Víkurfréttir - 22.11.2012, Qupperneq 18
fimmtudagurinn 22. nóvember 2012 • VÍKURFRÉTTIR18
VIÐ VERÐUM
ALLTAF Í LEIÐINNI
VIÐ MUNUM LÆKKA LYFJAKOSTNAÐ
SUÐURNESJAMANNA
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Sendu nú karlinn út til að
setja upp jólaseríurnar!
– með réttu græjunum
Áltrappa 5 þrep
5.990
Áltrappa 4 þrep
4.990
Álstigi 2x12 þrep
3,61-6,1 m
25.990
Álstigi 12 þrep 3,38 m
7.390
Álstigi 3x8 þrep
2,27-5,05 m
16.990
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Vestmannaeyjum
Guðrún Skagfjörð Sigurðardóttir er stödd í Elhúsinu hjá Víkurfréttum að
þessu sinni. Hún ætlar að deila einfaldri og
skemmtilegri uppskrift með lesendum en
hún hefur ákaflega gaman af því að elda.
„Ég myndi segja að ég væri dugleg að taka til
hendinni í eldhúsinu. Þegar ég vinn á kvöldin eldar
maðurinn minn yfirleitt pylsur sem börnin eru ekki
hrifin af,“ segir Guðrún létt í bragði. Oftast eldar
Guðrún fisk eða kjúkling en hún er ekki mikið fyrir
að borða kjöt. „Ég hef mjög gaman af því að elda
mat og fer reglulega með afganginn í vinnuna og
leyfi Gísla vinnufélaganum mínum
að smakka,“ en Guðrún vinnur í
íþróttahúsinu við Heiðarskóla. Það
er frábær vinnustaður að sögn Guð-
rúnar en henni finnst afar gaman að
vera í kringum börn. Guðrún er gift
Þórhalli Garðarssyni og saman eiga
þau þrjú börn. Elsta stelpan er farin
að heiman en þær mæðgur voru dug-
legar að elda saman. Eftir eru þó tveir
drengir á heimilinu sem eru duglegir
að hjálpa Guðrúnu í eldhúsinu,
bæði við eldamennskuna og að ganga frá. Helstu
áhugamál Guðrúnar eru íþróttir og útivera en hún
hefur stundað Metabolic af krafti undanfarið og
segir hún það vera hreint frábæra líkamsrækt.
Uppskriftin:
500-1000 g kjúklingalundir eða bringur.
Einnig er hægt að notast við fisk.
2 krukkur rautt pestó
1 dós sýrður rjómi
1/2 krukka fetaostur
„Kjúklingurinn/fiskurinn settur
í eldfast form, blanda saman
rauðu pestói, sýrða rjómanum og
fetaostinum. Sett yfir kjúklinginn
og hitað í ofni við 180°C í 30 mínútur. Með rétt-
inum hef ég yfirleitt blöndu af sætum kartöflum,
venjulegum kartöflum og graskeri sem ég sker í
bita og set olíu yfir, hita svo í ofni í um 30 mín-
útur. Svo er ómissandi að hafa ferskt salat með. Í
það set ég spínat, lambhaga salat, papriku, gúrku,
avokadó og hnetur. Gott er að setja fetaost yfir
það líka en það eru ekki allir sem kjósa það.“
Vinsæll eftirréttur á heimili Guðrúnar er svo
kókósís sem hún þekur með kókosbollum og ber
fram með ferskum bláberjum og jarðarberjum.
marÍa SKaGFJÖrÐ
Í ELDHÚSINU
PEStó kjÚkLINgUr
og graSkEr
Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur í Grinda-
vík sl. föstudag á vegum mennta-
og menningarmálaráðherra.
Katrín Jakobsdóttir ráðherra
heimsótti fyrst grunnskólann
í Grindavík og fór svo á leik-
skólana. Að endingu var hátíð í
Kvikunni.
Ráðherranum var kynnt starfsemi
grunnskólans. Róbert Ragnarsson
bæjarstjóri, skólastjórnendur og
ýmsir fleiri tóku á móti ráðherr-
anum og kynntu fyrir henni m.a.
þá uppbyggingu sem framundan er
í skólanum en þar á að byggja sem
kunnugt er tónlistarskóla og bóka-
safn við skólann. Þá var vel tekið á
móti ráðherranum á leikskólunum
Laut og Króki.
Katrín skoðaði svo saltfisksýn-
inguna í Kvikunni og í kjölfarið var
svo hátíð í salnum þar sem m.a. var
upplestur og tónlistaratriði. Þar
sungu Rebekka Rós Reynisdóttir
og Fanný Þórsdóttir við undir-
spil Renötu Ivan. Tveir nemendur
grunnskólans voru með upplestur,
þau Margrét Rut Reynisdóttir og
Sigurður Bjartur Hallsson en bæði
unnu þau Stóru upplestrarkeppn-
ina á sínum tíma.
Mennta- og menningarmála-
ráðherra heimsótti Grindavík
Umfelgun fólksbíla kr. 4000,-
Allar almennar
bílaviðgerðir
Iðavellir 9c - 230 Keavík - Símar 421 7979, 858 3340
Erum með bílatölvu, lesum af öllum
gerðum bíla, smurþjónusta
og bílaþvottur