Víkurfréttir - 22.11.2012, Page 14
fimmtudagurinn 22. nóvember 2012 • VÍKURFRÉTTIR14
MENU Veitingar ehf - Grænásbraut 619 - Reykjanesbæ -
veislur@simnet.is - s. 421 4797 og 861 3376
Bjóðum upp á 5 tegundir
Karlakór Keflavíkur er nú að ljúka sínu 59. starfsári. Á árinu
bar margt til tíðinda hjá kórnum.
Kórinn hélt sitt árlega nýliðakvöld í
október þar sem nýjum og væntan-
legum kórfélögum er boðið til sviða-
veislu. Þá hélt kórinn jólatónleika í
samvinnu við Grundartangakórinn,
bæði í Ytri- Njarðvíkurkirkju
og Vinaminni á Akranesi. Þá
heimsótti kórinn dvalarheimili
aldraðra á Suðurnesjum fyrir jólin;
Garðvang, Hlévang og Víðihlíð.
Eftir áramót söng kórinn nokkrum
sinnum í Bláa lóninu með rokkar-
anum Eyþóri Inga. Kórinn var
einn fimm kóra sem valinn var til
þátttöku í 100 ára afmælistónleika
Karlakórsins Þrasta í Hörpunni
vorið 2011. Kórinn söng með
Lögreglukórnum í Stapanum
þegar þeir kvöddu sameiginlegan
stjórnanda kóranna, Guðlaug
Viktorsson, og kórinn hélt sína
árlegu vortónleika í Stapanum og í
Grindavíkurkirkju. Þá söng kórinn
við sjómannamessu á “Sjóaranum
síkáta” og við hátíðarhöld á sjó-
mannadeginum í Grindavík.
Kórinn söng einnig við allmargar
jarðarfarir eins og undanfarin ár.
Stjórnendaskipti
Á árinu kvaddi
stjórnandi kórsins
Guðlaugur Viktors-
son kórinn. Guð-
laugur hafði stjórnað
kórnum í átta ár, en
heldur nú erlendis
til framhaldsnáms.
Nýr stjórn-andi kórsins er Helga
Bryndís Magnúsdóttir. Hún tók við
kórnum síðla sumars 2012. Bjóðum
við hana velkomna til starfa.
Helga Bryndís hóf tónlistarnám í
Vestmannaeyjum hjá Guðmundi H.
Guðjónssyni. Hún fór síðan í Tón-
listarskólann í Reykjavík og naut þar
handleiðslu Jónasar Ingimundar-
sonar. Hún útskrifaðist árið 1987
sem píanókennari og einleikari.
Helga Bryndís stundaði framhalds-
nám í Vínarborg og Helsinki. Hún
starfaði sem organisti og kórstjóri
við Möðruvallakirkju í Hörgárdal og
við kirkjurnar þar í kring og einnig
í kirkjunum í Svarfaðardal og var
stjórnandi Samkórs Svarfdæla. Hún
starfaði einnig við Tónlistarskólann
á Akureyri og Tónlistarskóla Dal-
víkurbyggðar. Helga Bryndís hefur
einnig verið virk sem píanóleikari,
í kammertónlist, með söngvurum
og í CAPUT hópnum. Hún hefur
komið fram sem einleikari með
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og
Sinfóníuhljómsveit Íslands. Helga
Bryndís starfar nú auk kennslu sem
organisti við Grindavíkurkirkju og
stjórnandi Karlakórs Keflavíkur.
Framundan hjá kórnum
Starf Karlakórs Keflavíkur hefur um
margra ára skeið staðið á föstum
grunni. Kórinn æfir frá því um
miðjan september til apríl eða maí
og fer það svolítið eftir verkefnum.
Kórinn heldur árlega vortónleika
og kemur fram við ýmis tilefni
þess utan. Samstarf við aðra kóra
og Samband íslenskra karlakóra
er samofið starfinu og mikil-
vægur þáttur í að stofna til nýrra
Mannlíf og Menning
Starfið hjá Karla-
kór Keflavíkur
kynna og halda tengslum við aðra
karlakóra víðsvegar af landinu.
Karlakórinn ferðast á hverju ári
með vortónleika sína, oftast er
það innanlands en einnig hefur
kórinn ferðast til annarra landa.
Jólatónleikar
Í vetur mun kórinn ásamt Barnakór
Holtaskóla og Sigríði Aðaltsteins
messósópran halda hina árlegu
Kertatónleika, jólatónleika sína
í Ytri-Njarðvíkurkirkju fimmtu-
daginn 29. nóvember kl. 20:30.
Kórinn mun einnig taka þátt í Jóla-
tónleikum kóra á Suðurnesjum sem
fram fara í Stapanum fimmtudaginn
6. desember. Á þeim tónleikum
taka þátt Kvennakór Suðurnesja,
Kirkjukór Keflavíkurkirkju, Söng-
sveit Suðurnesja, Söngsveitin Vík-
ingarnir auk Karlakórs Keflavíkur.
Þar munu kórarnir syngja nokkur
lög hver í sínu lagi og sameinast í
einn stóran kór að lokum. Stjórnandi
tónleikanna er Arnór Vilbergs-
son organisti Keflavíkurkirkju.
Kórinn 60 ára 2013
Mikið verður um að vera á
afmælisári karlakórsins.
Kórinn mun halda sína árlegu
árshátíð í janúar og vor-
tónleika í maí næstkomandi.
Pétursborg í Rússlandi
Þá stefnir kórinn á heimsókn til
Pétursborgar í Rússlandi í byrjun
júní 2013 þar sem kórinn mun halda
tónleika, bæði einir og með kór Átt-
hagafélags Strandamanna. Auk þess
mun kórinn fara í skoðunarferðir
í þessari stórkostlegu borg.
Haustið 2013 verður svo mikið um
dýrðir áður en afmælisárinu lýkur.
2014
Í lokin er rétt að geta þess að
kórinn mun sjá um “Kötlumót”,
þ.e. kóramót Sambands íslenskra
karlakóra sem fram mun fara 2015.
Þá geta Suðurnesjamenn vænst
heimsóknar allt að 600 kórfélaga
víðsvegar að af landinu. Kór-
arnir munu halda tónleika hver í
sínu lagi og að lokum sameinast í
einum stórum 600 manna kór.
Nýir kórfélagar velkomnir
Karlakór Keflavíkur hefur áhuga á
því að stækka kórinn og bæta við
mönnum í allar raddir. Allir sem
hafa áhuga eru hvattir til að koma á
æfingu í Karlakórshúsið að Vestur-
braut 17 eða hafa samband við:
Vilhjálmur Ingvarsson S: 664-0392
Guðjón Kristjánsson: 899-2739
Páll Hilmarsson: 699-6869
Æfingatímar eru á fimmtudags-
kvöldum klukkan 19:30.