Gerðir kirkjuþings - 1964, Qupperneq 2

Gerðir kirkjuþings - 1964, Qupperneq 2
Kirkjuþing var háð í Reykjavík dagana 25. október til 6. nóvember þ.á. Lögum samkvæmt á Kirkjuþing að koma saman annað hvort ár og var þetta hið fjórða í röðinni og hið fyrsta á nýju kjörtímabili. Þingið hófst með guðsþjónustu í Dómkirkjunni sunnudaginn 25. október kl. 17. Þar predikaði síra Sigurður Pálsson, Selfos en síra óskar J. Þorláksson, dómkirkjuprestur, þjónaði fyrir aít Næsta dag kl. 10 var þingsetning í samkomusal Neskirkju. Hófst athöfnin með söng og bænagjörð, síðan flutti forseti þings ins, Sigurbjörn Einarsson, biskup, ræðu, og kirkjumálaráðherra= Jóhann Hafstein, ávarpaði þingið. Þá var kosin kjörbrefanefnd. Hana skipa: Steingrímur Benediktsson, Þórarinn Þórarinsson, sr. Sigurður Pálsson, sr. Sigurður Guðmundsson og sr. Þorgrímur V. Sigurðsson. Á öðrum fundi, kl. 14 sama dag, skilaði kjörbrefanefnd áliti. Þá voru kosnir fyrsti og annar varaforseti og skrifarar. Því næst voru kjörnar fastanefndir og loks flutti biskup skýrslu um störf kirkjuráðs milli þinga. Fyrsti varaforseti var kosinn Þórarinn Þórarinsson, skóla stjóri, annar varaforseti sr. Gunnar Árnason. Skrifarar voru kosnir þeir sr. Þorgrímur V. Sigurðsson, prófastur, og Sigurjón Jóhannesson, skólastjóri. Kosnar voru þrjár fastanefndir, löggjafarnefnd, allsherja nefnd I og allsherjarnefnd II. í löggjafarnefnd voru þessir menn: Friðjón Þórðarson, sýslumaður, sr. Gunnar Árnason, Þórarinn Þórarinsson, skólastjóri, sr. Þorbergur Kristjánsson og sr. Þorsteinn B. Gíslason, prófastur.

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.