Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2008, Side 49
Váfugl er söguleg skáldsaga um framtíð þjóðar. Sagan
hefst í Brüssel, berst til Íslands, Kaupmannahafnar,
Berlínar og endar í Rómaborg. Inn í fl éttast stórvið-
burðir Íslandssögunnar í bland við evrópskt sögusvið
um átök og völd.
Allt sem gerst hefur, getur gerst
og allt sem getur gerst, gerist
– í tímans eilífu elfu.
eftir Hall Hallsson
VÁFUGL
Bókaútgáfan Vöxtur — www.vafugl.is
„Þegar spennan byrjaði greip Váfugl mig algerlega.
Hallur nær alveg tökum á því að vera þriller-höfundur.”
Bjarni Harðarson, fyrrv. alþingismaður.
„Hallur ritar fallega íslensku; hraður stíll og skemmti-
legur. Bókin fer hægt af stað en rífur sig upp og lokin
eru verulega spennandi.”
Soff ía Ófeigsdóttir, bókmenntafræðingur.
„Váfugl er sagnfræði, samtímasaga, framtíðarsýn og
spennutryllir. Afar áhugaverð bók um áhugavert efni.”
Jón Kr. Snæhólm, stjórnmála- og sagnfræðingur.
„Ótrúlega tímabær umræða um Evrópumál.”
Ingvi Hrafn Jónsson, ÍNN.
Í skáldsögu minni Váfugli alla ég um stærsta álitaefni
okkar samtíma; samskipti Íslands og Evrópusambandsins.
Á 19. öld var Ísland við ysta haf, en reif sig undan
danskri stjórn á 20. öld, komst í þjóðbraut og lykilstöðu í
Kaldastríðinu. Ísland varð áhrifamesta smáríki í heimi. Nú
er Ísland aftur á áhrifasvæði Evrópu.
Getur Ísland staðið á eigin fótum út við ysta haf? Vill
þjóðin standa utan Evrópusambandsins? Verður Evrópa
bandalag þjóða eða sameinast álfan? Hvernig líður Íslandi í
evrópsku stórríki; útkjálki eða dýnamískt hérað?