Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2008, Blaðsíða 6
ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 20086 Fréttir
* Töffari á Akureyri
* Skítafýlubombur í Borgarbíói
* Mætti með saltfiskinn á ballið
* Rakvélablöðin borðuð með bestu lyst
* Lás opnaður með augnaráðinu
* Náði úrum, veskjum og brjósthaldara
* Uppskurður með berum höndum
* Morðhótun
* Löggubíl ekið undir áhrifum
* Hjartastopp í sjónvarpsviðtali
holar@simnet.is – www.holabok.is
Einlæg,
áhugaverð, fyndin,
átakanleg!
Engin tilboð hafa borist Björgólfi Guðmundssyni í West Ham:
Ekki selt jólasveinum
„Það eru engin tilboð komin í West
Ham. Þessi frétt í The Mirror er röng
og á sér ekki stoð í raunveruleikan-
um.“ segir Ásgeir Friðgeirsson, tals-
maður Björgólfs Guðmundssonar,
eiganda West Ham, en breska dag-
blaðið hélt því fram á síðum sín-
um í gær að Björgólfur hefði hafnað
þremur tilboðum í félagið.
Ásgeir segir engin tilboð hafa bor-
ist og staðan hjá Björgólfi varðandi
West Ham sé óbreytt. Enn sé verið
að skoða alla kosti í stöðunni. Ásgeir
viðurkennir að áhugi sé fyrir félag-
inu. „Menn hafa verið að hringja og
ég svara þeim stuttlega að haft verði
samband við þá ef áhugi er fyrir að
selja. Síðan les ég í blöðunum viðtöl
við þessa sömu menn þar sem þeir
segjast eiga í viðræðum um kaup á
West Ham.“ segir Ásgeir og furðar sig
á því að eitt tveggja mínútna samtal
skuli enda sem baksíðufrétt í bresku
blaði.
Hann segir ráðgjafa vera að störf-
um sem vega og meta möguleik-
ana, en tíma þeirra verði ekki eytt í
jólasveina. Fyrst og fremst sé þetta
spurning hvort áhugi væri hjá „al-
vörumönnum“ eins og Ásgeir orðar
það. „Félagið verður ekki auglýst til
sölu þannig að tilboð komi frá hvaða
jólasveinum sem er.“
Björgólfur Guðmundsson keypti
West Ham fyrir 85 milljónir punda á
sínum tíma eins og frægt er orðið. Að
auki yfirtók hann skuldir félagsins að
andvirði 23 milljóna punda og dældi
öðrum 30 milljónum punda í félagið
þegar góðærið reis sem hæst. Bresk-
ir fjölmiðlar gera því skóna að West
Ham sé metið á 150 milljónir punda
í dag.
mikael@dv.is
Ævintýrið heldur áfram Björgólfur
Guðmundsson og fyrrverandi stjórnar-
formaður West Ham, Eggert Magnússon,
hrintu West Ham-ævintýrinu úr vör.
Mynd: Getty
Sjúk síld
Sýking fannst í síld sem veiddist
út af Keflavík í fyrradag, en áður
hafði sams konar sýkingar orðið
vart í Breiðafirði fyrir helgi. Það
getur tekið stofninn nokkur ár
að ná sér þar sem öll sýkt síld
drepst. Skip hafa hætt veiðum í
Breiðafirði vegna sýkingarinnar
en þar sem hennar hefur nú orð-
ið vart út af Keflavík er ljóst að
sýkingin er orðin mjög útbreidd.
Gullmoli
bæjarfulltrúa
Gullmolinn ehf. óskaði eftir því
við umhverfis- og skipulagsráð
Reykjanesbæjar að nefndin fjall-
aði um hugmynd að uppbygg-
ingu verslunarmiðstöðvar í mið-
bæ Reykjanesbæjar. Það sem
vekur þó athygli er að fyrirtækið
Gullmolinn ehf. er skráð á sama
heimilisfang og heimili bæjar-
fulltrúans Steinþórs Jónssonar.
Steinþór er þekktur athafna-
maður í Reykjanesbæ en hann á
meðal annars Hótel Keflavík.
Atvinnulaus
Suðurnes
1.012 eru nú atvinnulausir á
Suðurnesjunum og er þetta í
fyrsta skipti í langan tíma sem
talan nær þúsund. Mikið at-
vinnuleysi er suður með sjó og
er enga vinnu að fá. DV ræddi
við ungan fjölskylduföður í
Garðinum sem var nýverið sagt
upp hjá verktakafyrirtæki. Hann
segist hafa leitað að vinnu alla
daga frá því honum var sagt upp
í byrjun nóvember en enginn sé
að ráða. Álverið í Helguvík sem
lengi hefur verið ljósi punkt-
urinn í atvinnulífi Suðurnesja-
manna er nú í mikilli óvissu og
ekki er vitað hvort það komi til
með að rísa á tilsettum tíma.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
„Hann kemur til landsins á 6 til 8
vikna fresti til þess að fara á stjórn-
arfundi,“ segir Ásgeir Friðgeirsson,
talsmaður Björgólfs Thors Björg-
ólfssonar, en hann lenti glæsilegri
einkaþotu sinni á Reykjavíkurflug-
velli um eittleytið í nótt. Þetta mun
vera í fyrsta skipti síðan bankakerf-
ið á Íslandi hrundi sem Björgólfur
kemur hingað til lands á einkaþot-
unni. Samkvæmt heimildum blaðs-
ins hefur hann leigt sér einkaþotu-
þjónustu til þess að koma hingað
eftir hrun bankanna. Ástæðan fyr-
ir komu Björgólfs Thors hingað til
Íslands er fyrst og fremst að sækja
stjórnarfundi þeirra fyrirtækja sem
hann á hér á landi.
Stjórnarfundir á Íslandi
Áætluð lending Björgólfs Thors var
klukkan kortér fyrir eitt í nótt. Þá
flaug Björgólfur frá Bretlandi, þar
sem hann er búsettur ásamt konu og
barni. Einkaþota Björgólfs er glæsi-
leg svört þota af gerðinni Bombardi-
er CL-600-2B16 Challenger. Á stéli
vélarinnar má sjá merki úr norrænu
goðafræðinni. Tákn þrumuguðsins
Þórs, eða Thor, nafna Björgólfs.
Íslandsför auðmannsins unga
er sem fyrr segir hluti af regluleg-
um heimsóknum hans til þess að
sækja stjórnarfundi hjá þeim fjöl-
mörgu fyrirtækjum sem hann kem-
ur að. Þeirra á meðal er Actavis, sem
er reyndar á sölu þessa dagana. Þá
mun hann einnig sækja stjórnar-
fund vegna Straums fjárfestinga-
banka sem skilaði tapi í kringum
þrjátíu milljarða.
Á baðströnd í miðri kreppu
Athygli vekur að síðast sást til þotu
Björgólfs á Tenerife en mynd náðist
af henni þar 29. október, rétt tæpum
mánuði eftir hrun bankakerfisins.
Því virðist sem Björgólfur Thor, eða
einhver honum tengdur, hafi verið
í sumarleyfisparadísinni á meðan
Íslendingar tókust á við afleiðingar
bankakreppunnar. Þess má geta að
Icesave-reikningar Landsbankans,
sem var í eigu þeirra feðga, Björgólfs
Thors og Björgólfs Guðmundsson-
ar, féllu á íslenska skattgreiðendur.
Talið er að heildarskuldir sem lenda
á Íslendingum vegna reikninganna
verði á annað hundrað milljarða
króna.
ekki til bjargar Mogganum
Þegar haft var samband við Ás-
geir Friðgeirsson, talsmann þeirra
feðga, sagði hann að koma Björgólfs
boðaði engar sérstakar fréttir. Hann
væri eingöngu hingað kominn til
þess að sinna fyrirtækjum sínum og
hlúa að því sem hann á hér á landi.
Spurður hvort tímasetningin teng-
ist kröggum Morgunblaðsins, sem
er í eigu Björgólfs Guðmundssonar,
sagðist Ásgeir ekki telja svo vera.
„Þetta tengist ekkert Morgun-
blaðinu,“ segir Ásgeir til þess að taka
af allan vafa um tilgang ferðar Björ-
gólfs.
Björgólf eldri vantar hlutafé
Morgunblaðið hefur frest til viku-
loka til þess að verða sér úti um nýja
hluthafa og nýtt hlutafé. Hlutafé Ár-
vakurs hefur verið fært niður í núll.
Samkvæmt heimildum DV er vinna
við að finna hluthafa komin nokk-
uð langt, þó sé ekki alltaf samasem-
merki á milli áhuga og fjárráða.
Ekki er ljóst hversu lengi Björg-
ólfur verður hér á landi.
Auðkýfingurinn Björgólfur thor Björgólfsson, kom hingað til lands á einkaþotu sinni
í nótt í fyrsta skipti síðan kreppan skall á. Hann hefur þó verið hér eftir hrunið en sam-
kvæmt heimildum DV kom hann ekki á þotunni sjálfri. Síðast sást til þotunnar í sumar-
leyfisparadísinni Tenerife, en það var 29. október, rétt tæpum mánuði eftir að banka-
kerfi Íslands hrundi í einu vetfangi.
Á einkAþotu í
Skjóli nætur
„Þetta tengist ekkert
Morgunblaðinu.“
valur GrettiSSon
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
einaþota á tenerife
Síðast náðist mynd af þotu
Björgólfs Thors á Tenerife en það
var í október, tæpum mánuði eftir
hrun bankakerfisins hér á landi.
Björgólfur thor Björgólfsson
Glæsilegi auðkýfingurinn Björgólfur lá í
sólbaði í miðju bankahruninu, eða einhver
nákominn honum miðað við þær myndir
sem náðust af þotu hans á Tenerife.