Gerðir kirkjuþings - 1964, Page 23
4. Kirkjuþinq
13. mál
kross framan við nafn þess, er hann kýs. Prófastur skilar
atkvæði á sama hátt. Að lokinni atkvæðagreiðslu eru atkvæði
innsigluð og send biskupi í póstábyrgð, ásamt afriti af gjörða-
bók kjörfundar. Verði ágreiningur um undirbóning eða framkvæmd
kosningar eða hun kærð, fellir kjörstjórn órskurð um málið.
Kjörstjórn skipa, auk biskups, 2 menn, er kirkjumálaráðuneytið
skipar til 5 ára í senn.
5. gr.
Þegar kjörstjórn hefur kynnt sér niðurstöðu kjörfundar,
sendir biskup afrit af bókun hennar til kirkjumálaráðherra, ásamt
rökstuddri tillögu sinni um veitingu. Biskup styður með tillögu
sinni þann umsækjanda, er hlotið hefur 2/3 atkvæða kjörmanna.
Skal veita honum embættið, enda telst hann hafa hlotið lögmæta
kosningu. Nái umsækjandi ekki 2/3 atkvæða kjörmanna, telst
kosningin ólögmæt, og mælir biskup þá með þeim tveimur um-
sækjendum, ef um fleiri en einn er að ræða, er hann telur, þegar
tillit er tekið til allra aðstæðna, standa næst því að hljóta
embættið, og í þeirri röð, sem næst liggur að hans dómi. Veitir
ráðherra því næst embættið öðrum hvorum þessara tveggja.
6. gr.
Heimilt er kjörmönnum að kalla prest. Ef 3/4 kjörmanna
prestakallsins er einhuga um að kalla tiltekinn prest eða guð-
fræðikandidat án umsóknar, gera þeir prófasti viðvart um það í
tæka tíð, en hann tilkynnir biskupi, sem felur þá prófasti að
boða kjörmenn prestakallsins á sameiginlegan fund innan viku og
er þá embættið eigi auglýst. Samþykki 3/4 kjörmanna að kalla
tiltekinn mann til embættisins, sem lögum samkvæmt á rátt til
prestsembættis í íslenzku þjóðkirkjunni, skal biskup birta
köllunina þeim presti eða kandidat, sem í hlut á. Taki hann
köllun, skal veita honum embættið, ella er embættið auglýst
til umsóknar.