Gerðir kirkjuþings - 1964, Síða 5
4. Kirkjuþinq
1 • mál
IV. gr.
Tekjur kristnisjóðs eru:
1. Árlegt framlag úr ríkissjóði, er samsvari opinberum
kostnaði af prestaköllum, sem lögð kunna að verða niður
við endurskoðun á prestakallaskipun landsins. Skal miða
við full prestslaun, eins og þau eru á hverjum tíma, svo
og við áætlaðan, opinberan kostnað af prestssetri.
2. Allar vaxtatekjur kirkjujarðasjóðs, enda verði hann
sameinaður kristnisjóði, svo og andvirði kirkjujarða, sem
seldar verða hér eftir.
3. Önnur framlög, sem ákveðin kunna að verða með lögum.
4. Frjáls framlög safnaða, einstaklinga og fyrirtækja.
V. gr.
Kirkjuþing geri tillögu um, hver þeirra prestakalla, sem nú
eru lögfest, skuli sameinuð öðrum, enda verði það í lögum
bundið, að jafnan, þegar rátt þykir sakir breyttra aðstæðna
að leggja niður prestakall eða lögmælt kirkjulegt embætti,
skuli upphæð sú, er við það sparast árlega lögð til kristni-
sjóðs skv. IV. gr. 1.
Nú er prestakall lagt niður sakir mannfækkunar og íbúum
fjölgar aftur og skal það lögfest að nýju, er tala íbúa og
aðrar aðstæður gera það eðlilegt.
Erfiðleikauppbót skal greiða af fe því, sem veitt er vegna
embættiskostnaðar sóknarpresta eða samkvæmt reikningi, sem
kirkjumálaráðuneytið úrskurðar, til þjónustu þeirra presta-
kalla, sem að mati kirkjustjórnar verða sórstaklega erfið
sakir sameiningar.
VI.
Kirkjuráð hinnar íslenzku þjóðkirkju hefur á hendi umsjá og
stjórn kristnisjóðs og ber ábyrgð fyrir Kirkjuþingi á stjórn
hans. Skal kirkjuráð semja starfsáætlun fyrir sjóðinn og
leggja hana, ásamt endurskoðuðum reikningi hans, fyrir hvert
reglulegt Kirkjuþing til fuilnaðarákvörðunar og semþykktar.