Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2008, Blaðsíða 10
flök, saltfiskflök og loks var beðið um
verð á plokkfiski. Allar búðir tóku
blaðamanni vel og veittu upplýsing-
arnar fúslega.
Gallerý fiskur og
Fiskisaga dýrastar
Eins og fyrr sagði reyndist fiskurinn á
landsbyggðinni ódýrari en á höfuð-
borgarsvæðinu. Fiskisaga rekur alla-
vega átta fiskbúðir á höfuðborgar-
svæðinu og er því langstærsti aðilinn
á markaði. Það virðist ekki skila sér í
ódýrara fiskverði. Fiskisaga reyndist
hafa dýrustu fiskikörfuna, ef svo má að
orði komast, en hún samanstendur af
sex vörum. Verðið hjá Fiskisögu er um
42 prósentum hærra en á Siglufirði.
Þær tegundir voru til í öllum búðun-
um en neðri hluti töflunnar sýnir vör-
ur sem ekki voru til alls staðar.
Rétt er þó að benda á að af þeim
sex verslunum þar sem allar tíu vör-
urnar voru til, reyndist Gallerý fiskur
dýrasta verslunin. Tekið skal fram að
könnunin endurspeglar aðeins verð
í verslunum en ekki þjónustustig eða
ferskleika fisksins.
Mikill verðmunur á saltfiski
Mestur verðmunur reyndist á salt-
fiskflökum. Saltfiskurinn er ódýrast-
ur í Fiskbúð Suðurlands, kílóverðið er
þar 1.190 krónur en hann er dýrastur
í Gallerý fisk, kostar þar 1.990 krónur
kílóið. Minnstur verðmunur reynd-
ist á roð- og beinlausri ýsu, 35,4 pró-
sent. Sem fyrr er verðið lægst á Siglu-
firði, kostar 1.100 krónur, en Fiskisaga
verðleggur ýsuna, roð- og beinlausa,
á 1.490 krónur.
ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 200810 Neytendur
Dísilolía
el
D
sn
ey
t
i Gullinbrú verð á lítra 154,7 kr. verð á lítra 176,4 kr.
Skeifunni verð á lítra 153,2 kr. verð á lítra 174,9 kr.
Skógarhlíð verð á lítra 154,5 kr. verð á lítra 176,6 kr.
bensín
Við Kænuna verð á lítra 149,1 kr. verð á lítra 170,8 kr.
Bæjarlind verð á lítra 149,2 kr. verð á lítra 170,9 kr.
Fellsmúla verð á lítra 153,2 kr. verð á lítra 176,4 kr.
Skógarseli verð á lítra 153,2 kr. verð á lítra 174,9 kr.
UMSJón: BAlDUR GUÐMUnDSSon, baldur@dv.is / neytendur@dv.is
Verðkönnun á ferskum fiski leiðir í ljós að fiskurinn er mun dýrari á höfuðborgarsvæðinu
en á landsbyggðinni. Þar munar tugum prósenta en Fiskbúð Siglufjarðar er í sérflokki hvað
verðið snertir. Á einstökum vörum er mestur verðmunur á saltfiski, rúm 67 prósent.
Best að kaupa
fisk úti á landi
Fiskbúð Siglufjarðar reyndist bjóða
ódýrasta fiskinn af öllum þeim vörum
sem á annað borð voru til í búðinni.
Þær þrjár fiskbúðir sem athugaðar
voru á landsbyggðinni reyndust all-
ar ódýrari en búðirnar á höfuðborg-
arsvæðinu. Þetta kom í ljós þegar DV
gerði verðsamanburð á fiski í níu búð-
um fyrir helgi. Verðmunur á dýrustu
og ódýustu búðinni reyndist að jafn-
aði um 48,4 prósent.
Ódýrast á landsbyggðinni
Fiskbúð Siglufjarðar virðist í sérflokki
þegar að verðlagi kemur. Verslunin
býður fisk á nærri 18 prósent lægra
verði en sú búð sem næst kemst
henni í verði. Fiskbúð Suðurlands á
Selfossi hefur næstódýrasta fiskinn
en Fiskbúðin Vík í Reykjanesbæ fylg-
ir fast á hæla hennar, með um 20 pró-
sent hærra verð en kollegar þeirra á
Siglufirði. Sú búð á höfuðborgar-
svæðinu sem næst kemst Fiskbúð
Siglufjarðar í verði er Fiskbúðin Hóf-
gerði. Þar er verð á ferskum fiski að
jafnaði 26 prósent hærra en fyrir
norðan.
Níu fiskbúðir, tíu vörur
Fiskbúðirnar sem athugaðar voru
í könnuninni voru: Gallerý fiskur,
Fiskbúðin Hafberg, Fiskisaga Höfða-
bakka, Fiskbúð Suðurlands, Fisk-
búðin Freyjugötu, Fiskbúðin Vík,
Fiskbúðin Lækjargötu, Hafnarfirði,
Fiskbúðin Hófgerði og Fiskbúð Siglu-
fjarðar. Könnunin fór þannig fram að
blaðamaður DV hringdi í áðurnefnd-
ar fiskbúðir, kynnti sig og sagðist vera
að gera verðsamanburð. Því næst var
beðið um útsöluverð á tíu vörum,
kílóverð að sjálfsögðu. Tegundirn-
ar voru; ýsuflök með roði, nætursölt-
uð ýsa, stórlúða í sneiðum, þorskflök
með roði, roð- og beinlaus ýsa, ýsa í
raspi, beinlaus laxaflök, rauðsprettu-
EinBlínið á
yFirdráttinn
Fólk sem er bæði með mynt-
körfulán og yfirdráttarlán ætti
að hugsa sig tvisvar um áður en
það leggur sérstaklega fyrir til að
greiða af láni sem það hefur látið
frysta. Yfirdráttarlán eru dýrustu
lán sem hægt er að taka. Því ætti
fólk að einbeita sér að því að
greiða niður yfirdráttarlán. Vext-
irnir af þeim eru nú um 26 pró-
sent, mun hærri en flest önnur
lán. VISA-raðgreiðslur eru einnig
mjög dýr lán.
MiKill VErð-
Munur á trópí
Athugul húsmóðir hafði sam-
band við DV og vildi benda á
mikinn verðmun á Trópí-ávaxta-
safa. Hún hafði morgun einn fyrir
um tveimur vikum keypt App-
elsínutrópí í flösku. Fyrir vöruna
greiddi hún 200 krónur í bakaríi
í Hafnarfirði. Skömmu síðar átti
hún leið í Europris þar sem hún
sá flöskuna á 129 krónur. Síðan
þá hefur hún bæði komið við í
Krónunni, þar sem flaskan kost-
aði að hennar sögn 119 krónur og
Bónus þar sem sams konar flaska
var á 109 krónur. Verðmunurinn
er því um 83 prósent.
n Kona ein hafði samband
og sagðist hafa gist á
Hótel Búðum á
dögunum. Hún sagði að
um kvöldið hafi
hljómsveit spilað fram
eftir nóttu og haldið
vöku fyrir hluta gestanna.
Hún sagði að ballið hefði ekki
borið á góma þegar gistingin var
pöntuð og því hafi þetta valdið
henni
nokkrum
vonbrigðum.
n Kona hafði samband og sagði frá
verslunarferð í Partýbúðina. Á meðan
á afgreiðslu stóð lenti hún á spjalli við
vin þannig að hún áttaði sig ekki á því
hvað vörurnar kostuðu. Þegar út í bíl
var komið rak konan augun í að
hún hafði eytt meiru en til stóð.
Þegar hún bað um að fá að skila
vörunni reyndist það auðsótt
mál og var henni, með bros á vör,
boðin endurgreiðsla.
SEnDIÐ loF EÐA lAST Á nEYTEnDUR@DV.IS
„Fiskbúð Siglufjarðar
virðist í sérflokki þeg-
ar að verðlagi kem-
ur. Verslunin býður
fisk á nærri 18 prósent
lægra verði en sú búð
sem næst kemst henni í
verði.“
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Fiskurinn er ódýrastur á Siglufirði
Fisksalinn Eysteinn Aðalsteinsson rekur
Fiskbúð Siglufjarðar ásamt eiginkonu sinni.