Gerðir kirkjuþings - 1964, Síða 3
í allsherjarnefnd I voru þessir:
Sr. Björn Magnússon, prófessor, frú Jósefína Helgadóttir,
sr. Sigurður Guðmundsson, prófastur, sr. Sigurður Pálsson og
Sigurjón Johannesson, skólastjóri.
í allsherjarnefnd II voru þessir:
Frú Pálína Pálsdóttir, Steingrímur Benediktsson, skóla-
stjóri, Þórður Möller, yfirlæknir, sr. Þorgrímur V. Sigurðsson,
prófastur, og sr. Þorleifur Kristmundsson.
Fundir voru í samkomusal Neskirkju. Fyrstu dagana hófust
þeir kl. 10 árdegis en eftir að mál voru komin til nefnda byrjuðu
þingfundir að jafnaði kl. 13,30. Tvær umræður voru um hvert mál,
svo sem þingsköp ákveða, og var málum vísað til nefnda eftir fyrr
umræðu. Alls komust 18 mál á dagskrá þingsins og voru 16 þeirra
afgreidd, en 2 tillögur voru teknar aftur af flutningsmönnum.
Kosið var í kirkjuráð og voru endurkjörnir sömu aðalmenn
og þeir, er voru í ráðinu síðasta kjörtímabil, en þeir eru:
Sr. Þorgrímur V. Sigurðsson, prófastur,
sr. Jón Þorvarðarson,
Þórarinn Þórarinsson, skólastjóri,
Páll V. G. Kolka, læknir.
Varamenn voru kosnir:
Sr. Þorbergur Kristjánsson,
sr. Sigurður Pálsson,
Hákon Guðmundsson, yfirborgardómari,
Friðjón Þórðarson, sýslumaður
Hér fer á eftir yfirlit yfir gerðir þingsins og eru
málin tekin í þeirri röð, sem þau komu á dagskra.