Gerðir kirkjuþings - 1964, Side 16
4. Kirkjuþinq
9. mál
Tillaga til þinqsályktunar.
Flm. Páll Kolka, kirkjuráðsmaður.
Kirkjuþing telur brýna nauðsyn á rannsókn þess, með hvaða hætti
er hægt að auka útgáfustarfsemi kirkjunnar, svo að rödd hennar
nái til alls almennings með aðstoð hins ritaða orðs betur en
verið hefur.
Tillögunni var vísað til allsherjarnefndar II og var álit hennar
á þessa leið :
Nefndin er sammála flutningsmanni um nauðsyn hins ritaða orðs,
en telur rett að um það sé fjallað í sambandi við 7. mál þessa
þings, þar sem eðlilegast er að líta á fræðslu- og útbreiðslu-
starfsemi kirkjunnar sem eina heild, hvaða tækjum sem beitt er.
Tillagan var samþykkt óbreytt, en hins vegar var felld
(með 7: 5 atkv.) tillaga frá flutningsmanni um að kjósa nefnd
til þess að gera þá rannsókn, sem hún gerir ráð fyrir.