltrúaráðs um miðjan
desember.
„Hver á síðan að borga skuld-
irnar?“ spyr Valdimar og veltir því
fyrir sér hvort það lendi þá á þeim
sem áttu rétt á hlut í Gift.
Vill upplýsingar
Að mati Valdimars þarf að upp-
lýsa almenning um umsvif félags-
ins sem voru talsverð. Félagið átti
til að mynda Langflug sem átti um
þrjátíu prósent í Icelandair. Stjórn-
arformaður Langflugs var Finnur
Ingólfsson, fyrrverandi ráðherra
Framsóknarflokksins. Þá átti FS7,
eignarhaldsfélag í eigu Finns, hlut í
Langflugi. Í stjórn Gift sátu á tíma-
bili þeir Helgi S. Guðmundsson,
sem hefur verið náinn félagi Finns
í gegnum tíðina. Þá sat einnig Þór-
ólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri
Skagfirðinga og framsóknarmað-
ur, sem stjórnarformaður Gift um
tíma. Hann sagði sig hins vegar úr
stjórn í mars síðastliðnum.
Hápólitískt framsóknarmál
„Þetta virðist vera hápólitískt enda
þarf að útskýra þessi sterku tengsl
við Framsóknarflokkinn,“ seg-
ir Valdimar sem telur að almenn-
ingur, eða að minnsta kosti þeir
fimmtíu þúsund einstaklingar sem
áttu tilkall til fjármuna sem töpuð-
ust, fái einhverjar upplýsingar.
Fundur fulltrúaráðs Eignar-
haldsfélags Samvinnutrygginga
verður haldið 18. desember næst-
komandi. Í fulltrúaráði situr með-
al annars Valgerður Sverrisdóttir,
formaður Framsóknar.
„Þetta virðist vera
hápólitískt enda
þarf að útskýra þessi
sterku tengsl við
Framsóknarflokkinn.“
VaLur grettiSSon
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Valgerður Sverrisdóttir Formaður
Framsóknarflokksins situr í fulltrúaráði
Eignarhaldsfélags Samvinnutrygginga
en fundur hefur verið boðaður upp úr
miðjum desember til þess að ræða
stöðu Gift.
Valdimar Leó Friðriksson
Fyrrverandi þingmaður
Frjálslynda flokksins tapaði
hundrað þúsund krónum á þroti
Gift sem er í eigu Eignarhaldsfé-
lags Samvinnutrygginga.
Þögn um
slysaskot
Utanríkisráðuneytið verst
frétta af íslensku stúlkunni
sem skaut strák slysaskoti í
október. Pétur Ásgeirsson,
skrifstofustjóri hjá utanríkis-
ráðuneytinu, segir að af tillits-
semi við stúlkuna verði ekki
veittar neinar upplýsingar um
málið. Blaðamaður DV spurði
Pétur hvort yfirvöld í Rúss-
landi væru búin að krefjast
framsals og hver staðan í mál-
inu væri nú. „Það var ákveðið
í samráði við fjölskyldu henn-
ar að veita ekki fjölmiðlum
upplýsingar um málið,“ segir
Pétur og bendir á að ákveðið
hafi verið í upphafi málsins að
veita upplýsingar um stöðuna,
en það virðist hafa breyst.
dæmdur fyrir
sprengjugerð
Jón Gauti Magnússon, sem
einna helst er þekktur fyrir að
hafa orðið fyrir barðinu á lög-
regluþjóni í 10-11 verslun í maí
síðastliðnum þar sem lögreglu-
þjónn tók hann hálstaki, þarf
að greiða 100 þúsund krónur í
sekt til ríkissjóðs vegna þriggja
brota sem hann framdi fyrr á
árinu. Hann er dæmdur fyrir
veggjakrot á veggi Slippfélagsins
og Reykjavíkurborgar. Einnig er
hann dæmdur fyrir að hafa búið
til ellefu sprengjur sem fundust
á heimili hans og voru gerðar
upptækar.
egill fær 800
þúsund krónur
Sjónvarpsstjarnan Egill Helga-
son upplýsti á bloggsíðu sinni í
gær að hann sé með 800 þúsund
krónur í mánaðarlaun hjá Rík-
isútvarpinu. Að auki fær hann
jakkaföt og frían síma. „Menn
hafa verið að spyrða mig saman
við ofurlaun. DV hefur kallað
mig súperlaunamann og helsta
launagæðing Ríkisútvarpsins.
Ég held þetta eigi rætur að rekja
til umtals sem fór í gang þegar
ég hætti á Stöð 2 á sínum tíma.
Þá var Fréttablaðinu markvisst
beitt til að spinna sögur um að
ég hefði verið óheyrilega vel
haldinn í launum,“ skrifaði Egill
á blogg sitt.
völva Séð og
heyrt rekin
Völva tímaritsins Séð og heyrt
var rekin í gær en spá henn-
ar fyrir árið 2008 var ekki í takt
við það sem í raun gerðist. „Við
sáum okkur ekki annað fært en
að reka völvuna,“ segir Eiríkur
Jónsson, ritstjóri Séð og heyrt.
Völvan spáði meðal annars arfa-
slöku gengi handboltalands-
liðsins og að útrásarvíkingarnir
yrðu í góðum gír.„Þá sagði hún
líka að kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu myndi ekki skila neinum
árangri,“ segir Eiríkur og bætir
við að nú komi það í hlut galdra-
nornar að spá fyrir næsta ár.