Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 17.11.2003, Síða 1
Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar 32. tbl. 11. árg. nr. 354 17. nóv. 2003
Ritstjórn
og umsjón útgáfu:
Viktor Arnar
Ingólfsson
Ábyrgðarmaður:
Gunnar Gunnarsson
Prentun: Gutenberg
Ósk um áskrift sendist til:
Vegagerðin
Framkvæmdafréttir
Borgartúni 7
105 Reykjavík
(bréfsími 522 1109)
eða vai@vegag.is
Vegagerðin gefur út Framkvæmdafréttir til að kynna útboðs-
framkvæmdir fyrir verktökum. Fyrirhuguð útboð eru kynnt,
útboðsauglýsingar eru birtar og greint er frá niðurstöðum og
samningum. Auk þess er í blaðinu annað það fréttaefni sem
verður til hjá stofnuninni og talið er að eigi erindi til verktaka.
Áskrifendur eru m.a. verktakar, verkfræðistofur og fjölmiðlar.
Áskrift er endurgjaldslaus.
32. tbl. /03
Grundartangavegur (506),
Hringvegur - hafnarsvæði 03-093
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í nýlögn Grundar-
tangavegur (506) frá Hringvegi að hafnarsvæði
Grundartangahafnar. Lengd kafla er 2,6 km.
Helstu magntölur eru:
Skeringar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 13.400 m3
þar af bergskeringar . . . . . . . . . . . . 2.500 m3
Ræsalögn . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 336 m2
Fyllingar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 31.800 m3
Neðra burðarlag . . . . . . . . . . . . . . . . 25.000 m3
Efra burðarlag . . . . . . . . . . . . . . . . . . 5.000 m3
Klæðing . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 16.000 m2
Verki skal að fullu lokið 15. september 2004.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni í Borgarnesi
og í Borgartúni 7, Reykjavík (móttaka) frá og með
mánudeginum 17. nóvember 2003. Verð útboðsgagna
er 3.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00
þriðjudaginn 2. desember 2003 og verða þau opnuð
þar kl. 14:15 þann dag.
Auglýsingar útboðaGreinargerð dómnefndar
Árið 2002 gáfu vegamálastjóri og forstöðumaður umhverfis-
deildar Vegagerðarinnar út reglur um viðurkenningu Vega-
gerðarinnar fyrir gerð og frágang mannvirkja. Snemma árs
2003 skipaði síðan vegamálastjóri dómnefnd til að annast
veitingu fyrstu viðurkenningarinnar. Í nefndinni voru þau;
Guðmundur Arason, Helgi Hallgrímsson og Ásrún Rúdólfs-
dóttir sem var formaður.
Samkvæmt áðurnefndum reglum átti umhverfisnefnd hvers
umdæmis að tilnefna tvö til fimm mannvirki, sem lokið var
við á árunum 1999 - 2001. Verkefni dómnefndar var að velja
þrjú bestu verkefnin, raða eftir gæðum og hlaut besta verk-
efnið viðurkenningu.
Alls voru tilnefnd nítján verkefni úr öllum umdæmum.
Dómnefndin skoðaði öll mannvirkin og mat þau. Við það mat
var bæði horft til hönnunar og útfærslu. Litið var til upplifun-
ar vegfarenda, aðlögunar að landi, frágangs o.fl. atriða. Þá var
einnig tekið tillit til þess hve erfið verkefnin voru að mati
nefndarinnar. Þessi atriði voru síðan vegin saman og heildar-
niðurstaðan réði vali dómnefndar.
Valið miðar að því að draga fram það sem allra best var gert
í vegamannvirkjum á umræddu tímabili. Valið var erfitt því
að mörg þeirra verkefna, sem dómnefndin skoðaði voru
Vatnaleið (56) séð til norðurs.
Viðurkenning Vegagerðarinnar
fyrir gerð og frágang mannvirkja sem
lokið var við á árunum 1999-2001