Gerðir kirkjuþings - 1964, Side 23

Gerðir kirkjuþings - 1964, Side 23
4. Kirkjuþinq 13. mál kross framan við nafn þess, er hann kýs. Prófastur skilar atkvæði á sama hátt. Að lokinni atkvæðagreiðslu eru atkvæði innsigluð og send biskupi í póstábyrgð, ásamt afriti af gjörða- bók kjörfundar. Verði ágreiningur um undirbóning eða framkvæmd kosningar eða hun kærð, fellir kjörstjórn órskurð um málið. Kjörstjórn skipa, auk biskups, 2 menn, er kirkjumálaráðuneytið skipar til 5 ára í senn. 5. gr. Þegar kjörstjórn hefur kynnt sér niðurstöðu kjörfundar, sendir biskup afrit af bókun hennar til kirkjumálaráðherra, ásamt rökstuddri tillögu sinni um veitingu. Biskup styður með tillögu sinni þann umsækjanda, er hlotið hefur 2/3 atkvæða kjörmanna. Skal veita honum embættið, enda telst hann hafa hlotið lögmæta kosningu. Nái umsækjandi ekki 2/3 atkvæða kjörmanna, telst kosningin ólögmæt, og mælir biskup þá með þeim tveimur um- sækjendum, ef um fleiri en einn er að ræða, er hann telur, þegar tillit er tekið til allra aðstæðna, standa næst því að hljóta embættið, og í þeirri röð, sem næst liggur að hans dómi. Veitir ráðherra því næst embættið öðrum hvorum þessara tveggja. 6. gr. Heimilt er kjörmönnum að kalla prest. Ef 3/4 kjörmanna prestakallsins er einhuga um að kalla tiltekinn prest eða guð- fræðikandidat án umsóknar, gera þeir prófasti viðvart um það í tæka tíð, en hann tilkynnir biskupi, sem felur þá prófasti að boða kjörmenn prestakallsins á sameiginlegan fund innan viku og er þá embættið eigi auglýst. Samþykki 3/4 kjörmanna að kalla tiltekinn mann til embættisins, sem lögum samkvæmt á rátt til prestsembættis í íslenzku þjóðkirkjunni, skal biskup birta köllunina þeim presti eða kandidat, sem í hlut á. Taki hann köllun, skal veita honum embættið, ella er embættið auglýst til umsóknar.

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.