Gerðir kirkjuþings - 1964, Page 17
4. Kirkjuþinq
10 mál
Tillaga til þingsályktunar.
Flmo sr. Sigurður Pálsson.
Um fyrningarsjoð.
Kirkjuþing leggur til að sóknarkirkjum se gert skylt að leggja
ákveðinn hluta tekna sinna í fyrningarsjóð. Þeim sjóði skal að-
eins varið til meiriháttar aðgerða á kirkjunni eða endurbyggingar
með samþykki sjóðsstjórnar. Stjórn sjóðsins sé í höndum biskups
og tveggja manna, sem kirkjuráð kýs. Stjórn sjóðsins má og fela
yfirumsjón með viðhaldi kirkna fyrir milligöngu prófasta.
Málinu var vísað til allsherjarnefndar I og lagði hún til, að
tillagan væri orðuð þannig:
Kirkjuþing leggur til að sóknarkirkjum só gert skylt að leggja
ákveðinn hluta tekna sinna í fyrningarsjóð. Fyrningarsjóður se
ávaxtaður í Hinum almenna kirkjusjóði íslands og lúta sömu stjórn
og starfsreglum, eftir því sem við á. Fyrningarsjóði skal aðeins
varið til meiri háttar aðgerða á kirkjum eða til endurbygginga
með samþykki sjóðsstjórnar. Stjórn sjóðsins má og fela yfir-
umsjón með viðhaldi kirkna fyrir milligöngu prófasts.
Svohljóðandi viðbótartillaga kom frá Sigurjóni Jóhannessyni:
Jafnframt beinir þingið þeirri áskorun til sóknarnefnda, að þær
geri það, sem í þeirra valdi stendur til þess að við halda kirkjum
sínum sem bezt og neyti í því efni heimildar um hámark sóknar-
gjalda.
Var viðbótartillaga þessi samþykkt og ályktunin síðan.