Gerðir kirkjuþings - 1964, Qupperneq 30

Gerðir kirkjuþings - 1964, Qupperneq 30
4. Kirkjuþing 18i mál Tillaqa til þinqsályktunar um æskulýðsfelög■ Flm. Jósefína Helgadóttir- Kirkjuþingið ályktar að vinna beri að því, að stofnuð verði æskulýðsfelög þjóðkirkjunnar í öllum söfnuðum landsins. Prestar hafi forgöngu um stofnun felaganna, hver í sínum söfnuði, og verði aðalleiðbeinendur þeirra, en fái aðra áhugasama menn til liðs við sig að þeim verkefnum. Það sé markmið felaganna að fá ungmennin til þátttöku í guðsþjónustum og kirkjulegu starfi, en jafnframt að fegra og bæta skemmtanalífið, með því að halda hollar og áfengislausar skemmtisamkomur ungra manna, og beina hugum þeirra að göfugum viðfangsefnum til heilla fyrir land og þjóð . Málinu var vísað til allsherjarnefndar I. Álit hennar var á þessa leið : Nefndin er sammála um eftir nánari athugun tillögunnar, að fyrri hluti hennar orðist þannig: Kirkjuþing fagnar aukinni æskulýðsstarfsemi kirkjunnar á undanförnum árum, og telur nauðsynlegt, að só starf- semi nái til allra æskumanna landsins, og hafi prestar og æskulýðsleiðtogar kirkjunnar nána samvinnu um þetta. Markmiðið só m.a. að fá ungmennin o.s.frv. óbreytt niður- lag tillögunnar. í samræmi við þetta breytist fyrirsögn tillögunnar svo, að í stað æskulýðsfelög komi: æskulýðsstarfsemi. 1 Þannig breytt var ályktunin samþykkt.

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.