Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2008, Síða 15
ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 2008 15Umræða
Hver er maðurinn „Valur Snjólfur
Ingimundarson körfuboltaþjálfari.“
Hvað drífur þig áfram? „Það sem
drífur mig áfram eru framfarir.“
Hvar ertu uppalinn? Er uppalinn á
Stokkseyri og á Suðurnesjum
Jordan eða Magic? „Jordan.“
Hvaða lið í NBA myndir þú helst
vilja hafa spilað fyrir sem
leikmaður? „Boston.“
Hvað lið í NBA værir þú til í að
þjálfa í dag? „Boston.“
Hvernig var tilfinningin að sigra
grannaslaginn? „Hún var mjög
góð. Sérstaklega eftir síðustu útreið.“
En bræðraslaginn? „Það er ekkert
sérstök tilfinning. Það gefur mér
ekkert að vinna bróður minn.“
Eru einhver veðmál ykkar á milli
fyrir leiki? „Ekkert svoleiðis.“
Ertu sáttur við deildina það sem
af er vetri? „Ég hefði viljað sjá færri
útlendinga en er mjög sáttur við
gengi liðsins.“
Hver eru markmið vetrarins?
„Framfarir.“
Hvað má betur fara í íslenskum
körfubolta? „Honum hefur farið
mikið fram undanfarin ár en það má
huga betur að heildarumgjörðinni.
Það sem er jákvætt er að ég held að
íslenskir leikmenn eigi eftir að bæta
sig mikið á næstunni.“
En í íslenskri pólitík? „Allt.“
Er bylting í aðsigi á íslandi?
„Já, það er svoleiðis. Hvað gerir skepna
sem er króuð af úti í horni? Hún bítur
frá sér.“
SturlA JóNSSoN
42 áRA VöRUBílStJóRI
„Ég vona ekki, ég átta mig ekkert á því
hvað fram undan er. Ég ræð bara
deginum núna á þessari stundu. Ég
ræð ekki morgundeginum.“
GEir JóN ÞóriSSoN
56 áRA yFIRlöGREGlUÞJónn
„Byltingin er þegar orðin, við þurfum
bara að færa hana frá Facebook og yfir
á göturnar.“
Atli ViðAr ÞorStEiNSSoN
25 áRA VERktAkI
„Vonandi neyðist þessi ríkisstjórn til
þess að fara frá.“
HAukur Már HElGASoN
30 áRA RItHöFUnDUR
Dómstóll götunnar
VAlur SNJólfur iNGiMuNd-
ArSoN, þjálfari njarðvíkur og
stigahæsti leikmaður á íslandi fyrr og
síðar, bar sigorð af nágrönnum sínum
í keflavík á sunnudag. Hann bar
ennig sigurorð af Sigurði, bróður
sínum, sem þjálfar keflavík en segist
enga ánægju hafa af því.
Íslenskir leikmenn
bæta sig
„Já, hún er hafin, og allir með.“
Guðríður GuðMuNdSdóttir
25 áRA AnARkIStI
maður Dagsins
Þegar keppt er í íþróttum er mik-
ilvægt að keppendur sitji allir við
sama borð og sé ekki mismunað á
nokkurn hátt. Ekki er t.d. sanngjarnt
í 100 m hlaupi að sumir keppendur
fái að hefja keppni við 60 m línuna.
Það gefur þeim óeðlilegt forskot.
Þannig spretthlaup á margt sam-
eiginlegt með þeirri samfélagsgerð
sem við horfum nú uppá hrynja
fyrir augum okkar. Skipuleggjend-
ur keppninnar (les. stjórnvöld) hafa
alltaf ákveðið fyrirfram hverjir það
eru sem fá að hefja hlaupið við 60
m línuna. Almenningur byrjar hins
vegar við rásmarkið.
Ættar- og klíkuveldi
Allan fullveldistímann hefur ætt-
ar- og klíkuveldi verið viðloðandi
Ísland. Stjórnmálamenn hafa hald-
ið um spottana – ákveðið fyrirfram
hverjir mega auðgast umfram aðra.
Á tímabili hafta og skömmtunar
ákváðu stjórnvöld t.d. hver fékk að
flytja inn hveiti fyrir jólin. Það var
mjög gott fyrir þann sem stóð að
innflutningnum – enda öll heimili
landsins á fullu í bakstri fyrir jólin.
Helmingaskiptafyrirkomulag-
ið sem einkennt hefur íslenska
stjórnarhætti allan fullveldistím-
ann hefur stórskaðað samfélagið.
Það fyrirkomulag hefur gert stjórn-
arherrunum á hverjum tíma kleift
að útdeila sameiginlegum eignum
og gæðum landsmanna eftir flokks-
línum. Einkavæðing ríkisfyrirtækja
er þessu marki brennd – stundum
uppnefnd einkavinavæðing. Sala
ríkisbankanna á sínum tíma er gott
dæmi um þetta. Afrakstur þeirra
vinnubragða liggur nú fyrir – ís-
lenska bankakerfið hrundi nánast á
einni nóttu og bankarnir eru nú aft-
ur komnir í hendur þjóðarinnar.
Í einkavæðingarferli viðskipta-
bankanna ákváðu stjórnvöld hvaða
einstaklingar fengu að taka sér stöðu
við 60 m línuna. Aðrir hlupu alla
100 metrana. Fyrirfram var ákveðið
hverjir myndu hreppa gullið – ein-
staklingar í „talsambandi“ við flokk-
ana. Slík vinnubrögð voru regla
frekar en undantekning. Einungis
var tímaspursmál hvenær samfélag,
sem byggði á þannig grunni, byrjaði
að molna innan frá – og það hefur
nú gerst.
dr. Gideon Gono
Við uppbyggingu er skynsamlegt að
horfa til reynslu annarra þjóða. Fyr-
irmyndirnar geta hvort tveggja verið
til að læra af þeim eða forðast mis-
tök. Nýverið endurskipaði Mugabe
dr. Gideon Gono seðlabankastjóra
Simbabve næstu fimm árin, enda
ber hann fullt traust til dr. Gono.
Síðasta opinbera verðbólgumæl-
ing í Simbabve er 23.150.888,87%. Í
peningamálum simbabveska seðla-
bankans sem komu út í apríl 2007
mældist verðbólgan 3.713,9% og olli
ástandið bankastjórninni greinilega
áhyggjum. Viðhorf bankastjórn-
arinnar endurspeglaði þó ekki síst
áhyggjur af því að íbúar Simbabve
tækju mark á skoðunum erlendra
hagspekinga..Það bæri feigðina í
sér. Þrátt fyrir að pressan hafi gagn-
rýnt stjórnvöld harðlega og krafist
afsagnar dr. Gono, m.a. fyrir afglöp í
starfi og tilrauna til framleiðniaukn-
ingar með kaupum á traktorum
og kornskurðarvélum fyrir úrvals-
bændur (en þann flokk fylla bæði
dr. Gono og Mugabe), hafa viðbrögð
yfirvalda verið á einn veg: Alls ekki
megi persónugera vandann í dr.
Gono.
Nýtt samfélag
Úr rústum þeirra stjórnarhátta, sem
nú hafa runnið sitt skeið, gefst okk-
ur tækifæri til þess að móta nýtt
samfélag. Tími ættar- og klíkuveld-
isins á að vera liðinn undir lok. Nið-
urstaðan af þeirri stefnu liggur fyrir
– og er ekki gæfuleg fyrir íslenskan
almenning. Nú gefst okkur tæki-
færi til þess að vinda ofan af þessari
stefnu og móta samfélag með nýj-
um leikreglum. Leikreglurnar verða
að vera skýrar og tryggja það að allir
hafi sömu tækifæri. Keppendurnir í
100 m hlaupinu verða hér eftir allir
að hefja keppni við rásmarkið – ekki
verði fyrirfram ákveðið af stjórn-
völdum hverjir eigi að hreppa gull-
ið. Fyrir slíku samfélagi eiga jafnað-
armenn að berjast.
„Nýja“ Ísland og Dr. Gono
kjallari
svona er íslanD
1 Gaf brjóst í garðinum
Gwen Stefani gaf barni sínu brjóst í
rólegheitum í almenningsgarði fyrir
framan ljósmyndara.
2 Egill fær 800 þúsund og
jakkaföt
Egill Helgason bloggaði um laun sín og
fríðindi sem eru fólgin í jakkafötum og
greiddum símakostnaði.
3 Brand hrósaði íslensku
strákunum
Þjálfari Þýskalands hrósaði íslenska
handknattleiksliðinu að loknum leik
liðanna.
4 Ekki afskrifað hjá mér segir
Styrmir
Fyrrverandi Moggaritstjóri segir skuldir
sínar hjá landsbankanum ekki hafa verið
strikaðar út.
5 „Ég er ekki pabbi minn“
Helga lára Haarde, dóttir Geirs, segir sína
meiningu og hikar ekki við að verja
pabba sinn.
6 kjöti kastað í stjórnarráðið
Mótmælendur egndu fyrir hræætur.
7 krónan sett á flot – sekkur
Gengisvísitalan hefur aldrei verið hærri.
mest lesið á DV.is