Gerðir kirkjuþings - 1964, Side 6

Gerðir kirkjuþings - 1964, Side 6
Málinu var vísað til löggjafarnefndar og gerði hún eftirtaldar breytingartillögur: II.gr. 1, niðurlag: Kandidötum skulu goldin laun skv. 19. flokki kjaradóms. II.gr. 2, síðasta setning: í stað "skipaðir" komi "ráðnir". II.gr. 4: Veita styrki fátækum söfnuðum, styðja námsmenn og ýmislega starfsemi kirkjunnar, svo sem útgáfu kristilegra rita og hjálpargagna í safnaðarstarfi og önnur brýn verkefni. IV. gr. 2: Á eftir "andvirði kirkjujarða", komi "annarra en pre stssetursj arða". V. qr. l.málsl. falli niður, en í staðinn komi viðbót svo- hljóðandj: Jafnframt er þeirri áskorun beint til biskups og kirkjuráðs að leggja ríka áherzlu á að hafin verði nú þegar endurskoðun á prestakallaskipun landsins, ehda verði það í lÖgum bundið, að jafnan þegar rétt þykir sakir breyttra aðstæðna að leggja niður prestakall eða lögmælt kirkjulegt embætti, skuli upphæð sú, er við það sparast árlega, lögð til Kristnisjóðs skv. IV.gr. 1. Voru þessar breytingartillögur ekki gerðar að ágreiningi, er málið kom úr nefnd og til 2. umræðu. Ályktunin svo breytt var samþykkt með atkvæði allra þingmanna.

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.