Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2008, Blaðsíða 25
Mánudagur 22. deseMber 2008 25Sport
Klár til Kiel Handknattleiksundrabarnið úr Hafnarfirðinum, aron Pálm-
arsson, hefur skrifað undir þriggja ára samning við þýskalandsmeistara Kielar
og gengur hann til liðs við alfreð gíslason og félaga eftir að tímabilinu með FH
lýkur hér heima. Hann hefur síðustu viku verið í Kiel að ganga frá sínum málum
og skrifa undir samninginn. aroni verður hent beint út í djúpu laugina en hann
mun berjast um leikstjórnandastöðuna við norðmanninn borge Lund á næstu
leiktíð. Þangað til mun aron einbeita sér að FH sem hefur fatast aðeins flugið í
n1-deildinni eftir ótrúlega byrjun og situr í 6. sæti. Þó langt frá nokkurri fallhættu.
Silfurþjálfarinn í tveimur Störfum guðmundur Þórður
guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands í handbolta, hefur skrifað undir samn-
ing við danska liðið gOg svendborg og mun þjálfa það næsti þrjú árin. guð-
mundur tekur við liðinu eftir yfirstandandi tímabil. Hjá liðinu hittir hann fyrir
tvo landsliðsmenn. Þá snorra stein guðjónsson og ásgeir Örn Hallgrímsson.
gOg er stórveldi í dönskum handbolta og var í undanúrslitum um danska
meistaratitilinn á síðasta tímabili en gengið hefur verið öllu erfiðara í ár. sam-
hliða þjálfun gOg mun guðmundur áfram starfa sem landsliðsþjálfari Íslands.
Verslun: 567-7773
Þeir fjölmörgu sem reiknuðu með ein-
hliða og öruggum sigri Nikolays Valu-
ev í titilbardaga gegn hinum fullorðna
Evander Holyfield þurftu að sætta sig
við hið gagnstæða á laugardagskvöld-
ið þegar fjórfaldi 46 ára meistari Ho-
lyfield stóð sig með miklum ágætum
gegn rússneska tröllinu frá Péturs-
borg.
Bardaginn, sem entist í 12 lotur,
þótti harður og furðu jafn. Holyfield,
sem er 11 árum eldri og 45 kílóum
léttari, var mun hreyfanlegri í hringn-
um og sótti stíft að Valuev sem nýtti
sér stærðarmuninn vel í vörninni.
Rússinn hélt sig frá Holyfield með
góðum stungum en náði sjaldan að
lenda hægri hendinni og meiða ald-
inn andstæðing sinn. Aðeins tvisvar í
bardaganum virtist Holyfield finna til
tevatnsins sem teljast verður undra-
vert miðað þá yfirburði sem Valuev
átti að búa yfir.
Holyfield, sem freistaði þess að
verða elsti heimsmeistari sögunnar,
sýndi og sannaði að hann hefur hjarta
meistarans en hann átti allan tímann
við ofurefli að etja og átti erfitt með að
lenda þungum höggum á hinn risa-
vaxna Valuev sem gnæfði yfir gamla
manninn frá Atlanta. Í restina lagði
Holyfield allt í sölurnar og reyndi hvað
hann gat en allt kom fyrir ekki. Valuev
var búinn að lenda fleiri góðum högg-
um. Holyfield náði þó að heilla einn af
dómurunum það mikið með frammi-
stöðu sinni að hann skoraði loturnar
jafnt en hinir tveir skoruðu bardagann
116-112 og 115-114 Valuev í vil.
„Ég er ekki sammála dómurun-
um og sá þetta öðruvísi en þeir, en
ég er ekki ósáttur við frammistöðu
mína,“ sagði Holyfield eftir bardag-
ann. „Hann er erfiður andstæðingur.
Hin ógurlega stærð hans er stærsta
málið og hann nær að nýta sér hana
í hringnum og það er vandamálið. Ég
hélt að ég hefði gert nóg í þessum bar-
daga en núna verð ég að halda heim
á leið og íhuga framtíð mína,“ sagði
Holyfield að lokum.
„Hann var sterkur andstæðingur
og lét mig hafa mikið fyrir sigrinum,“
sagði Valuev. Þessi úrslit hljóta að
vekja spurningar um getu Valuevs. Ef
hann á í miklum erfiðleikum með Ev-
ander Holyfield, sem hafði tapað 4 af
8 síðustu bardögum gegn lítt þekktum
boxurum fyrir þeirra viðureign, hvað
gerir hann á móti Vitali og Wladimir
Klitschko?
Rússneski risinn Nikolay Valuev rétt marði hinn 46 ára Evander
Holyfield í 12 lotu bardaga um WBA-beltið í þungavigt í Sviss.
Töggur í Holyfield
sVEiNN waagE
blaðamaður skrifar: swaage@dv.is
Hart barist Holyfield
stóð uppi í hárinu á
kafloðnum Valuev.