Gerðir kirkjuþings - 1964, Page 18
4. Kirkjuþing
11. mál
Tillaqa til þingsályktunar♦
Flm. sr. Sigurður Pálsson.
Um varðveizlu oq ráðstöfun kirkjuqripa.
Kirkjuþing felur kirkjuráði, að setja reglur um varðveizlu og
ráðstöfun kirkjugripa með það fyrir augum að gripir kirkna séu
örugglega varðveittir og að sóknarnefndir eða kirkjuhaldari geti
ekki ráðstafað þeim án samþykkis safnaðar og kirkjustjornar eða
þess fulltrúa sem hún kann að fela þau mál. Sóknarnefndum se
einnig gert að skyldu að halda tæmandi skrá um alla þá muni sem
í kirkjunni eru,bæði þá, sem nothæfir eru,og aflóga og gera grein
fyrir tilkomu þeirra svo sem unnt er. Þar séu jafnóðum skráðir
nýir munir og gerð grein fyrir þeim, sem hverfa úr eigu kirkjunn-
ar. Þessi skrá nái einnig til bóka kirkjunnar.
Allsherjarnefnd II fjallaði um málið og lagði til, að tillagan
væri samþykkt að viðbættu þessu niðurlagi:
Einnig felur þingið kirkjuráði að gefa bendingar um meðferð
aflagðra kirkna.
Þannig breytt var ályktunin samþykkt.