Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2008, Page 34
föstudagur 5. desember 200834 Helgarblað
eva maría Jónsdóttir útvarps-og
sjónvarpskona 5 stig.
„Æðislega hlý, ljúf og móðurleg. dreymir
um að hún lesi fyrir mig sögu á hverju
kvöldi áður en ég sofna og veki mig með
söng á morgnana.“
NL0809104524_002.jpg
Jón atli Jónasson, leikskáld og rödd
forlagsins 5 stig
„maður þorir ekki annað en að kaupa
bækurnar sem hann auglýsir.“
NL-Vigdisf-384.jpg
Vigdís finnbogadóttir fyrrverandi forseti
Íslands 5 stig.
„Hún er alltaf róleg og yfirveguð og
þetta langdregna og-a sem hún segir er
ákaflega lýsandi fyrir málflutning
hennar. Ég held að þetta séu áhrif frá
franska orðinu „et“.“
eiríkur Jónsson blaðamaður 5 stig
„Hrjúf og hlý rödd. mér hlýnar alltaf um
hjartarætur þegar ég heyri rödd eiríks,
hvort sem það er í útvarpi eða
sjónvarpi.“
Hemmi gunn útvarpsmaður og
skemmtikraftur 5 stig
„Þarf ekki að segja meira að mínu mati.
besti fjölmiðlamaður sem þjóðin hefur
átt! maður finnur að honum er ekki sama
og hvað hann hefur gaman af þessu.“
Þorvaldur gylfason hagfræðiprófessor 5
stig
„rödd skynseminnar í dag.“
dóri Hermanns á grundarfirði,
verkalýðshetja á Ísafirði - 5 stig
„einstök rödd.“
Jón múli Árnason fyrrverandi útvarps-
maður 5 stig
„Jón múli heitinn er í minningunni með
langflottastu útvarpsrödd fyrr og síðar.
Þetta var þægilegasta rödd til að vakna
við í útvarpi á morgnana.“
Þorbjörg í appelsín auglýsingunni. - 2
stig.
„Ég vona að appelsínauglýsingin þar
sem Þorbjörg syngur skín í rauðar
skotthúfur fari að birtast aftur á
skjánum. Hún er með svo klingjandi og
skemmtilega rödd og mann langar strax
í appelsín þegar maður heyrir í henni og
ekki síst til að verða besta vinkona
Þorbjargar.“
bessi bjarnason - 4 stig
„enginn sem getur tekið mikka ref eins
og bessi.“
gunnar birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi
4 stig
„ekki margir sem geta búið til jarð-
skjálfta við að humma af sér einhver
vandamál.“
guðni már Henningsson útvarpsmaður
4 stig
„ekki eins og maður sé að hlusta á
útvarpið þegar guðni talar heldur eins
og góður frændi manns sé í heimsókn.“
guðrún Helgadóttir barnabókahöfundur
4 stig.
„Hún er með stillilega og um leið
ákveðna rödd. ef hún segði mér að
ganga út í sjó myndi ég líkast til gera
það, ég vona samt að hún geri það ekki.“
Helgi Hjörvar fyrrverandi útvarpsmaður
4 stig
„mér finnst Helgi með mjög notalega
rödd.“
Ívar guðmundsson útvarpsmaður 4 stig
„Hann er bara með einstaklega þægilega
rödd og það er bara eitthvað svo kósí að
hlusta á hann. maður finnur líka hvað
hann hefur enn gaman af þessu.“
raddir menningarþáttarins Víðsjár á rás
2 4 stig
„rek það langt aftur og til dagsins í dag.
raddirnar mjög hugsandi, djúpar og
ímynd menningarinnar.“
margrét blöndal, útvarpskona 4 stig
„er með ekta útvarpsrödd.“
sigurlaug m. Jónasdóttir sjónvarpskona
3 stig.
„sigurlaug er með mjög þægilega rödd.“
Jón Ársæll Þórðarsson sjónvarpsmaður 3
stig
„mjög einkennandi rödd.“
Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari 3 stig
„Klárlega með vinsælli röddum á landinu
í dag.“
staff morgunútvarps rásar 2 3 stig
„frábært að starta deginum með því að
heyra í þeim.“
Helgarútgáfan á rás 2 3 stig
„felix bergson og guðrún gunnarsdóttir
eru án efa skemmtilegustu og hlátur-
mildustu raddirnar sem heyrst hafa í
útvarpi. Þau hafa alltaf verið í miklu
uppáhaldi hjá mér.“
Jón axel Ólafsson fyrrverandi útvarps-
maður 3 stig
„Jón axel er alltaf flottur. Þetta var gert
svo vel hérna fyrir nokkrum árum.“
björg eva erlendsdóttir fyrrverandi
fréttakona 3 stig.
„traustvekjandi, hlý og glaðvær. Ég
sakna þess að heyra í björgu evu í
útvarpinu jafn mikið og ég sakna bláa
Opalsins. Ó, hvað ég sakna bláa
Opalsins.“
Óli Palli útvarpsmaður 3 stig
„mikill snillingur og veit alveg hvað hann
er að gera. skemmtileg rödd og með
besta tónlistarsmekkinn.“
frosti útvarpsmaður 2 stig
„frosti er að mínu mati einn vanmetnasti
útvarpsmaður landsins. Hefur skemmti-
lega rödd og skemmtilegar skoðanir á
hlutunum. er að gera flotta hluti með
mána í Harmageddon. er alveg sama
hvað fólki finnst um sig en leikur hann
hafi ástæðu til.“
freyr eyjólfsson útvarpsmaður 2 stig
„einstaklega einlæg og vinaleg rödd.
gull af barka og dreng.“
bubbi og Ómar að lýsa boxi - 2 stig
„allt of langt síðan maður heyrði það.
Nostalgíufílingur í því.“
andri freyr Viðarsson útvarpsmaður 2
stig.
„grallaraspói af guðs náð. mesta
„buddy“-rödd sem hægt er að finna. svo
er hann líka svo skemmtilegur. andri var
rekinn frá rás 2 um daginn, það þarf að
koma þessu manni aftur í loftið hið
snarasta!“
Kolbrún björnsdóttir útvarpskona 2 stig.
„mér finnst hún ein af fáum konum í
útvarpi sem virkar. Hún er með svo
eðlilega og hressandi rödd.“
Kristinn r. Ólafsson - 1 stig.
„Hann Kristinn hefur alveg hreint
hrífandi rödd.“
svali útvarpsmaður 1 stig
„svali er búinn að vera lengi í bransan-
um og alltaf haldið sér ferskum. fílaði
hann samt betur sem einstakling í
útvarpinu en stendur sig engu að síður
vel í super. Væri til í að heyra í honum á
bylgjunni í náinni framtíð.“
sigmar Vilhjálmsson útvarpsmaður 1
stig
„röddinn hans simma og dómínós
pitsur eru eins. Og dominos pitsur eru
greasy, bragðlitlar og hálfógeðslegar.“
Ágúst bogason útvarpsmaður 1 stig
„Löngu orðinn djúpraddaðari en bogi
pabbi hans og verður stundum að passa
sig á því að hljóma ekki eins og gunnar
birgisson. Virkilega traustvekjandi rödd,
enda spái ég að Ágúst verður byrjaður
að lesa fréttir innan tíðar.“
Jóhannes Ásbjörnsson útvarpsmaður 1
stig.
„Honum er þetta mjög eðlislægt og
hann er hnyttinn og skemmtilegur.
röddin hans er mjög þægileg og er alls
ekki of há og ekki heldur of lág.“
Kira Kira, tónlistar- og útvarpskona 1 stig
„með sérstaka og skemmtilega
útvarpsrödd.“
morgunleikfimisröddin á rás 1 1 stig
„Oft gaman að hlusta á hana en ég veit
ekki um neinn sem hefur hreyft sig
með.“
guðrún eva mínervudóttir rithöfundur 1
stig
„ guðrún hefur lága, mjúka og
einstaklega þægilega rödd.“
Hverjar eru þessar hljómfögru og auðþekkjanlegu raddir sem við heyrum daginn inn og daginn út? Hvort sem
það eru stjórnmálamenn, fjölmiðlafólk eða aðrir sem hafa áhrif á okkur. Röddin sem vaknar með þér á daginn
og fylgir þér til svefns á kvöldin. DV setti saman sérvalinn dómstól sem valdi bestu raddir Íslands.
Raddir Íslands
Gerður G Bjarklind útvarpskona - 16 stig
„deja vu röddin. rödd sem fylgir manni í gegnum lífið.“
„Hún er með vinalega og þægilega rödd.“
„með ömmulega rödd. ef það væri skollin á heimsstyrjöld
myndi ég vilja að hún segði mér það til að ég héldi ró minni.“
„minnir mann á soðna ýsu, stappaða með tómatsósu.“
„Lætur mér líða eins og amma sé að tala í útvarpinu.“
Gissur Sigurðsson fréttamaður - 15 stig
„gissur er með voðalega mjúka og þægilega rödd.“
„rödd hans er gædd þeim eiginleikum að jafnvel fáránleg-
ustu fiskifréttir hljóma eins og ótrúlegt skúbb.“
„Það er mjög gott að vakna með gissuri og það gerir daginn
betri.“
„mikil og góð fréttamannsrödd.“
Broddi Broddason - 14 stig
„rödd brodda er ímynd traustsins, röddin sem maður vill heyra þegar eitthvað
amar að í þjóðfélaginu.“
„Hinn einni sanni íslenski fréttaþulur.“
„fréttaþulurinn broddi broddason róaði mig heil ósköp í jarðskjálftanum í vor.
Þegar hann sagði mér að vera róleg þá varð ég það.“
„traustvekjandi, vægðarlaus og skýr. Ég myndi ekki trúa því að loftsteinn væri
að fara að skella á reykjavík nema broddi broddason myndi tilkynna það.“
Ólafur Darri Ólafsson, leikari - 8 stig
„Ólafur rymur inn á allar bíómyndaauglýsingar og
les óhikað inn alla bíómyndaþvæluna sem maður
skilur aldrei.“
„donald Lafontaine Íslands. tvímælalaust
sterkasta og besta röddin sem við eigum.“
„með einstaklega fallega rödd.“
Björgvin Halldórsson - 7 stig
„Klassísk rödd.“
„elvis Presley Íslands. Þegar hann kynnir jóladagskrá stöðvar
2 líður mér vel í hjartanu.“
„mjög pró, mjög erlendis. rödd sem virkar jafnvel betur í
lestur en söng.“
„röddin hans er svo djúp, örugg og heillandi.“
Ellý Ármanns, fyrrverandi þula og
fréttamaður - 6 stig
„röddin hennar brúar bilið á milli þess að
vera móðurleg og kynferðisleg. Hljómar
eins og ógeðslegt kombó, en ég fíla það.“
„sexí og seiðandi líka þegar hún les fréttir.“
Þorgeir Ástvaldsson
útvarpsmaður - 5 stig
„Þorgeir er svo ferskur og kann sitt fag
kallinn.“
„Þorgeir er með svo rosalega hvetjandi
rödd.“