Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2008, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2008, Side 28
föstudagur 5. desember 200828 Helgarblað aldrei snúa aftur og búa í heimalandi sínu Ísrael. Hún lítur ekki á sig sem Ísraela í heimsþorpinu. „Hver þú ert er mikilvægara en hvaðan þú ert. Af hverju ætti ég að líta á sjálfa mig sem Ísraela?“ spurði Dorrit árið 2004. Mikið fjaðrafok varð í kringum heimsóknir Dorritar til heimalands- ins sumarið 2006. Þar lenti hún tví- vegis á einum mánuði í vandræðum hjá starfsmönnum innflytjendaeft- irlitsins þar í landi. Í samtölum við íslenska fjölmiðla í kjölfarið sagðist hún efins um hvort hún myndi nokk- urn tímann snúa aftur. Í fyrra skiptið var hún í Ísrael að heimsækja veikan föður sinn þegar hún var kyrrsett á flugvellinum í margar klukkustundir. Ástæðan var sú að hún var ekki með ísraelskt vegabréf. Innan við mán- uði síðar var sama upp á teningnum þegar hún var á ferð þar ásamt fleir- um. Fyrir seinni ferðina kvaðst Dor- rit hafa gengið sérstaklega frá öllu þannig að ekkert þessu líkt endur- tæki sig. Myndskeið af hremming- um forsetafrúarinnar láku í fjölmiðla sem birtu samskipti hennar og starfs- mann innflytjendaeftirlitsins. Dorrit brást ókvæða við meðferðinni á sér. Áhugasöm um landið Dorrit er veraldarvön heimskona sem hefur heillað Íslendinga með áhuga sínum á landinu, lífinu og listum. Hún hefur stutt við bakið á fjölda íslenskra listamanna og hönn- uða með því að kynna vörur þeirra á erlendri grundu, klæðast flíkum þeirra á opinberum viðburðum. Sem dæmi má nefna íslensku lopapeys- una sem frúin hefur einstakt dálæti á en ítrekað hafa birst myndir af henni í lopafatnaði af ýmsum toga og hef- ur hún fjallað mikið um íslenka lop- ann í fjölmiðlum ytra. Í einkaviðtali við Séð og heyrt auglýsti forsetafrúin meðal annars eftir fallegum og þjóð- legum mynstrum á lopapeysubekki sem gagnast gætu í fjöldaframleiðlsu fyrir hátískuhús í Evrópu. Var Dor- rit sögð komin í viðræður við tísku- kónginn Ralph Lauren um íslensku lopapeysuna sem hátískuvöru. Það er markmið Dorritar að koma ungu íslensku listafólki á framfæri og leggja lið velferðarmálum barna og unglinga, einkum þeirra sem eiga við fötlun og geðræn vandamál að stríða. Hún hefur einnig ásamt forsetanum tekið virkan þátt í því að styrkja útrás íslenskra fyrirtækja og markaðsöflun á erlendum vettvangi. Alveg ekta „Hún hefur opnað gáttir sem eru ómetanlegar fyrir tónlistarmenn, myndlistarmenn og leiklistarfólk svo dæmi séu nefnd,“ segir Jakob Frí- mann Magnússon spurður um Dor- rit, en hann telur forsetafrúna hafa nýtt sambönd sín og tengslanet víðs vegar um heiminn til góðs fyrir ís- lenska menningu og þjóð. Hann seg- ir Dorrit hafa komið nokkrum sinn- um á tónleika sína og segir hana afar hrifnæman og skemmtilegan tón- leikagest. „Hún er glaðleg, alþýðleg og hispurslaus. Hjá henni er ekki að finna neinn leikaraskap og einlægni hennar er nokkuð sem Íslending- ar meðtóku eins og skot. Við vorum lánsöm að fá svona glæsilega alþjóð- lega forsetafrú á Bessastaði.“ segir Jakob Frímann, afar hrifinn. „Ég held að þau saman hafi ver- ið afar virk í að liðsinna þeim stétt- um sem ekki hafa viljað binda at- hafnir sínar eingöngu við landið og miðin. Það ber ekki að lasta það þó þjóðhöfðingi veiti þeim liðsinni sem leggja mikið undir og færast mikið í fang hvort heldur sem það er bjór- framleiðsla í Garðaríki, tískuvöru- verslanir í Englandi eða skipaútgerð í Kína.“ segir Jakob og lítur á það sem eitt af skylduhlutverkum for- setahjónanna. „Ég er því algjörlega ósammála þeim sem vilja nú tala forsetann og embættið niður fyrir að hafa gegnt sjálfsögðum og eðlilegum skyldum sínum.“ Fer út fyrir rammann Þótt Dorrit sé með eindæmum dönn- uð og falleg kona með fágaða fram- komu flestum stundum má enn sjá glitta í uppreisnarkonuna í henni. Í obinberum heimsóknum og á öðr- um viðburðum, stórum sem smáum, hefur henni ekki alltaf gengið vel að fylgja eftir formlegum prótókollregl- um. Hún er þekkt fyrir að fara út fyr- ir rammann og tjá skoðanir hisp- urslaust. Aðspurð út í hegðun sína í ítarelgu viðtalið við tímaritið Nýtt Líf árið 2006 eftir að hafa verið kosin Kona ársins hafði hún þetta að segja. „Ég hef fengið athugasemdir fyr- ir hegðun mína og það hefur einn- ig verið hringt á forsetaskrifstofuna vegna hennar. Ég get bara ekki ann- að en hagað mér eins og mér líður. Ég get ekki látið eins og ég sé einhver önnur en ég er, ég er ekki þannig. Ég kem eins fram alla og get ekki breytt mér. Ég vil samt biðjast velvirðing- ar á framkomu minni hafi ég gengið fram af einhverjum,“ segir forsetafrú- in sem ber fyrir sig að hún hafi ekki gengið í venjulegan skóla og því ekki fengið formlega þjálfun sem fólk fær í gegnum slíka skólagöngu. Forsetinn ræddi þessa óhefluðu framkomu Dorritar í viðtali við Kast- ljós á Bessastöðum í haust þegar hann tók þar á móti íslenska hand- knattleikslandsliðinu eftir fræðgðar- för þess á Ólympíuleikana í Peking. Þar sló forsetinn á létta strengi og sagði það fullreynt að fá Dorrit til að fara eftir prótókollum. Eins og Eirík- ur Jónsson bendir á virðist frjálsræði Dorritar heilla landann en þó er ekki öllum skemmt. Vandræðaleg uppátæki „Það fer ekki á milli mála að hún hef- ur oft farið út fyrir prótókollið á op- inberum vettvangi og ég hef sagt það að forsetafrúin þurfi að halda sig við prótókollið og formlegheit í fram- komu og gæta sín á öllum uppátækj- um. Það er nefnilega ekki það sama að vera fræg poppstjarna og gang- ast upp í því að bregða á leik í návist fjölmiðla,“ segir Jón G. Hauksson, rit- stjóri Frjálsrar verslunar. Í föstudags- pistli sínum á heimur.is á dögun- um gagnrýndi hann það dekur sem honum finnst Morgunblaðið vera að sýna forsetafrúnni. Komst hann svo að orði að hann væri að öllum líkindum ekki sá eini sem yrði eilít- ið vandræðalegur fyrir framan sjón- varpsskjáinn þegar Dorrit ákveddi að bregða á leik fyrir myndavélarnar. „En þjóðin lítur upp til hennar, það er engin spurning, en það er eng- um, hvorki Ólafi né forsetaembætt- inu, greiði gerður með oflofi og dekri eins og mér fannst Morgunblaðið sýna þarna.“ segir Jón G. Hauksson. Vandræðalegt atvik Sem dæmi um óheflaða framkomu Dorritar má nefna atvik sem margir undruðu sig á er Friðrik krónprins Danmerkur og eiginkona hans Mary krónprinsessa sóttu Ísland heim í maí á þessu ári. Krónprinsinn og hin íðilfagra eiginkona hans fengu gífur- lega athygli fjölmiðla hér á landi á meðan á heimsókninni stóð og var mikið fjallað um glæsileika prins- essunar. Líklegt þykir að Dorrit hafi fundist hún eitthvað út undan enda vön að stela senunni hvar sem hún kemur en þegar forsetahjónin fóru til Þingvalla ásamt Friðrik og Mary um- vafin fjölmiðlum missti Dorrit örlítið hemil á sér að mati margra. Forseta- frúin fór að stökkva upp á steina og gera hinar ýmsu kúnstir til að fá at- hygli ljósmyndara og þótti mörgum uppátækið hið vandræðalegasta. Björn Blöndal, ljósmyndari Séð og heyrt, hefur fylgt forsetahjónun- um eftir á ýmsum ferðalögum jafnt innanlands sem utan. Hann seg- ir áberandi hversu illa Dorrit láti að stjórn. Hún geri það sem henni sýn- ist þegar henni sýnist og eigi það til að kljúfa sig út úr hópnum á opin- berum samkomum, jafnvel bara til þess að tína blóm úti í haga. Björn segir forsetann oft árangurslaust reyna að grípa fram fyrir hendurnar á Dorrit og hafa hemil á henni. Birni er í þessu sambandi sérlega minnis- stætt þegar hann tók myndir af Dorrit þegar hún skellti sér upp í leðurrúm á sýningu í Listasafni Íslands. „Þetta átti að vera eitthvert sadistarúm og Ólafur reyndi að stoppa hana,“ seg- ir Björn og bætir því við að forseta- embættið hafi reynt að koma í veg fyrir birtingu myndanna. Þá minn- ist Björn þess einnig að einhverju sinni hafi Dorrit yfirgefið föruneyti forsetans úti á landi til þess að spila körfubolta á háhæluðum skóm við krakkahóp. Fleiri viðmælendur blaðsins höfðu á orði hversu hænd Dorrit væri að börnum en sjálf er hún barn- laus og segist aldrei hafa séð eftir því að hafa ekki eignast börn. „Ég lít svona vel út afþví ég á ekki börn. Þegar þú eignast börn ertu upptekin af þeim öllum stundum. Líka þegar þau fullorðnast þá hefurðu áhyggjur. Það er afar lýjandi.“ Ódauðlegar fréttir „Ég hef bara einu sinni hitt hana. Það var á BSÍ í fertugsafmæli Karls Th. Birgissonar,“ segir Eiríkur Jónsson. „Ég var leiddur til hennar og kynnti mig. Hún leit á mig, brosti sínu blíð- asta og sagði „I know you.““ Ekki þarf að koma á óvart að Dorrit hafi þekkt deili á Eiríki enda hafa fáir blaða- menn íslenskir gert Dorrit betri skil en Eiríkur. Fyrst í DV og síðar í Séð og heyrt. Á meðan Ólafur Ragnar og Dor- rit nutu tilhugalífsins í því mátu- lega svigrúmi sem þjóðin gaf þeim skrifaði Eiríkur nokkrar ódauðlegar fréttir um heitkonu forsetans eins og Dorrit var jafnan nefnd í þá daga. Þannig sagði DV frá því að Dor- rit hefði vakið óskipta athygli þegar hún stakk sér til sunds í sundlaug Garðabæjar og synti í S þannig að eftir var tekið. Þá gerði DV sérstaka frétt um að kærustuparið hefði kíkt á myndbandaleigu í Garðabænum og sótt sér mynd til að horfa á á Bessa- stöðum. Ólafur Ragnar ræddi þennan mikla áhuga í viðtali við Mannlíf í byrjun árs: „Það væri mikil aftur- för ef íslenskt samfélag breyttist á þann hátt að forsetinn gæti ekki lifað venjulegu lífi á eðlilegan hátt. Sem betur fer er það enn hægt og engin sérstök vandamál fólgin í því. Þegar við Dorrit vorum að kynnast fund- um við fyrir dálítið þrúgandi áhuga hjá einstaka fjölmiðlasnillingum sem meðal annars fóru að hringja á vídeóleiguna þar sem við sóttum okkur stundum myndir til þess að reyna að komast að því hvaða mynd- ir við værum að horfa á. En því hefur nú linnt, sem betur fer.“ Áhugi þjóðarinnar á Dorrit hefur þó hvergi nærri dvínað og fátt bendir til annars en að hún geti stolið sviðs- ljósinu hvar sem er og hvenær sem er enda virðist þessi glaðværa dem- antadrottning sem stal hjarta forset- ans vera orðin sterkara sameining- artákn en hann sjálfur. kolbrun@dv.is, mikael@dv.is, toti@dv.is Fyrstu kynni gunnar V. andrésson kynnti dorrit fyrir þjóðinni með tár á hvarmi. Mynd GunnAr V. Andrésson Hlúð að heitmanni dorrit vék ekki frá Óalfi á meðan hann lá sárþjáður með brotna öxl í tilhugalífinu. Mynd GunnAr V. Andrésson ÍS L E N S K A /S IA .I S /U T I 39 98 6 11 /0 7 Húfur og vettlingar 1.990kr.Verð frá í jólapakkann HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.