Nesfréttir - 01.01.2009, Side 4
4 NES FRÉTTIR
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Svafar Magnússon
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Þorsteinn Elísson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
Framkvæmdum
að ljúka
Miklar endurbætur hafa átt sér
stað á aðkomu og umhverfi Sund-
laugar Seltjarnarness, fótboltavallar
og heilsugæslunnar á árinu. Er nú
verið að leggja lokahönd á hellulögn
við hús heilsugæslunnar sem er
prýði af. Framkvæmdum verður lok-
ið á næstunni.
Áframhaldandi uppbyggingu
þráðlauss nets á Seltjarnarnesi
hefur veri frestað. Búið er að
vinna alla undirbúningsvinnu svo
sem hönnun, skipulagningu og
útfærslu.
Vegna versnandi aðstæðna í
þjóðarbúskapnum frá því í mars
á síðasta ári varð að fresta fram-
kvæmdum við verkefnið sökum
þess að verð á búnaði hefur þrefald-
ast frá því að fjárhagsáætlun var
gerð. Miðað við þróun mála er því
ljóst að vinna við verkefnið í heild
mun ekki hefjast fyrr rofar til í efna-
hag landsins, en reiknað er með að
unnt verði að tengja einhvern hluta
bæjarins á næstu mánuðum.
Í október 2007 undirrituðu Sel-
tjarnarnes og Vodafone viljayfirlýs-
ingu um samstarf um uppbyggingu
þráðlausra fjarskipta á Seltjarnar-
nesi. Í yfirlýsingunni kemur fram
að með samstarfinu mun Vodafone
taka að sér uppbyggingu á WiFi og
WiMAX tækni til þráðlausra fjar-
skipta á Seltjarnarnesi. Stefnt var
að því að uppbyggingu netsins lyki í
haust. Þegar hefur verið komið upp
neti í Bókasafni, leik- og grunnskól-
um, Íþróttamiðstöð og verið er að
vinna að uppsetningu í félagsheimili
og félagsmiðstöðinni Selinu. Reikn-
að er með að hægt verði að setja
upp net í golfskála NK og Fræðasetr-
inu í Gróttu fyrir áramót.
Þráðlausu neti frestað
Lionsklúbburinn og Selkórinn á Seltjarnarnesi
halda sameiginlegt þorrablót í félagsheimilinu
laugardaginn þann 31. janúar í samvinnu við
Veisluna veitingaeldhús. Allir Seltirningar og
gestir þeirra velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Í boði verður úrvals þorramatur, skemmtiatriði,
dans og gleði.
Skemmtunin hefst kl. 19:00 og miðaverð
er aðeins 5.000 kr.
Miða og borðapantanir í síma 899 9583 (Guðjón).
Sala og afgreiðsla miða verður í anddyri félagsheimilisins
á fimmtudaginn 29. janúar kl. 17:00 til 19:00.
Selkórinn og Lionsklúbbur Seltjarnarness
ÞORRABLÓT
31. JANÚAR
FÉLAGSHEIMILI
SELTJARNARNESS