Nesfréttir - 01.01.2009, Blaðsíða 14
14 NES FRÉTTIR
Grótta átti fulltrúa á meistara-
móti Norðurlanda í handknattleik
sem haldið var dagana 26. til 30.
desember í Gautaborg. Stelpurn-
ar sem fæddar eru árið 1994 eru
ríkjandi íslandsmeistarar í sínum
flokki. Var þeim boðið á mótið og
mættu þar meisturum hinna land-
anna. Mótið er haldið árlega fyrir
krakka á aldrinum 13 til 16 ára.
Auk Gróttu voru FH-ingar með
eitt lið í karlaflokki.
Stelpurnar sáu sjálfar um alla
fjáröflun og tóku að sé hin ýmsu
verkefni, m.a söfnuðu þær dósum,
bjuggu til uppskriftarbók, seldu
klósettpappír og fleira. Davíð B.
Gíslason sá um allt skipulag ferðar-
innar og þökkum við honum sem
og öðrum foreldrum kærlega fyrir
hjálpina.
Við gistum í Katrinelund skólan-
um sem er rétt hjá Ullevi leikvang-
inum og er þetta sama svæði og
Partille mótið er haldið. Stelpurnar
þekktu því svæðið mjög vel. Keppt
var í fimm riðlum og lentum við í
riðli með liðum frá Noregi, Dan-
mörku og tveimur sænskum liðum.
Riðillinn reyndist okkur erfiður
og enduðum við með einn sigur í
fjórða sæti. Við fórum því í B-úrslit
þar sem við unnum þrjá af fjórum
leikjum okkar og enduðum í fyrsta
sæti B úrslita.
Ferðin gekk framar vonum og
mórallinn í hópnum alveg fyrsta
flokks. Þrátt fyrir erfiða byrjun
héldu stelpurnar haus og skemmtu
sér konunglega alla ferðina. Á milli
leikja héldu stelpurnar uppi fjör-
inu með því að spila Actionary og
kíkja í mollið. Fararstjórar ferðar-
innar voru Jói og Bidda og stóðu
þau vaktina með stakri prýði. Við
viljum þakka þeim sérstaklega fyr-
ir gott samstarf og góðar stundir.
Hægt er að lesa nánar um ferðina
á heimasíðu Gróttu, www.grotta-
sport.is
GETRAUNANÚMER
GRÓTTU ER
170
G R Ó T T U S Í Ð A N www.grottasport. is
Fjórði flokkur kvenna á
Norden Cup í Gautaborg
Finnur Ingi Stefánsson, hand-
knattleiksmaður var valinn Íþrótta-
maður Gróttu 2008. Finnur Ingi
var útnefnur Íþróttamaður Gróttu
miðvikudaginn 14.janúar sl. við
hátíðlega athöfn í Hátíðarsal félags-
ins. Finnur Ingi hefur stundað
handknattleik með Gróttu frá sex
ára aldri og sýnt mikla áhugasemi
og vilja til þess að ná árangri. Finn-
ur hefur leikið með meistaraflokki
sl. þrjá vetur, eða allt frá því að
Grótta tefli fram meistaraflokki aft-
ur. Finnur Ingi er markahæsti leik-
maður meistaraflokksins þennan
veturinn, en liðið situr sem stend-
ur í efsta sæti 1. deildar og er kom-
ið í undanúrslit bikarkeppninnar.
Finnur er einn af burðarásum liðs-
ins og leikmaður sem að liðið get-
ur illa leikið án.
Finnur hefur átt sæti í yngri lands-
liðum Íslands undanfarin ár og
hefur að undanförnu bætt sem gíf-
urlega sem leikmaður og sýnt getu
sína í leikjum vetrarins. Finnur er
mikil fyrirmynd fyrir yngri leikmenn
félagins en hann hefur verið einstak-
lega duglegur að æfa, neytir hvorki
áfengis né tóbaks. Hann er leikmað-
ur sem að allir yngri leikmenn líta
upp til.
Ögmundur Viðar Rúnarsson frá
knattspyrnudeild og Dominiqua
Alma Belányi frá fimleikadeild voru
einnig tilnefnd til Íþróttamanns
Gróttu. Að auki voru ungir og efnileg-
ir íþróttamenn valdir en þeir voru:
Eiríkur Ársælsson úr knattspyrnu.
Guðmundur Bragi Árnason úr knatt-
spyrnu. Kristinn Ólafsson úr knatt-
spyrnu. Sigurður Steinar Jónsson
einnig úr knattspyrnu. Edda Hulda
Ólafardóttir úr fimleikum. Guð-
mundur Óli Ólafarson úr fimleikum.
Arnar Imsland úr handknattleik.
Ásrún Birgisdóttir úr handknattleik.
María Guðjónsdóttir úr handknatt-
leik og Viggó Kristjánsson úr hand-
knattleik. Dominiqua Alma Belányi
og Embla Jóhannesdóttir voru
verðlaunaðar fyrir að hafa leikið í
fyrsta skipti fyrir Íslands hönd. Það
er ósk Íþróttafélagsins Gróttu að
þessir iðkendur og leikmenn haldi
áfram á þessari braut og eigi eftir
að blómsta enn frekar á leikvellin-
um og fimleikagólfinu.
Finnur Ingi
íþróttamaður Gróttu
Leikmenn Gróttu hafa ekki spil-
að mikið að undanförnu vegna
jólahátíðarinnar, en æft þeim mun
meira. Nú þegar nýja árið er geng-
ið í garð er Gróttuliðið á þeim stað
sem það ætlaði sér, efsta sæti.
Auk þess er liðið komið í undan-
úrslit í Eimskipbikarnum og mætir
liðið Selfossi fyrir austan fjall 7. eða
8. febrúar næstkomandi. Langt er
liðið síðan lið frá Gróttu hefur kom-
ist svo langt í bikarnum og hvetjum
við alla til að gera sér ferð austur til
að fylgjast með leiknum. Næstu helg-
ar hefja Gróttumenn leikinn aftur
gegn Þrótturum 10. janúar á útivelli
og síðan Aftureldingu 16. janúar á
útivelli. Eftir óvænt tap í síðasta leik
er mikilvægt fyrir liðið að hefja leik
af fullum krafti og halda toppsætinu
frá andstæðingum liðsins sem gera
að því harða hríð.
Grótta í efsta sæti
Um jól og áramót hélt unglinga-
ráð Gróttu æfingabúðir í hand-
bolta fyrir krakka á aldrinum 13
til 17 ára. Æfingarnar voru dag-
lega og voru allir þjálfarar félags-
ins sem komu að verkefninu eins
og þjálfarar meistaraflokks þeir
Ágúst Jóhannsson og Magnús
Kári Jónsson.
Farið var í flest atriði sem máli
skipta í handbolta og þjálfun eins
og jafnvægi, samhæfingu, vöðva-
styrk og liðleika. Einnig var farið í
sóknarleik, varnarleik og hröð upp-
hlaup.
Æfingabúðirnar enduðu með
uppskeruhátíð þar sem allir borð-
uðu saman, horfðu á fornar hand-
boltahetjur og fóru í stórskemmti-
lega leiki. Krakkarnir höfðu mjög
gaman af þessu framtaki og á það
örugglega eftir að koma að gagni í
leikjum síðar í vetur.
Æfingabúðir um jólin
Finnur Ingi Stefánsson, handknatt-
leiksmaður var valinn Íþróttamað-
ur Gróttu 2008