Gerðir kirkjuþings - 1964, Qupperneq 9
4. Kirkjuþinq
3. mál
6. qr. Kosningin gildir fyrir 6 ár. Á fyrsta aðalsafnaðar-
fundi eftir að lög þessi öðlast gildi, skal kjósa
sóknarnef'ndir eftir þeim í öllum sóknum. Að 3 árum
liðnum skal helmingur kjörinna nefndarmanna, svo og
varamanna, ganga úr nefndinni samkvæmt hlutkesti, en
hinn hlutinn að 6 árum liðnum. Samkvæmt þessu fara síðan
ávalt hinar tvær deildir nefndarmanna frá þriðja hvert
ar a vixl.
Málinu var vísað til allsherjarnefndar II, er gerði
nokkrar breytingartillögur. Voru þær samþykktar af flm. og
frv. afgreitt í þessu formi með samhljóða atkvæðum:
2. qr. 3. málsl. orðist svo:
Sóknarprestur og safnaðarfulltrúi skulu starfa með
sóknarnefnd og sitja fundi hennar. Fundur er lögmætur,
ef 2/3 sókanarnefndarmanna sitja hann, enda hafi hann
verið boðaður með nægilegum fyrirvara. Sóknarnefnd kýs
sér oddvita úr sínum hópi og skiptir að öðru leyti með
ser verkum. Oddviti boðar fundi og stýrir þeim.
4. qr. Sóknarnefndarmenn eru 3 í sóknum, sem færri hafa sóknar-
menn en 500, ella 5, unz tala sóknarmanna er 1000 eða
fleiri, þá skal kjósa tvo menn í viðbót í sóknarnefnd
fyrir hver full tvö þúsund sóknarmanna sem við bætast.
Þó skulu aldrei fleirí £ sóknarnefnd en 11 alls. Kjósa
skal jafnmarga varamenn.